Innlent

Fiskiskip undanþegin frá reglum

Fiskiskip verða undanþegin nýjum reglum um hafna- og siglingavernd gegn hryðjuverkum, sem taka gildi um næstu mánaðamót. Það verður því engin röskun á löndun íslenskra fiskiskipa í útlöndum eða á löndunum erlendra skipa hér á landi þegar reglurnar taka gildi. Nær öll flutningaskip, sem eru í siglingum milli Íslands og útlanda eru þegar komin með svonefnd heilbrigðisvottorð, sem fást eftir að hættumat er gert um borð og viðbragðsáætlun gerð á grundvelli þess.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×