Golfklúbbi mismunað 24. júní 2004 00:01
Starfsmannaráð Ríkisspítalanna hefur á þriðju milljón króna í tekjur ár hvert af Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar í formi 50 árskorta sem renna til ráðsins. Framkvæmdastjóri golfklúbbsins segir klúbbinn ekki sitja við sama borð og önnur íþróttafélög. Vífilstaðaland er í eigu Garðabæjar nema umhverfi Vífilstaðaspítala og það svæði sem golfklúbburinn nýtir. Það svæði tilheyrir ríkinu. Ætlunin var að þar risi hátæknisjúkrahús en af því verður ekki. Landleigan sem golfklúbburinn innir af hendi ár hvert eru 50 árskort að golfvellinum en þeim hefur fjölgað úr 30 frá því upphaflegur leigusamningur var gerður. Andvirði kortanna, sem er á þriðju milljón, rennur ekki í ríkissjóð heldur fær Starfsmannaráð Ríkisspítalanna kortin til umráða og selur þau starfsfólki og mökum þeirra fyrir um 30 þúsund krónur. Golfklúbburinn selur árskortin hins vegar á um 50 þúsund krónur. Þar á bæ eru menn ekki par sáttir við að spítalinn auglýsi kortin til sölu í samkeppni við völlinn. Jóhann Gunnar Stefánsson, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar, segir aðspurður að leigan sé ekki há fyrir allt það landssvæði sem um er að ræða en finnst samt óeðlilegt að íþróttafélag sé að greiða leigu fyrir félagsaðstöðu sína. Á tólfta hundrað félagar eru í Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar sem er sá annar stærsti á landinu. Forsvarsmenn hans segjast ítrekað hafa sóst eftir leyfi til ríkisins til að bæta aðstöðuna. Þeim beiðnum hefur ávallt verið hafnað eða svar við erindum klúbbsins hefur ekki verið svarað. Jóhann Gunnar segist ekki hafa skýringu á því hvers vegna svo sé. Fréttatofan náði ekki tali af forráðamönnum eignasviðs Landsspítalans í dag.
Fréttir Innlent Mest lesið Skildu skriðdrekana eftir á víglínunni Erlent „Varð að martröð“ Innlent Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Innlent „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Innlent Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Erlent Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Erlent Loftárásir skekja vopnahlé í Líbanon Erlent Yfirmaður WHO hughreystir Tenerife-búa Erlent Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Erlent Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Innlent Fleiri fréttir „Varð að martröð“ Hrósar olíufélögunum fyrir viðbrögð sín Keyrði niður ljósastaur á Vesturlandsvegi Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Starfsemi gæti hafist í nýjum Listaháskóla innan fjögurra ára Þriðja viljayfirlýsingin frá árinu 2007 undirrituð „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Oddviti Samfylkingar bregst við færslum borgarstjóra Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt „Sá gamli er miklu fallegri“ Bjó sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Fær ár fyrir hvora flösku af amfetabínbasa Segir þekkt andlit mikið auglýst, jafnvel á kostnað málefna Drógu aflvana fiskibát í land „Beinlínis gengið í skrokk á fólki“ Myndskeiðið byggi á „netmemi og tölvuleikjamenningu“ „Auðvitað hef ég íhugað það“ Borgarstjóri í beinni um umdeildar kortafærslur Engin bið eftir plássi á meðferðarheimilum ungmenna Endurgreiddi eftir að fjölmiðlar spurðu út í innkaupakortið Lögregla sögð vilja koma höggi á blaðamenn Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Ótrúlegt kjörtímabil að baki á Vopnafirði Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Stykkishólmur verður að vera annað og meira en svefnpláss Mikil tímamót fyrir Víkinga, byrja á bílastæðum „Ég kýs ekki þau sem vilja rífa höll barnanna“ Sjá meira