Innlent

Íslenskir laganemar unnu

"Þetta gekk allt upp. Við vorum vel undirbúin og heppin," segir Heiða Björg Pálmadóttir laganemi. Hún vann ásamt fimm öðrum laganemum Norrænu málflutningskeppnina sem haldin var hér á landi um helgina. Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskt lið ber sigur úr býtum en tólf lið taka þátt í keppninni á ári hverju. "Málið sem flutt var snerist um mann, sænskan ríkisborgara, sem eftir 11. september var settur á lista Sameinuðu þjóðanna yfir menn sem fjármagna hryðjuverk. Eignir hans voru frystar er ESB hafði gefið út tilskipun sama efnis og var hlutverk okkar að sækja mál hans og verja fyrir Mannréttindadómstólnum," segir Heiða. Keppnina dæmdu hæstaréttardómarar frá Norðurlöndunum auk dómara frá Mannréttindadómstól Evrópu og segir Heiða mikinn heiður að flytja fyrir þá mál. Sif Konráðsdóttir hæstaréttarlögmaður er formaður hópsins en Björg Thorarensen prófessor aðstoðaði keppendurna fyrir hönd lagadeildar HÍ.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×