Lífið

Grafarvogsbúi eignaðist dóttur átta mínútur í átta þann 08.08.08

Hrund Guðmundsdóttir og Rúnar Haraldsson eignuðust sitt annað barn á föstudaginn. Það má segja að talan átta hafi spilað stórt hlutverk í fæðingu barnsins sem er stúlka. Á föstudaginn var nefnilega 08.08.08 og fæddist stúlkan átta mínútur í átta. Einnig vóg fylgjan 888 grömm. Móðirin segist telja líklegt að átta verði happatala dótturinnar.

Lífið

Íslenski bjórinn Gullfoss kominn á markað

Á föstudagin kom nýr íslenskur bjór á markað sem ber heitið Gullfoss. Það er Ölgerð Reykjavíkur sem framleiðir bjórinn sem bruggaður er í bruggverksmiðjunni á Árskógssandi. Bruggmeistari ÖRVK er Anders Kissmeyer sem meðal annars var gæðastjóri Carlsberg í Danmörku í tæp 20 ár. Von er á fleiri bjórtegundum frá framleiðendum Gullfoss, meðal annars Geysir.

Lífið

Carla Bruni kelar við eiginmanninn - myndir

Forsetafrú Frakklands, hin ítalska Carla Bruni, er mjög ósátt við að ljósmyndir teknar úr launsátri af henni og Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta fái mun meiri athygli heimspressunar en störf forsetans.

Lífið

Samdi lagið Þú og ég fyrir gamla vinnuveitandann

KK er með mörg járn í eldinum um þessar mundir. Hann á nýtt lag í auglýsingu fyrir SS og fyrsta plata hans í sex ár með eigin efni kemur út í október. Auk þess kennir hann á böskaranámskeiði á Skagaströnd um næstu helgi.

Tónlist

Isaac Hayes er látinn

Bandaríski Soul tónlistarmaðurinn og leikarinn Isaac Hayes fannst í dag látinn á heimili sínu í Tenessee í Bandaríkjunum. Fréttastofa CNN hefur þetta eftir lögreglunni í borginni. Enn sem komið er hefur ekkert verið gefið uppi um orsakir andláts hans.

Lífið

Tvíburar Brangelinu komu undir með gamla laginu

Angelina Jolie þvertekur fyrir sögusagnir þess efnis að nýfæddir tvíburar hennar og Brad Pitt séu glasabörn. Tvíburarnir Knox Leon og Vivienne Marcheline fæddust þann 12. júní síðastliðinn og slúðurblöðin hafa fullyrt að um glasafrjóvgun hafi verið að ræða. Angelina segir hins vegar í viðtali við breska blaðið Hello að þau hjónakornin hafi ekki átt í neinum vandræðum með að geta börnin.

Lífið

Katie Melua óttast um fjölskyldu sína í Georgíu

Söngfuglinn og Íslandsvinurinn Katie Melua óttast um fjölskyldu sína þessa dagana en hún er ættuð frá Georgíu þar sem nú geysa harðir bardagar á milli Rússa og Georgíumanna. Hún hringdi í mömmu sína sem býr í höfuðborginni Tbilisi en þar er allt með kyrrum kjörum enn sem komið er.

Lífið

Litli kallinn í Top Gear fær stóran launaseðil

Sjónvarpsstjarnan og Íslandsvinurinn Richard Hammond, sem fer á kostum í bílaþættinum Top Gear, er ekki á flæðiskeri staddur fjárhagslega. Breska blaðið The Sun greinir frá því að Hammond, eða The Hamster eins og félagar hans í þættinum kalla hann, að hann hafi nýverið leikið í sjónvarpsauglýsingu fyrir bresku verslunarkeðjuna Morrisons og fengið vel greitt fyrir.

Lífið

Bush kíkir á blakstelpurnar

George Bush Bandaríkjaforseti stendur í stórræðunum í dag. Á milli þess sem hann reynir að miðla málum í deilum Georgíumanna og Rússa kíkir hann á Bandarísku keppendurna á Ólympíuleikunum en hann er staddur í Peking. Í dag leit hann við hjá landsliðinu í strandblaki og fylgdist með föngulegum stúlkunum á æfingu. Ekki er ljóst hvað forsetinn er að gera á myndinni en líklega er hann að dusta sand af afturenda Misty May-Treanor, landsliðskonu.

Lífið

Bernie Mac er látinn

Bandaríski Grínistinn Bernie Mac lést í morgun, fimmtugur að aldri. Talsmaður leikarans segir hann hafa látist úr lungnabólgu á sjúkrahúsi í Chicago. Mac hafði legið á sjúkrahúsinu í rúma viku en á fimmtudag bárust þær fregnir að ástand hans væri stöðugt en honum hrakaði í nótt.

Lífið

Reykjavík! og Ben Frost í eldfimt samband

Hljómsveitin Reykjavík! hefur kunngjört samstarf við íslensk-ástralska hljóðlistamanninn Ben Frost! Þessi tvö eldfimustu element íslenskrar tónlistar hafa um langt skeið leitt saman hesta sína í tilraunaskyni en þetta verður í fyrsta skiptið sem samstarf þeirra er opinberlega fest á band eins og segir í tilkynningu.

Lífið

Hrókurinn skákar í Grænlandi

Skákhátíðin á Austur-Grænlandi hefur gengið vel en hún er haldin í samvinnu Hróksins og skákfélagsins í Tasiilaq sem heitir Løberen (Biskupinn).

Lífið

Of þungur Elton John - myndir

Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að vera opinber persóna eins og söngvarinn Elton John sem hefur bætt á sig nokkrum kílóum í gegnum tíðina enda orðinn 61 árs.

Lífið

Vatnsbyssustríð á Ísafirði

Lokahóf Vinnuskóla Ísafjarðarbæjar var haldið við tjaldsvæðið í Tunguskógi í gærkvöldi. Þangað mættu á fimmta tug barna sem starfað hafa við skólann í sumar. Boðið var upp á grillmat vatnsbyssustríð var háð.

Lífið

Paul Newman vill deyja heima

Hollywoodleikarinn Paul Newman sem er 83 ára gamall glímir við krabbamein í lungum. Hann á að baki leik í meira en 80 kvikmyndum og sjónvarpsþáttum en dró sig í hlé árið 2006 vegna veikinda sinna.

Lífið