Lífið

Skilnaður engin lausn

Will Smith og leikkonan Jada Pinkett Smith hafa verið gift í tíu ár og eiga saman tvö börn. Will á að baki stutt hjónaband með Sheree Zampino og á með henni son, Willard Smith, kallaður Trey, sem er 15 ára.

Lífið

Grímur Atlason gefur út plötu

Bæjarstjóri Íslands og þroskaþjálfinn Grímur Atlason og þúsundþjalalæknirinn Lýður Árnason eru forsprakkarnir í hljómsveitinni Grjóthrun í Hólshreppi, sem nú sendir frá sér sína fyrstu plötu.

Lífið

Burt með tölvuna ef unglingur hefur ekki stjórn

Þegar ástandið er orðið þannig að unglingarnir ná ekki að hafa stjórn á tölvunotkun sinni er eitt og bara eitt að gera. Það er að taka tölvuna burt úr lífi þeirra, punktur," segir Hugo Þórisson sálfræðingur.

Lífið

Ekki bara hommabúð

„Beggi og Pacas voru eins og krakkar í nammibúð þegar þeir komu í búðina til okkar og spurðu hvort þeir mættu nota fotin frá okkur í sjónvarpinu. Við sögðum auðvitað alveg sjálfsagt enda eru þeir mjög klæðilegir í þessum fötum."

Lífið

Ný plata Sigur Rósar kemur 23. júní

Ný plata Sigur Rósar sem mun koma út þann 23. júní næstkomandi ber titilinni Með suð í eyrum við spilum endalaust. Myndband með titillagi plötunnar er væntanlegt í kvöld.

Lífið

Ný bók um Bond væntanleg

Ný bók um leyniþjónustumanninn James Bond kemur út á næstunni. Um 40 ár eru liðin síðan síðasta bókin eftir Ian Fleming kom út

Lífið

Sydney Pollack er látinn

Hollywoodleikstjórinn Sydney Pollack lést úr krabbameini í gær. Hann var 73 ára gamall. Pollack var einna þekktastur fyrir myndina Tootsie, sem skartaði Dustin Hoffman í aðalhlutverki. Hann hlaut Óskarsverðlaun fyrir myndina "Out of Africa" árið 1985.

Lífið

Idol-Davíð orðinn einkaþjálfari

Davíð Smári Harðarson, sem sló eftirminnilega í gegn í Idol stjörnuleit um árið útskrifaðist í dag sem einkaþjálfari. „Ég var að útskrifast sem ÍAK einkaþjálfari og er einmitt búinn að skrifa undir samning við þjálfun.is,“ segir Davíð, sem kemur til með að þjálfa í Sporthúsinu.

Lífið

Landfræðileg kosning í Eurovision

Það fór væntanlega ekki framhjá mörgum sem horfðu á Eurovision síðastliðið laugardagskvöld hvaðan sigurvegarinn, hinn rússneski Dima Bilan, fékk flest sín atkvæði. Nær öll lönd sem eiga landamæri að Rússlandi gáfu landinu tólf stig.

Lífið

Eurovisionkynnir brjálaður yfir niðurstöðum keppninnar

Breski Eurovisionkynnirinn Terry Wogan er hreint alls ekki hress með niðurstöðu keppninnar þetta árið. Í viðtali skömmu eftir að ljóst var að hinn fáklæddi Dima Bilan hefði unnið sagði Wogan, sem hefur lýst keppninni frá árinu 1973, að hann þyrfti að velta því fyrir sér af mikilli alvöru hvort hann vildi taka þátt að ári. Hið sama ættu Vestur-evrópskar þjóðir að gera, því möguleikar þeirra á sigri í keppninni færu þverrandi.

Lífið

Elmo væntanlegur á Reðursafnið

Sigurður Hjartarson, forstöðumaður Reðursafnsins á Húsavík var í forvitnilegu viðtali á BBC World Service í morgun. Þar fór hann yfir sögu þessa merkilega safns og minntist á mann nokkurn sem hefur ánafnað safninu getnaðarlim sinn. Fleiri hafa raunar gert slíkt hið sama og lofað Sigurði lim sínum eftir sinn dag, en Stan nokkur Underwood bætir um betur, því hann ætlar að senda Sigurði liminn áður en hann deyr. Stan er við hestaheilsu, um sextugt og limur hans gengur víst undir nafninu Elmo.

Lífið

Kompás í Kambódíu

Um helmingur kambódísku þjóðarinnar eru undir 25 ára aldri. Um 50.000 börn eru án menntunar sem jafngildir fjölda allra grunnskólabarna á Íslandi. Kambódía á sér mikla en átakanlega sögu. Þriggja áratuga stíð setti mark sitt á þjóðina en friður komst á í landinu fyrir níu árum.

Lífið

Brangelina kaupir fimm milljarða hús á Rívíerunni

Angelina Jolie og Brad Pitt hafa fjárfest í villu undir fjölskylduna á frönsku Rívíerunni. Húsið er engin smásmíð - 35 herbergi - og kostaði litlar 35 milljónir punda, eða sem samsvarar fimm milljörðum króna. Parið því auðveldlega bætt töluvert í barnahópinn, sem telur sex grislinga eftir að Angelina fæðir tvíbura í ágúst.

Lífið

Nýtt myndband Leoncie: „Enginn Þríkantur Hér“

Indverska prinsessan Leoncie hefur sent frá sér nýtt myndband við lagið, Enginn Þríkantur hér. Lagið er sungið á íslensku en með enskum texta og útleggst sem, No threesome here, á ensku. Myndbandið er fjölbreytt og óhætt að segja að prinsessan fari óhefðbundnar leiðir.

Lífið

Lohan og vinkona í innilegum stellingum

Lindsay Lohan og vinkona hennar, plötusnúðurinn Samantha Ronson, vöktu töluverða athygli á kvikmyndahátíðinni í Cannes um helgina. Þær mættu í partý á snekkju P. Diddy á fimmtudaginn og voru meira en lítið vinalegar, héldust í heldur og föðmuðust og kysstust allt kvöldið.

Lífið

Sólheimar kaupa átta geitur í Suður Afríku

Íbúar Sólheima í Grímsnesi og styrktarsjóður heimilsins hafa fest kaup á átta geitum handa heimili í Suður Afríku. Guðmundur Ármann Pétursson forstöðumaður segir kaupin á geitunum kærkomin fyrir íbúa heimilisins sem er í einu fátækasta hverfi landsins.

Lífið