Innlent

Vilja Hringbraut í opinn stokk

Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi, segir tillögu Samtaka um betri byggð, um að setja Hringbraut í opinn stokk, skynsamlega og telur ástæðu til að fara betur ofan í hana. Hann vill meðal annars láta meta hvort raunhæft sé að laga tillöguna að framkvæmdunum við Hringbraut. Framkvæmdir við tilfærslu Hringbrautar í Reykjavík eru þegar hafnar og er gert ráð fyrir að þeim ljúki haustið 2005. Ólafur leggur fram tillögu á fundi borgarráðs í dag, um að skoða betur þær hugmyndir sem Samtök um betri byggð hafa lagt fram í tengslum við framkvæmdirnar, en samtökin vilja að Hringbraut verði sett í opinn stokk á 600 metra löngu svæði milli Njarðargötu og Snorrabrautar. Ólafur segir þessar hugmyndir skynsamlegar og vill að farið verði ofan í þær, frekar en að afgreiða þær strax út af borðinu. Hann vill að borgin geri kostnaðarúttekt á tillögunni og athuga hvort hún sé raunhæf með tillti til kostnaðar og umferðartenginga. Hann telur tillöguna ekki koma of seint ef hún reynist raunhæf. Hann segir nauðsynlegt að fjalla um þetta mál efnislega og athuga hvort þetta sé besta lausnin eða ekki.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×