Innlent

Bjargað til byggða

Björgunarsveit frá Höfn í Hornafirði kom að þeim stað sem tveir pólskir ferðamenn óskuðu hjálpar á Vatnajökli á sjöunda tímanum í gær. Mennirnir hófu göngu sína yfir jökulinn á þriðjudaginn, en slæmt veður í gær batt enda á ferðina. Þeir hringdu því úr gervihnattasíma og óskuðu eftir aðstoð, en þeir voru orðnir þrekaðir og sólbrunnir þegar björgunarsveitir náðu til þeirra. Þorsteinn Þorkelsson, sviðsstjóri Björgunarsviðs Landsbjargar, sagði að mennirnir hafi verið vel búnir. Þeir komu til Hafnar í Hornafirði í gærkvöldi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×