Innlent

Síminn höfðar einkamál

Síminn mun höfða einkamál á hendur fjórmenningunum sem hlutu dóm í Landssímamálinu. Fyrirtækið telur dóm héraðsdóms leggja grunn að bótaskyldu þeirra.  Skaðabótakröfu Landssímans var vísað frá dómi í gær. Hún hljóðaði upp á um 246 milljónir króna og beindist gegn öllum ákærðu. Sveinbjörn Kristjánsson, fyrrum aðalgjaldkeri Landssímans, viðurkenndi einn bótaskyldu, hin neituðu. Bótakröfur fá sjaldnast framgang í viðamiklum málum og sú leið er yfirleitt farin að einkamál er höfðað í kjölfarið, líkt og Síminn mun gera. Í dómnum segir að bótakrafa fyrirtækisins hafi ekki verið nægilega reifuð þegar kemur að því hvort Landssíminn hafi leitast við að takmarka tjón sitt að einhverju leyti. Sveinbjörn leysti út tékka úr sjóðum Landssímans, millifærði um bankalínu út af reikningi fyrirtækisins og dró sér fjármuni af bankareikningi þess með því að breyta textaskrám í rafrænu greiðslukerfi, sem leiddi til þess að greiðslur runnu inn á reikninga hans eða aðila tengdum honum. Þetta fór alfarið fram hjá endurskoðendum og forráðamönnum Landssímans og mikið lið sérfróðra manna þurfti til að upplýsa það hvernig staðið var að fjárdrættinum og því liði liðsinnti Sveinbjörn. Útlagður kostnaður Landssímans eingöngu vegna þeirrar vinnu nemur um 13 milljónum króna.                  



Fleiri fréttir

Sjá meira


×