Detroit vann fyrsta leikinn 14. júní 2004 00:01
Detroit Pistons er komið með forystu, 1-0, í lokaeinvígi NBA-deildarinnar í körfuknattleik eftir tólf stiga sigur, 87-75, á Los Angeles Lakers í fyrsta leik liðanna í Staples Center í Los Angeles á sunnudagskvöldið. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en leikmenn Detroit sig fram úr í síðari hálfleik og tryggðu sér óvæntan og mikilvægan sigur. Það sem gerir þennan sigur enn sætari fyrir Detroit er að þeim tókst að ná sigri þrátt fyrir að þeirra sterkasti sóknarmaður, Richard Hamilton, ætti slakan leik og tröllið Shaquille O’Neal hjá Los Angeles Lakers færi hamförum undir körfunni. Það var hinn sterki varnarleikur, sem er aðalsmerki liðsins, auk góðra sóknartilþrifa hjá Chauncey Billups sem færði þeim sanngjarnan sigur. Ben Wallace, miðherjinn sterki hjá Detroit, sem mátti sín lítils gegn O’Neal sagði eftir leikinn að lykillinn að sigri Detroit hefði verið sá að þeir eru ekki háðir einum manni sóknarlega. „Það geta allir tekið af skarið í liðinu og ef einn leikmaður er í vandræðum þá kemur annar maður í hans stað," sagði Wallace eftir leikinn. Eins og áður sagði átti O’Neal frábæran leik í liði Lakers, skoraði 34 stig og tók 11 fráköst. Kobe Bryant skoraði 25 stig en það háði Lakers verulega að stjörnurnar Gary Payton og Karl Malone voru ósýnilegar allan leikinn og skoruðu aðeins sjö stig saman, nokkuð sem er langt frá þeirra besta. Chaunchey Billups var stigahæstur hjá Detroit með 22 stig, Rasheed Wallace skoraði 14 stig, Richard Hamilton skoraði 12 stig og Tayshaun Prince skoraði 11 stig.
Íþróttir Mest lesið Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Fótbolti BBC bað FIFA um svör vegna meints níðs Sigurðar Fótbolti Sakar þekktan Íslending um kynþáttahatur á HM Fótbolti Hættir aðeins þrítugur og sendir sambandinu tóninn Fótbolti Veit ekki hvort Haaland var að grínast Fótbolti Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Körfubolti Stálu Norðmenn víkingaklappinu af Tólfunni? Fótbolti Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Enski boltinn Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Körfubolti Sakar Schweinsteiger um rasísk ummæli Fótbolti Fleiri fréttir Gætu spilað heimaleiki sína í Meistaradeildinni á heimavelli Brentford Forsetinn gaf öllum landsmönnum frí eftir að Ekvador komst áfram Líkur Skota á að komast áfram fóru úr 42 prósentum í 5,3 prósent á einum degi BBC bað FIFA um svör vegna meints níðs Sigurðar Þjóðir biðja um að halda ekki upp á hinsegin daga meðan á leik þeirra stendur Víkingur nælir í Eið Orra sem kemur eftir tímabilið Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Lét menn heyra það á HM: „Þetta er smá sorglegt“ Sumarmótin: Norðurálsmótið 2026 Brakandi fersk tíðindi og er rígurinn dauður? Kristinn fer til Spánar Sjáðu mörkin úr stórsigri Víkings í Smáranum Segir Hamilton eiga möguleika á áttunda heimsmeistaratitlinum Maður dagsins: Þjálfari hans hjálpaði honum að þroskast Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Sakar Schweinsteiger um rasísk ummæli Tyrkir náðu loksins sigri og jafntefli hentaði báðum liðum Stálu Norðmenn víkingaklappinu af Tólfunni? Hættir aðeins þrítugur og sendir sambandinu tóninn Dagskráin í dag: Risamót í golfi, bestu pílukastarar heims og Formúla 1 Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Uppskrift að algjöru hneyksli á HM Smáþjóðin úr leik á HM en Pépé sendi Fílabeinsströndina áfram Frábær sigur á Þjóðverjum sendi Ekvadora áfram Þurfum að draga lærdóm hratt og koma peppaðir á sunnudaginn „Mér fannst við ekki góðir“ Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-4 | Flengdu Blika og hafa unnið tólf í röð Veit ekki hvort Haaland var að grínast Anton Ingi ráðinn þjálfari dansks félags Sjá meira