Lífið

Fæstir vita margt um Ísland

„Þetta var nú ekki vísindaleg rannsókn gerð á félagsfræðilegum forsendum. Okkur langaði bara að fá skýrari mynd af ímynd Íslands eftir bankahrunið og IceSave illdeilanna og setja hana fram á skemmtilegan hátt,“ segir Steindór Grétar Jónsson um verkefnið NiceBjörkCrisis sem sýnt verður í húsnæði Hugmyndasmiðju unga fólksins í kvöld.

Lífið

Útgáfutónleikar Napóleons

Útgáfutónleikar hljómsveitarinnar Me, The Slumbering Napoleon – eða Ég, hinn blundandi Napóleon – verða haldnir Sódómu Reykjavík í kvöld.

Lífið

Ellen dómari í Idol

Bandaríski spjallþáttastjórnandinn Ellen DeGeneres mun taka við af Paulu Abdul sem fjórði dómarinn í American Idol. Hún ætlar ekki að hætta með spjallþátt sinn sem hún hefur stjórnað við miklar vinsældir undanfarin ár.

Lífið

Tíu þúsund gegn framkvæmdum á Ingólfstorgi

Rúmlega tíu þúsund manns hafa skráð sig í mótmælandahóp á Facebook gegn fyrirhuguðum framkvæmdum á Ingólfstorgi. Síðan var stofnuð fyrir viku síðan en hópurinn hefur þegar haldið tónleika til þess að vekja athygli á málinu.

Lífið

Megas spilar Millilendingu í kvöld

Aðrir tónleikarnir í tónleikaröðinni Manstu ekki eftir mér fara fram á Veitingastaðnum Nasa í kvöld en þá mun sjálfur Megas ásamt Senuþjófunum leika plötu sína Millilending í heild sinni.

Lífið

Ástríður og Ólafur Ragnar í kappakstri

Pétur Jóhann og Ilmur Kristjáns ætli í kappakstur í sjónvarpinu í kvöld, fimmtudagskvöld, í Formúluþættinum Rásmarkinu á Stöð 2 Sport. Pétur Jóhann er eins og mörgum er kunnugt um brjálaður Ferrari aðdáandi. Þau Pétur og Ilmur munu spyrna um Monza brautina í sérstökum ökuhermum í myndverinu, en keppt er á brautinni á Ítalíu um helgina. Í þættinum verður auk þess rætt við Giancarlo Fisichella sem skipti frá Force India liðinu yfir til Ferrari eftir frækna frammistöðu á Spa brautinni í síðustu keppni. Við rásmarkið er á dagskrá Stöðvar 2 Sport á fimmtudögum kl. 20.

Lífið

Skuggasveinar gefa út disk

Saman er komin sveit knárra heldri manna úr íslenska tónlistarbransanum sem hafa æft upp prógramm með frumsömdum lögum sem brátt koma út.

Lífið

Steinunn á Kjarvalsstöðum

Sýning á verkum Steinunnar Sigurðardóttur fatahönnuðar verður opnuð á Kjarvalsstöðum hinn 21. nóvember. Sýningin mun bera heitið Steinunn og þar verða til sýnis flíkur úr smiðju Steinunnar sem margar hafa ekki verið sýndar hér á landi áður.

Lífið

Heilbrigð skynsemi í hart við Rödd skynseminnar

„Ég er búinn að vera „Heilbrigð skynsemi" í sex til tíu ár, hef skrifað undir því nafni á netinu. Og þar sem ég er Heilbrigð skynsemi hlýt ég líka að vera Rödd skynseminnar," segir markaðsfræðingurinn og bloggarinn Jakob Þór Haraldsson.

Lífið

Lagaflækja Hobbitans á enda

Tökur á kvikmynd byggðri á Hobbitanum eftir JRR Tolkien geta nú hafist af fullum krafti eftir að framleiðendurnir komust að samkomulagi við erfingja rithöfundarins. Erfingjarnir höfðuðu mál gegn New Line Cinema í fyrra og kröfðust tæplega þrjátíu milljarða króna í skaðabætur vegna samningsbrots og svika.

Lífið

Syngur gamla „fiftís“-slagara

„Þetta eru svartir ryþmablúsar frá því í kringum fimmtíu,“ segir Helgi Björnsson, sem er að undirbúa plötu með gömlum bandarískum tökulögum.

Lífið

Leirlistamaður í rokkinu

Hljómsveitirnar DLX ATX, Bárujárn, Me the Slumbering Napoleon og Caterpillarmen leika á skemmtistaðnum Grand Rokk á laugardagskvöldið klukkan 22.00.

