Lífið

Ný plata á næsta ári

Ný plata frá söngkonunni Amy Winehouse er væntanleg á næsta ári. „Ég hef heyrt nokkrar lagaprufur sem heilluðu mig algjörlega upp úr skónum," sagði aðstoðarforstjóri plötufyrirtækisins Island.

Lífið

Ný plata og afmælistónleikar

Todmobile heldur tuttugu ára afmælistónleika í Íslensku óperunni 4. nóvember. „Ég hlakka mikið til. Við höfum ekki haldið tónleika þarna síðan okkar fyrstu fimm starfsár. Þá var þetta fastur liður eins og venjulega, alltaf á haustin,“ segir gítarleikarinn Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson.

Lífið

MH tók fyrsta MH-Kvennó daginn

Menntaskólinn við Hamrahlíð bar sigurorð af Kvennaskólanum á fyrsta MH-Kvennó deginum í gærkvöldi. Keppnin hófst á Miklatúni um miðjan dag í gær og lauk með ræðukeppni í hátíðarsal MH.

Lífið

Bubbi: Það er búið að fjötra ungviðið til framtíðar

„Það segir sig sjálft bara,“ svarar Bubbi Morthens aðspurður um plötuumslag nýju Egó plötunnar sem kom út í vikunni en þar er mynd af handjárnuðu barni. „Umslagið er ekkert annað en skírskotun til ofbeldisaðgerða útrásarvíkinganna, bankanna og stjórnvalda og hvernig það er búið að fjötra ungviðið til framtíðar. Staða íslenskra barna eftir hrunið," segir hann. „Egó platan er fín og vekur auðvitað spurningar hjá sumum og allt það. Lögin á plötunni kaflast á við þann tíðaranda sem var þegar Egóið var nýtilkomið á markað. Hún er uppfærð því við erum að spila í dag en ekki árið 1982 en fyrst og fremst er þetta bara popprokk plata þar sem að kallast á sterkar melódíur og svo kannski textar aðallega um ástina og síðan hrunið," segir Bubbi. Egó heldur tónleika á Seyðisfirði í kvöld, föstudag.

Lífið

Búið að ráða leikstjóra fyrir Jar City

Bandaríski leikstjórinn Tod Williams hefur verið ráðinn til að leikstýra amerísku útgáfunni af Mýrinni eða Jar City eins og hún heitir á enskri tungu. Þetta staðfestir Baltasar Kormákur í samtali við Fréttablaðið.

Lífið

Endurtaka Alice in Chains-tónleika

Gítarleikarinn Franz Gunnarsson og félagar héldu tónleika til heiðurs hljómsveitinni Alice in Chains síðasta fimmtudag. Tónleikarnir heppnuðust svo vel að hljómsveitin hefur ákveðið að endurtaka leikinn í kvöld á Sódómu Reykjavík. Húsið verður opnað klukkan 21 og miðaverð er 2.000 krónur. Forsala á tónleikana fer fram í versluninni Havarí, en þar kostar miðinn 1.500 krónur.

Lífið

Milljón fyrir bestu myndirnar

„Okkur fannst í ljósi ástandsins í þjóðfélaginu tilvalið að koma með eitthvað spennandi og jákvætt fyrir fólkið í þjóðfélaginu að hugsa um,“ segir Guðrún María Guðmundsdóttir, ritstjóri Símaskrárinnar.

Lífið

Ungur lögfræðingur gefur út sína fyrstu glæpasögu

„Ég vona að það sé pláss fyrir okkur bæði á markaðnum,“ segir lögfræðingurinn Ragnar Jónasson sem hefur gefið út sína fyrstu glæpasögu, Fölsk nóta. Bókin verður í harðri samkeppni fyrir jólin við nýja glæpasögu Agöthu Christie sem Ragnar sá einmitt sjálfur um að þýða.

Lífið

Nemendafélagssíða í anda Facebook: Ný heimasíða NFS opnuð

Ný heimasíða NFS hefur nú litið dagsins ljós. Síðan hefur ýmsa skemmtilega eiginleika sem minna helst á Facebook, þar sem hver og einn hefur sitt eigið persónulega vefsvæði að innskráningu loknu. Síðan er þó enn í vinnslu og nemendur beðnir um að sýna þolinmæði, komi upp vandamál.

