Fjárdrátturinn mikið áfall fyrir Hvítasunnukirkjuna Jón Hákon Halldórsson skrifar 11. október 2010 19:07
Fjárdrátturinn í Hvítasunnukirkju er mikið áfall fyrir Hvítasunnukirkjuna, safnaðarmeðlimi og samstarfsmenn framkvæmdastjórans sem grunaður er um fjárdráttinn. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Hvítasunnukirkjan á Íslandi hefur sent frá sér vegna fjárdráttar fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá Hvítasunnukirkjunni. Í yfirlýsingunni staðfestir Hvítasunnukirkjan að framkvæmdastjóri Hvítasunnukirkjunnar á Íslandi hafi viðurkennt að hafa dregið sér fé úr sjóðum hennar. Fjárdrátturinn átti sér stað á sex ára tímabili, frá árinu 2004 til loka ágúst 2010. Yfirferð gagna hefur leitt í ljós að fjárdrátturinn nemur rúmlega 25 milljónum króna. Í yfirlýsingu Hvítasunnukirkjunnar segir að í ljósi þess að verknaðurinn hafi staðið yfir um nokkurra ára skeið má ætla að ársreikningar á umræddu tímabili hafi verið byggðir á misvísandi gögnum gagngert í því skyni að fela fjárdráttinn. Þannig hafi réttum fjárhagsupplýsingum skipulega verið haldið frá endurskoðanda sem vann ársreikninga samkvæmt bestu vitund. Framkvæmdastjóranum hefur þegar verið vikið úr starfi. Þá hefur stjórn Hvítasunnukirkjunnar falið Sigurbirni Magnússyni hæstaréttarlögmanni að fara með málið fyrir hönd Hvítasunnukirkjunnar á Íslandi og kæra málið til lögreglu og setja fram bótakröfu á hendur framkvæmdastjóranum fyrrverandi. Í yfirlýsingunni segir að stjórn Hvítasunnukirkjunnar á Íslandi harmi málið og biður safnaðarmeðlimi í öllum hvítasunnukirkjum á Íslandi afsökunar á því að þetta hafi getað gerst. Stjórnin mun nú, í samráði við löggilta endurskoðendur og ráðgjafa, yfirfara alla verkferla sem lúta að bókhaldi og meðferð fjármuna, skipulagi innra starfs og verklagsreglum til þess að tryggja að fremsta megni að viðlíka atburðir endurtaki sig ekki.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum Sjá meira