Innlent

Tveimur vísað úr landi

Tveimur af þeim þremur Palestínumönnum, sem voru í gæsluvarðhaldi eftir að þeir komu til landsins með fölsuð skilríki, var vísað úr landi í morgun. Þriðja manninum verður vísað úr landi í fyrramálið. Talsmaður þeirra gagnrýnir málsmeðferðina harðlega. Palestínumennirnir komu til Íslands með Norrænu í byrjun maí og framvísuðu fölsuðum eða stolnum vegabréfum við komuna til landsins. Þeir voru handteknir og óskuðu eftir hæli, en hælisbeiðni þeirra var vísað frá, þar sem grunur lék á að þeir tengdust alþjóðlegri glæpastarfsemi. Þeir voru úrskurðaðir í þriggja vikna gæsluvarðhald, sem rann út síðastliðinn miðvikudag, en voru handteknir aftur og úrskurðaðir í varðhald þar til þeim yrði vísað úr landi. Þeir voru sendir á Litla-Hraun vegna rannsóknarhagsmuna, eða á meðan verið var að rannsaka skjalafals í tengslum við þá. Gæsluvarðhaldið var kært til Hæstaréttar, en hann hefur ekki enn tekið afstöðu til málsins. Ljóst er að úrskurður Hæstaréttar mun ekki hafa nokkra þýðingu, þar sem Palestínumennirnir verða alllir farnir frá Íslandi. Guðbjarni Eggertsson, skipaður talsmaður þeirra, gagnrýnir málsmeðferðina harðlega og segir hana brenglaða. Hann bendir á að Útlendingastofnun hafi úrskurðað þann 10. júní að mönnunum skyldi vísað úr landi, en þeim hafi ekki verið birtur sá úrskurður fyrr en 16. júní. Guðbjarni segir kerfið meingallað og það sé alvarlegt að löngu eftir úrskurð Útlendingastofnunar um að vísa mönnunum úr landi, þá skuli dómsmálaráðuneytið ekki enn vera búið að fá í hendur gögn málsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×