Lífið

Örlygur Smári gerist plötusnúður

„Mig hefur langað til að gera þetta í langan tíma og fæ kjörið tækifæri til að kýla á þetta,", segir upptökustjórinn og lagahöfundurinn Örlygur Smári. Örlygur lætur gamlan draum rætast annað kvöld þegar hann verður plötusnúður á 90's-kvöldi á skemmtistaðnum Spot. Hann hefur hingað til verið þekktari fyrir gæfuríkt samstarf þeirra poppkóngsins Páls Óskars ásamt því að hafa tvisvar samið framlag Íslands í Eurovision.

Lífið

Sigvaldi J. Kárason sigraði í Cannes

Franco og Formula Fun, teiknimyndaþáttaröð sem nokkrir Íslendingar koma að, var valið áhugaverðasta barnaefnið á sjónvarps-og auglýsingahátíðinni í Cannes sem nú fer fram við strendur Miðjarðarhafsins. Sigvaldi J. Kárason er leikstjóri þáttanna og hann var kampakátur þegar Fréttablaðið náði tali af honum.

Lífið

Flateyjarævintýri Lay Low koma út

Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, Lay Low, skellti sér síðsumars út í Flatey í Breiðafirði. Með í för voru leikstjórinn Denni Karlsson, myndatökumaðurinn Víðir Sigurðsson, hljóðupptökumaðurinn Viðar Hákon Gíslason og Kári Sturluson, umboðsmaður Lovísu.

Lífið

Katie Price skrifar fjórðu ævisöguna

Fjórða ævisaga glamúrfyrirsætunnar Katie Price er nú í burðar­liðnum en breskar bókaútgáfur hafa lýst því yfir að þær hafi ekki áhuga á að gefa bókina út. Þetta er fjórða ævisaga Price á fimm árum og í þeirri nýjustu mun hún fjalla um skilnað sinn við Peter Andre.

Lífið

Teknóið er enn að þróast

„Reyk Veek er samstarfsverkefni nokkurra tónlistarmanna sem allir spila og semja teknótónlist. Við þekktumst lítið áður en samstarfið hófst en áttum það sameiginlegt að vilja spila gott teknó,“ segir plötusnúðurinn Heimir Héðinsson um tónlistarverkefnið Reyk Veek.

Lífið

LeAnn flutt í hverfið

Fyrrverandi eiginkona leikarans Eddie Cibrian kvartar sáran undan nýrri kærustu hans, söngkonunni LeAnn Rimes. Brandi Glanville segir Rimes hafa sýnt mikið tillitsleysi þegar hún flutti í hverfið sem Glanville býr í ásamt börnum sínum og Cibrian, en hjónaband þeirra fór í súginn eftir að upp komst um framhjáhald Cibrians og Rimes.

Lífið

Fersk XX byggir á fortíðinni

Það er kominn október og tónlistarspekúlantar eru farnir að velta því fyrir sér hvaða plötur verða á listanum yfir plötur ársins. Þar á meðal verður væntanlega fyrsta plata The XX frá London.

Lífið

STUÐMAÐUR OG FRÚ BJÓÐA ÚTLENDINGUM HEIM TIL SÍN

„Við Ásta höfum stundum rætt þetta, hvort það væri ekki gaman að bjóða upp á svona hér á Íslandi. Við höfum séð þetta í útlöndum og farið í svona og þetta er miklu persónulegra heldur en að láta einhvern fararstjóra þusa yfir manni á fleygiferð inni í rútu,“ segir Valgeir Guðjónsson, Stuðmaður með meiru.

