Lífið
Snæddu saman Gerald Butler og Jessica Simpson sáust snæða saman á veitingastaðnum SoHo House í New York í vikunni. Butler og Jessica sátu til borðs ásamt nokkrum vinum sínum og virtist fara vel á með þeim. „Þau sátu með nokkrum vinum sínum en Jessica og Gerard, sem sátu hlið við hlið, virtust vera í sínum eigin heimi og spjölluðu í marga klukkutíma. Þau hlógu mikið og virtust daðra óspart við hvort annað áður en þau loks yfirgáfu staðinn saman,“ sagði sjónvarvottur. Lífið 27.10.2009 04:00
Íslensk þjóð á amerískum kúr Dómar um Airwaves halda áfram að birtast á erlendum fréttaveitum en fjöldi erlendra blaðamanna dvaldist hér á landi og tók út íslensku tónlistarsenuna. Lífið 27.10.2009 02:00
Fyrsta sólóplata Jóns Tryggva Í byrjun nóvember 2009 mun koma út fyrsta sólóplata, „Silkimjúk er syndin", tónlistarmannsins Jóns Tryggva. Um er að ræða 12 lög og 10 texta á íslensku eftir Jón en tvö lög á plötunni samdi Jón við ljóð eftir Davíð Stefánsson og Stein Steinarr. Lífið 26.10.2009 20:00
Á vakt með sjúkraflutningamönnum Í Íslandi í dag í kvöld taka liðsmenn þáttarins eina vakt með sjúkraflutningamönnum og kynnast hröðu og krefjandi starfi stéttarinnar. Það er ekki auðvelt að vera sjúkraflutningamaður og eins gott að maður sé tilbúinn til þess að takast á við átök af ýmsu tagi. Lífið 26.10.2009 14:02
Mikill missir Vísir hafði samband við tónlistarmennina Björgvin Halldórsson og Jakob Frímann Magnússon sem fengu að kynnast Flosa Ólafssyni leikara sem er féll frá í fyrradag. „Það er mikill missir af Flosa. Hann var sá maður sem setti mikinn svip á samtíðina. Hann sá alltaf skoplegu hliðina á samfélagsmálum," segir Björgvin og heldur áfram: „Við kynntumst fyrir mörgum árum og leiðir okkar lágu oft saman á skemmtunum þar sem ég var að spila og hann var með ræðu kvöldsins sem alltaf sló í gegn. Hann var vinsæll leikari og ræðumaður. Hnyttinn í andsvörum og skemmtilegar maður. Minning hans lifir." „Flosi var hlýr og yndislegur, allra karla kátastur og spaugsamastur. Aldurslaus og alþýðlegur. Frábær samferðamaður í alla staði," svarar Jakob Frímann spurður hvernig Flosi var í hans augum. Lífið 26.10.2009 13:17
Gísli Hvanndal gerir myndband við Álfa Gísli Hvanndal Jakobsson sem sló eftirminnilega í gegn í Idol-Stjörnuleit fyrir nokkrum árum hefur nú gert myndband við lagið Álfa, eftir Magnús Þór Sigmundsson. Útgáfa Gísla af laginu naut nokkurra vinsælda þegar hann gaf lagið út fyrir nokkrum árum en þetta er fyrsta myndbandið sem Gísli gerir. Lífið 26.10.2009 10:29
Klárlega einn mesti húmoristi landsins „Hver man ekki eftir Flosa?," svarar Logi Geirsson handboltakappi aðspurður um hans minningu um Flosa Ólafsson sem féll frá á Landspítalanum í fyrradag, 79 ára að aldri, eftir bílslys í vikunni sem leið. „Fyrsta sem kemur upp í hausinn á mér var þegar hann lék í Stuðmanna myndinni og fór á kostum. Hann var klárlega einn mesti húmoristi landsins svo áratugum skiptir og að mig minnir leikstýrði hann Skaupinu þrisvar sinnum.Það gera það bara snillingar." „Svo hafði faðir minn einstaklega gaman af honum. Ég veit líka eitt að ég mun aldrei gleyma þessu nafni Flosi Ólafsson," segir Logi. Lífið 26.10.2009 09:53
