Ný stjórnarskrá breytir engu 24. júní 2004 00:01 "
Það er rangt í þessari frétt að ný stjórnarskrá Evrópusambandsins geri Íslendingum og Norðmönnum ókleift að ganga í sambandið," segir Eiríkur Bergmann Einarsson, stjórnmálafræðingur og sérfræðingur í málefnum ESB, vegna fréttar norska blaðsins Fiskaren þess efnis að hvorug þjóðin fengi að halda forræði sínu yfir fiskveiðilögsögum sínum ef sótt væri um inngöngu í ESB nú vegna nýrrar stjórnarskrár sambandsins. "Sé miðað við tillögur Halldórs Ásgrímssonar um að gera miðin við Ísland og Noreg að sérstöku stjórnsýslusvæði innan sameiginlegrar stjórnsýslu breytir þessi nýja stjórnarskrá engu þar um. Það eina sem er að gerast er að inn kemur klausa um að sjávarútvegur sé á forræði sambandsins en þannig hefur það verið lengi og einungis er verið að staðfesta ríkjandi ástand. Bretar verða nú að gera svo vel og kyngja því enda búið og gert en það er fásinna að segja að þetta loki á möguleika Íslands og Noregs enda yrði líklega um sértæka samninga að ræða ef af yrði." Fiskeribladet segir augljóst að miðað við hina nýju stjórnaskrá ætli stjórn ESB að miðstýra sjávarútvegi en ekki staðbinda slíkt eins og Bretland hafði áður farið fram á. Breskir sjómenn eru afar ósáttir við gang mála enda hafa fiskveiðiheimildir þeirra minnkað jafnt og þétt undanfarin ár og hafa aldrei verið minni en nú. Friðrik Jón Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, segir stöðu útvegsmanna alveg skýra og hún sé óbreytt frá því sem áður var. "Innganga er algjörlega útilokuð af okkar hálfu ef fara á undir sameiginlega fiskveiðistjórnun enda sýnir dæmið frá Bretlandi allra best hvað það kostar að láta hlut sinn af hendi með þessu móti og sjá svo eftir öllu saman þegar kreppir að."
Fréttir Innlent Mest lesið Bein útsending: Lilja formaður eftir spennandi flokksþing Innlent Sinueldur við Framheimilið Innlent „Við erum áratugum of sein“ Innlent Veiktist er hann reyndi að afsanna Havana-heilkennið Erlent Lilja Alfreðsdóttir er nýr formaður Framsóknarflokksins Innlent „Ég er heppin að hafa ekki brotnað“ Innlent „Eins og handboltaþjálfari sem er á bekknum“ Innlent „Það gekk alls konar á en ég er sátt við mína kosningabaráttu“ Innlent „Framsókn styður ekki bókun 35“ Innlent Ritari og varaformaður kjörnir: Báðar Liljur utan þings Innlent Fleiri fréttir Happdræti Háskólans varar við svikurum Íhugar að leggja á sykurskatt „Framsókn styður ekki bókun 35“ Meiri hætta á ferðum vegna rýrnunar jökla Sinueldur við Framheimilið Ritari og varaformaður kjörnir: Báðar Liljur utan þings Gómaður með hamar, hnífa og þýfi „Eins og handboltaþjálfari sem er á bekknum“ „Það gekk alls konar á en ég er sátt við mína kosningabaráttu“ Lilja Alfreðsdóttir er nýr formaður Framsóknarflokksins Áþreifanleg eftirvænting eftir nýja formanninum Formaður Bændasamtakanna hefur aldrei orðið hræddur við tré „Erfitt fyrir formann að taka við sitjandi utan þings“ Bein útsending: Lilja formaður eftir spennandi flokksþing „Við erum áratugum of sein“ „Margt jákvætt að gerast en allir á tánum“ Mikil spenna fyrir formannskjör Framsóknarflokksins „Ég er heppin að hafa ekki brotnað“ Öryggi, heilbrigðismál, Evrópa og efnahagur á Sprengisandi Tölvuárás á Grund: Afrituðu gögn um tugi þúsunda manns Rósin segir sig úr fulltrúaráði Samfylkingarinnar Ný samræmd próf lögð fyrir Framsókn þurfi að þora að svara rangfærslum og hálfsannleik popúlista „Hrækjandi drullu eins og maður sé að steypa án grímu“ Kjartan er kominn heim til Íslands Aldrei fleiri útskrifast frá Bifröst Gagnrýnir hversu seint og illa endurreisn Grindavíkur gengur Íslendingar stemmningsfólk sem taki öllum gleðidögum fagnandi Bein útsending: Sigurður Ingi ávarpar Framsóknarmenn í síðasta sinn sem formaður Segir einkaðila ekki hafa fengið svör í marga mánuði Sjá meira