Innlent

Grænfriðungar á Ísafirði

Nýjasta skip Grænfriðunga, Esperanza, kom til Ísafjarðar í morgun. Hrefnuveiðar Íslendinga í vísindaskyni eru ein ástæða komu Grænfirðunga hingað. Þá ætla þeir að vekja athygli landsmanna á baráttumálum vegna mengunar sjávar og loftlagsbreytinga. Talsmaður samtakanna hér á landi segir að þeir ætli að reyna að ná fundi stjórnvalda og komið verður við á nokkrum stöðum á landinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×