Lífið

Fullt á Íslandsmeistaramót í póker

„Frá upphafi var ég 100 prósent viss um að mótið myndi fyllast," segir Jóhann Ólafur Schröder, einn af skipuleggjendum Íslandsmeistaramótsins í póker, sem fer fram á Hilton Hótel Nordica um næstu helgi.

Lífið

Með allt á hreinu sýnd

Ein vinsælasta bíómynd Íslandssögunnar, Stuðmannamyndin Með allt á hreinu eftir Ágúst Guðmundsson, verður bílabíómynd Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík í ár.

Lífið

Annie nærri gjaldþrotinu

Á þriðjudag rann út frestur bandaríska ljósmyndarans Annie Leibovitz til að greiða upp skuldir sínar en hún tók stórt lán í bólunni til að greiða hala af lausaskuldum.

Lífið

Umdeildur sálfræðihrollur

Sálfræðihrollvekjan Anti­christ eftir Lars von Trier verður frumsýnd annað kvöld. Hún er ein fimm mynda sem hafa verið tilnefndar til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs og sem Græna ljósið sýnir um helgina.

Lífið

Óskar eftir reynslusögum í bók

„Ég fékk hugmyndina fyrir fjórum árum, þegar ég var ófrísk að eldri stelpunni minni, og er búin að vera með bókina í maganum síðan,“ segir Andrea Björgvinsdóttir. Hún vinnur nú að bók um getnað, meðgöngu og fæðingu sem er áætlað að komi út næsta vor.

Lífið

Nína í Kína

Nína Margrét Grímsdóttir píanóleikari er þessa dagana í tónleikaferðalagi um Kína og kemur fram á átta tónleikum í sjö borgum.

Lífið

Bróðir Óla Palla er í Skúrnum

Litli bróðir Óla Palla á Rás 2 heitir Gunnar Gunnarsson og sér um þáttinn Skúrinn ásamt Ragnari Gunnarssyni. Báðir starfa sem tæknimenn hjá Ríkis­útvarpinu.

Lífið

Unglingar í vanda

Myndirnar Final Destination og Bandslam verða frumsýndar um helgina. Final Destination er fjórða myndin í seríunni. Í henni eru Nick og vinir hans að horfa á kappakstur þegar Nick fær fyrirboða um óhugnanlegt slys.

Lífið

Par í felum

Nýjustu heimildir herma að leikkonan Evan Rachel Wood og True Blood-leikarinn Alexander Skarsgård hafi verið að hittast á laun í nokkrar vikur.

Lífið

Víkingavesen í Borgarnesi

Á laugardag er mikið um að vera í Borgarnesi. Í tengslum við Landnámssetrið sýnir Víkingafélagið Rimmugýgur bardagalist, dr. William Short og Einar Kárason tala um vopnaburð fornmanna og fyrsta sýning haustsins á Stormum og styrjöldum verður um kvöldið. Vopnaskakið verður á flötinni við Landnámssetrið kl. 15 og 19.

Lífið

Samdi fyrir Bolton

Söngkonan Lady Gaga hafði mjög gaman af því að semja lag fyrir Michael Bolton á nýjustu plötu hans.

Lífið

Forsýning á District 9

Geimverumyndin District 9, sem fór beint á toppinn vestanhafs, verður forsýnd annað kvöld í Sambíóunum við Álfabakka.

Lífið

Heiðra Lennon á NASA í kvöld

Stórtónleikar verða haldnir til heiðurs John Lennon á NASA í kvöld klukkan 21.00. Einvalalið söngvara og hljóðfæraleikara stígur á svið og verða tónleikarnir tvískiptir. Fyrir hlé verða flutt níu Lennonlög frá Bítlaárunum 1963-1969 og eftir hlé verða flutt önnur níu Lennonlög frá New York tímabilinu 1970-1980. Níu söngvarar koma fram: Björgvin Halldórs, Daníel Ágúst, Egill Ólafs, Haukur Heiðar jr., Helgi Björns, Ingó, Jóhann Helga, Krummi og Stefán Hilmars. Bandið verður ekki af verri endanum. Á hljómborð verður Magnús Kjartansson, Villi Guðjóns og Jón Elvar Hafsteins á gítara, Jón Ólafsson á bassa og Ásgeir Óskarsson á trommur.

Lífið

Skjárinn enn í leit að fréttaþul

Skjár einn hefur enn ekki ráðið í stöðu fréttalesara, en til stendur að hefja útsendingar á kvöldfréttatíma þar um næstu mánaðamót. Samningur þessa efnis var undirritaður fyrr í þessum mánuði á milli Árvakurs, útgáfufélags

Lífið