Sjálfstæðisflokkur stærstur á ný 24. júní 2004 00:01
Stjórnarflokkarnir bæta við sig fylgi samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Samkvæmt könnuninni næðu þeir þó ekki meirihluta á þingi ef kosið yrði í dag. Þeir fengju samanlagt 29 þingmenn en hafa nú 34. Þegar niðurstaðan er skoðuð út frá þeim sem tóku afstöðu í könnuninni, en það voru 80% aðspurðra, kemur í ljós að Sjálfstæðisflokkurinn mælist nú með 35,7 prósenta fylgi, sem er yfir kjörfylgi hans. Flokkurinn hefur stöðugt bætt við sig fylgi síðan í könnun blaðsins 20. maí þegar hann mældist með 25 prósent. Þá höfðu stjórnarflokkarnir nýlega samþykkt fjölmiðlalögin. Fylgi Framsóknarflokksins í könnuninni er 9,5 prósent hækkar hann lítillega síðan í könnun blaðsins 5. júní. Fylgi flokksins er þó enn langt undir því sem hann fékk í kosningunum í fyrra, en þá fékk hann 17,7 prósent. Samkvæmt könnuninni fengi Framsóknarflokkurinn sex þingmenn kjörna en hann hefur 12 í dag. Samfylkingin sem hefur mælst með mjög mikið fylgi í síðustu þremur könnunum blaðsins tekur nú dýfu niður. Hann mælist með 32,9 prósent samanborðið við rúmlega 41 prósent 20. maí. Flokkurinn er þó enn aðeins yfir kjörfylgi og fengi 21 þingmann á þing, eða einum fleiri en hann hefur nú. Vinstri grænir eru einnig aðeins að missa flugið miðað við niðurstöður síðustu kannanna. Hann mælist nú með 15 prósenta fylgi og fengi samkvæmt því níu þingmenn kjörna eða fjórum fleiri en hann hefur. Frjálslyndi flokkurinn er að sækja í sig veðrið samkvæmt könnuninni. Hann mælist með 6,8 prósenta fylgi sem er ríflega tvöfalt meira en hann fékk í könnun blaðsins 5. júní. Ef kosið yrði í dag fengi flokkurinn fjóra þingmenn kjörna sem er jafnmikið og hann hefur. Hringt var í 800 manns og var þeim skipt hlutfallslega jafnt eftir kyni og kjördæmum.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira