Innlent

Stjórnmálaáhugi lítill

"Það er erfitt að meta þátttökuna í þessum kosningum þar sem sumarleyfi standa nú yfir en fáir skráðu sig til að kjósa utan kjörfundar," segir Pawel Bartoszek. Pawel sat í kjörstjórn utankjörfundar fyrir Evrópuþingskosningarnar hér á landi en Pólverjum gafst kostur á að kjósa til þingsins nú um helgina. "Það var mun erfiðara að ná til fólks fyrir þessar kosningar en fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna sem var um inngöngu Póllands í Evrópusambandið. Í þeim kosningum voru um 100 sem skráðu sig en nú rétt undir 40 manns." Pawel segir þátttökuna hér vera lýsandi fyrir þann áhuga sem var í Póllandi, mjög litla. "Evrópa er almennt ekkert sérstaklega áhugasöm um þessar kosningar. Mönnum finnst að Evrópuþingið hafi ekki það mikið vald og eins er það frekar fjarlægt fólki. Almennt er kosningaþátttakan mun minni í þessum kosningum en öðrum og þar ofan á bætist að stjórnmálaáhugi Pólverja er ekkert sérstaklega mikill," segir Pawel og bætir því við að þetta sé að verða svolítið eins og í Bandaríkjunum, menn sinni sínum hlutum og vinni sína vinnu og hafi ekki mikla trú á því að stjórnmálin breyti miklu. "Þetta er þó eitthvað sem við erum vön að gera í hvert skipti sem kosningar eru enda partur af okkar tilveru sem Pólverjar á Íslandi."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×