Lífið

Friðrik Ómar eini viðskiptavinur Jógvans

„Friðrik er eini viðskiptavinurinn enda er ég hættur í bili með skærin," segir Jógvan Hansen, fyrrverandi hárgreiðslumaður. Hann stundar nú nám við Keili, háskólann í Reykjanesbæ, á félagsfræðibraut og hefur tekið sér ársleyfi frá hárskerðingum og litun. Samstarfsmaður hans í tónlistinni, Friðrik Ómar, nýtur hins vegar þess heiðurs að vera eini viðskiptavinur Jógvans.

Lífið

Leikherbergi Brads Pitt

Brad Pitt segist ekki hafa orku til að fara út að skemmta sér nú þegar hann er sex barna faðir. Þess í stað býður hann vinum sínum heim til sín þegar hann hefur þörf fyrir félagsskap.

Lífið

Eftirlitsmaðurinn er mættur hingað

Annað kvöld er frumsýning í Nemendaleikhúsi Listaháskóla Íslands. Verkið er nú sett upp í þriðja sinn hér á landi en hefur löngum verið talið eitt öndvegisverk rússneskra leikbókmennta: Eftirlitsmaðurinn eftir Gogol. Þetta er fyrsta verkefni útskriftarhópsins á lokaári: Anna Gunndís Guðmundsdóttir, Hilmar Guðjónsson, Hilmir Jensson, Lára Jóhanna Jónsdóttir, Svandís Dóra Einarsdóttir, Þórunn Arna Kristjánsdóttir og Ævar Þór Benediktsson fara á næsta vori út í lífið.

Lífið

Milljarðar tapast og hundrað störf glatast

Íslensk kvikmyndagerð er í mikilli hættu að mati forsvarsmanna atvinnugreinarinnar ef boðaður niðurskurður í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnar­innar verður að veruleika. Hátt í hundrað störf munu glatast og veltan getur dregist saman um rúma tvo milljarða.

Lífið

Anna Sigga með fyrstu íslensku hárlínuna

„Stóru hárgreiðslufyrirtækin senda reglulega frá sér hárlínur, alveg eins og fatahönnuðir gera. Mér datt í hug að það gæti verið gaman að gera mína eigin línu og ákvað að láta verða af því þar sem þetta er eitthvað sem mér þykir gaman að gera og það hefði verið leiðinlegt ef hugmyndin hefði bara grotnað í hausnum á mér,“ segir Anna Sigríður Pálsdóttir hárstílisti, sem sendi frá sér sína fyrstu hárlínu, Psychobilly, fyrir stuttu.

Lífið

Flytur heim og gerir gott úr hlutunum

Líney Inga Arnórsdóttir útskrifaðist í vor frá Miami-háskóla í Bandaríkjunum með hæstu einkunn á MA-prófi í almannatengslum. Henni hefur verið boðið starf hjá Ketchum, sem er annað stærsta almannatengslafyrirtæki heims, en hertar innflytjendareglur í Bandaríkjunum gera henni ómögulegt að starfa hjá fyrir­tækinu þegar tímabundið landvistarleyfi hennar rennur út.

Lífið

Lennon-veisla í boði Yoko Ono

Á föstudaginn, sem hefði orðið 69 ára afmælisdagur Johns Lennon, verður Friðarsúlan í Viðey tendruð í þriðja sinn. Yoko Ono kemur enn og aftur til landsins og býður ókeypis ferðir til Viðeyjar á föstudaginn og um næstu helgi. Einnig býður hún á tónleika til heiðurs John Lennon í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi sem hefjast kl. 22 á föstudagskvöld.

Lífið

Ekki í herferð gegn Radiohead

Tom Smith, forsprakki bresku hljómsveitar­innar Editors, segist ekki vera í herferð gegn snillingunum í Radiohead, þrátt fyrir að hafa sagt meðlimi hljómsveitarinnar vera sjálfselska í viðtali á dögunum.

Lífið

Guy Ritchie segir Madonnu vera þroskahefta

Guy Ritche, fyrrverandi eigin­maður Madonnu, hrósar og uppnefnir sína fyrrverandi í viðtali í nýjasta tölublaði bandaríska tímaritsins Esquire. Hann byrjar á hrósinu og sagði Madonnu standa fullkomlega jafnfætis konum sem eru tuttugu árum yngri en hún.

Lífið