Lífið

Reykjavík! og Ben Frost í eldfimt samband

Hljómsveitin Reykjavík! á góðri stundu í Köln í Þýskalandi.
Hljómsveitin Reykjavík! á góðri stundu í Köln í Þýskalandi. MYND/Steinþór Helgi

Hljómsveitin Reykjavík! hefur kunngjört samstarf við íslensk-ástralska hljóðlistamanninn Ben Frost! Þessi tvö eldfimustu element íslenskrar tónlistar hafa um langt skeið leitt saman hesta sína í tilraunaskyni en þetta verður í fyrsta skiptið sem samstarf þeirra er opinberlega fest á band eins og segir í tilkynningu.

Áður hafði Reykjavík! tilkynnt um væntanleg samstarf við fagurkerann Valgeir Sigurðsson á næstu hljóðversbreiðskífu en samkrull þeirra gaf góða raun á sínum tíma.

Að vandlega athuguðu máli ákváðu liðsmenn Reykjavík! þó að endurtekning jafngilti dauða og að þeir vildu frekar feta stíga hins óþekkta undir leiðsögn eins hæfileikaríkasta óhljóðasælkera veraldar en að stinga sér til sunds í slípaðri laug Valgeirs á nýjan leik.

Þess má og geta að gítartvíeyki Reykjavík!ur, frændurnir Guðmundur Birgir og Haukur Sigurbjörn, leika jafnan undir með Frost á tónleikum og hafa í því skyni ferðast með honum um víða veröld, þannig að þeir eru ekki ókunnir listsköpun á hans forsendum.

Hin brátt byltingarkennda afurð Frosts og Reykjavík!ur hefur enn ekki hlotið nafn, en hún mun koma út snemma á haustdögum á vegum eyfirska útgáfufélagsins Kima og er þegar farin að valda titringi í undirheimum íslenskrar tónlistar.

„Ég er mjög spenntur fyrir því að vinna með Reykjavík!," segir Frost „Enda er hún klárlega besta rokksveit landsins. Og þótt víðar yrði leitað. Ég held að samstarf okkar eigi eftir að verða bæði afdrifaríkt og óþægilegt."












Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.