Páll Óskar aleinn á nýrri Jackson-mynd „Þetta var eins og að vera einn með Michael Jackson. Þetta var eins og að fá að taka í spaðann á honum,“ segir Páll Óskar Hjálmtýsson, sem bauðst að sitja einn í lúxussal Smárabíós og horfa á Michael Jackson-myndina This Is It sem verður frumsýnd á miðvikudag. „Það sem manni er efst í huga er þakklæti. Maður er þakklátur fyrir að Michael Jackson hafi verið til og þakklátur fyrir að einhver hafi haft vit á því að taka þessar æfingar upp á filmu,“ segir Palli. Lífið 26.10.2009 08:00
Völuspá Þorvaldar Bjarna Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson hefur látið lítið fyrir sér fara að undanförnu en mun nú brjótast fram á sjónvarsviðið á nýjan leik þegar hljómsveitin Todmobile heldur upp á afmæli sitt 4. nóvember. Lífið 26.10.2009 07:00
Djúpa laugin snýr aftur á næsta ári „Við munum 100% fara í endurgerð á Djúpu lauginni,“ segir Kristjana Brynjólfsdóttir, dagskrárstjóri Skjás eins. Lífið 26.10.2009 07:00
Tískusýning í Fríkirkjunni Hönnuðirnir Thelma Björk Jónsdóttir, Dúsa og Guðjón Tryggvason standa fyrir tískusýningu sem haldin verður í Fríkirkjunni laugardaginn 31. október. Lífið 26.10.2009 06:00
Emilía Ýr sigurvegari knattspyrnumóts NFFG Knattspyrnumót NFFG var haldið með miklu pompi og prakt föstudaginn 23.október. Alls voru átta lið skráð til leiks og verður ekki annað sagt en þau hafi verið æði misjöfn að styrkleika. Skipulag mótsins var til fyrirmyndar en stuðst var við hið víðfræga „skipt í tvo riðla og efstu tvö liðin áfram í hvorum riðli“ fyrirkomulag. Lífið 25.10.2009 19:26
Andrew Lloyd Webber með krabbamein Tónskáldið Andrew Lloyd Webber hefur greinst með krabbamein, að því er fram kemur á vef breska blaðsins Telegraph. Blaðið hefur eftir talsmanni Webbers að krabbameinið sé á byrjunarstigi. Lífið 25.10.2009 16:07
Benjamin Bratt fer aftur í Law & Order Benjamin Bratt hefur ákveðið að ganga aftur til liðs við gömlu félaga sína úr Law & Order. Sem fyrr mun hann leika Rey Curtis rannsóknarlögreglumann. Law & Order eru vinsælir lagadrama þættir sem sýndir hafa verið frá árinu 1990. Lífið 24.10.2009 19:36
Diddú syngur við upphaf Tónlistardaga Dómkirkjunnar Tónlistardagar Dómkirkjunnar hefjast í dag með stórtónleikum Diddúar og Önnu Guðnýjar. Dómkórinn mun svo flytja nýtt verk eftir Martein Hunger organista í Dómkirkjunni. Hátíðarmessa verður svo á morgun klukkan ellefu. Að sögn Diddúar eru tónleikarnir haldnir í tilefni af sjötíu ára afmælis Marteins. Hún mun sjálf syngja lög eftir Edit Piaf og Gunnar Reyni Sveinsson. Lífið 24.10.2009 15:35
Lítið sést til Magnúsar Scheving Magnús Scheving leikur sem kunnugt er aðalskúrkinn í Jackie Chan-myndinni The Spy Next Door. Hlutverkið er nokkuð stórt en myndin skartar auk þeirra tveggja Billy Ray Cyrus, föður unglingastjörnunnar Miley Cyrus, og George Lopez sem áhorfendur Stöðvar 2 ættu að kannast við úr samnefndum gamanþáttum. Lífið 24.10.2009 13:00
Íslandsþáttur 30 Rock slær í gegn Íslandsþáttur bandaríska gamanþáttarins 30 Rock sló heldur betur í gegn þegar hann var frumsýndur vestanhafs á fimmtudagskvöldið. Ef marka má gagnrýnendur á netinu virðist Íslands-tengingin hafa heppnast ótrúlega vel því flestir sjónvarpsrýnar voru sammála um þeir hefðu viljað sjá framhald af henni í næstu þáttum. Semsagt, gott grín á kostnað Íslands. Lífið 24.10.2009 07:00
Halda merki föður síns á lofti Synir Rúnars Júlíussonar, þeir Júlíus og Baldur, halda merki föður síns og útgáfufélagsins Geimsteins á lofti. Nokkrar plötur eru í pípunum. Lífið 24.10.2009 06:00
Gerir plötu fyrir góðærisgróða Ceres 4 gefur á næsta ári út nýja plötu. Hann segir að Merzedes Club hafi hrunið með hagkerfinu. Lífið 24.10.2009 05:00
Til Englands með jólaleikrit „Þetta verður gríðarlega spennandi,“ segir Felix Bergsson, sem er á leiðinni til Liverpool i nóvember þar sem hann flytur einleik sinn Yulelads í Unity-leikhúsinu. „Þetta verða tvær sýningar í Liverpool í mjög fínu leikhúsi þar.“ Einleikurinn, sem fjallar um íslenska jólasiði, er hluti afNICE-menningarhátíðinni þar sem leitast er við að tengja saman menningu Norðurlanda og norðvesturhluta Englands. Lífið 24.10.2009 04:30
Ég er ekki svona ömurlegur sjálfur Rúnar Freyr Gíslason er í tveimur áberandi hlutverkum í íslenskum sjónvarpsþáttum þessa dagana. Lífið 24.10.2009 04:00
Mikið hlegið á Korputorgi Upptökur á sjónvarpsþættinum Hjá Marteini fóru fram á mánudaginn í sérstöku myndveri á Korputorgi. Þátturinn er tekinn upp fyrir framan áhorfendur í sal. Lífið 24.10.2009 03:45
Bjarkareftirherma á íslenskri grínhátíð „Hann tekur Björk, ég hef bara séð það á netinu og það er alveg hryllilega fyndið,“ segir Bjarni Haukur Þórsson, skipuleggjandi fyrstu grínhátíðar Íslands, Reykjavik Comedy Festival. Hátíðin verður í Loftkastalanum og hefst hinn 11. nóvember. Lífið 24.10.2009 03:30
Íslenskar konur sýna Sultan áhuga Hæsti maður heims, Sultan Kösen, hefur vakið stormandi lukku hér á landi. Risinn lenti á Íslandi seint í gærkvöldi og fór beint upp á hótel þar sem hann svaf úr sér flugþreytuna. Hann hefur síðan verið að kynna Heimsmetabók Guiness í dag og hitti meðal annars blaðamenn á Hótel Loftleiðum. Samkvæmt heimildum Vísis hafa nokkrar íslenskar konur haft samband við útgefanda bókarinnar og lýst yfir áhuga á að hitta þennan magnaða mann. Lífið 23.10.2009 17:30
Friðrik jafnar fermingardrenginn „Ég vildi gera eitthvað gott við peningana mína,“ segir hinn ungi og efnilegi Ágúst Ingason. Lífið 23.10.2009 06:00
Gaddfreðnir Westlife-liðar í tískufötum uppi á jökli Strákarnir í Westlife tóku upp myndband á Íslandi í vikunni. Myndbandið verður að líkindum frumsýnt í sjónvarpsþættinum X-Factor sem milljónir horfa á í hverri viku. Lífið 23.10.2009 05:00
Íslenskar Frostrósir fluttar út til Noregs og Svíþjóðar „Við erum engir útrásarvíkingar. Við erum bara að flytja út það sem við kunnum best,“ segir Samúel Kristjánsson, einn af skipuleggjendum Frostrósa-tónleikanna. Lífið 23.10.2009 04:00
Önnur þáttaröð af Rétti í tökur „Ég held að fyrsta serían hafi sýnt það og sannað að hún hefði ákveðna spádómsnáðargáfu,“ segir Sigurjón Kjartansson, einn handritshöfunda sjónvarpsþáttanna Réttur. Hann vísar þar til þess að í fjórða þætti fyrstu þáttaraðarinnar var tekið fyrir mansalsmál en fyrsta mál þeirra tegundar er nú fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur og ámóta mál kom nýverið upp í Reykjanesbæ. Lífið 23.10.2009 03:30
Dregið í fyrstu tvær umferðir MORFÍS Í fyrradag, þriðjudaginn 20. október, fór fram dómaranámskeið stjórnar MORFÍS og tókst það með ágætum. Fyrir námskeiðið fór hinsvegar fram dráttur liða í fyrstu tvær umferðir keppninnar í ár. Skráð lið í ár eru 19 talsins og því keppa sex lið í 32 liða úrslitum, meðan þrettán keppnislið fara beint í 16 liða úrslit, þeirra á meðal þau fjögur lið sem komust í undanúrslit í fyrra. Lífið 22.10.2009 16:14
Sléttur magi svíður - myndir „Kviðæfingar þessar gömlu góðu, liggjandi á dýnu henta flestum best og muna að gera kviðæfingar fyrir efri-neðri og hliðarvöðvana," segir Gauja Rúnarsdóttir einkaþjálfari.. Lífið 22.10.2009 15:32