Erlent

Bush ætlar að bíða eftir skýrslu Petraeus

George W. Bush ætlar sér að bíða eftir skýrslu frá yfirhershöfðingja Bandaríkjanna í Írak áður en hann tekur ákvörðun um hvort að breytt verði um stefnu í Íraksstríðinu. Þá sagði hann að al-Kaída væri ekki jafn burðugt og það var fyrir árásirnar í Bandaríkjunum. Smellið á „Spila“ til þess að sjá myndbrot frá fréttamannafundi Bush í dag.

Erlent

Sjö alvarlega slasaðir eftir nautahlaup dagsins

Sjö manns slösuðust alvarlega í nautahlaupi í Pamplona í morgun og nokkrir til viðbótar urðu sárir. Hlaupið entist í rúmar sex mínútur í stað rúmlega tveggja eins og vaninn er þar sem nautin skildust að, sneru við og gerðu í raun allt sem þau eiga ekki að gera. Smellið á „Spila“ hnappinn til þess að sjá myndir frá hlaupinu í morgun.

Erlent

Svört bráðabirgðaskýrsla um Írak

Íröskum stjórnvöldum hefur aðeins tekist að ná innan við helmingi þeirra markmiða sem Bandaríkjaþing setti um leið og fé var veitt til að fjölga í herliði Bandaríkjamanna í Írak. Þetta er niðurstaða bráðabirgðaskýrslu sem kynnt verður á Bandaríkjaþingi í dag. Enn fjölgar í hópi flokksfélaga Bush Bandaríkjaforseta sem vill að bandarískt herlið verði kallað heim.

Erlent

Sex látnir í snjóflóði í Svissnesku Ölpunum

Í það minnsta sex manns eru látnir eftir að snjóflóð féll í Svissnesku Ölpunum um áttaleytið í morgun. Þetta hafa þarlend blöð eftir hjálparstarfsmönnum. Tvö þriggja manna lið fjallgöngumanna grófust undir flóðinu í suðurhlíðum Jungfreu fjallsins um níutíu kílómetra suð austur af höfuðborg Sviss, Bern.

Erlent

Hæsti maður heims giftir sig

Heimsins hæsti maður, Bao Xishun, gifti sig við hefðbundna athöfn í Mongólíu í nótt. Bao, sem er 2,36 metrar á hæð og 56 ára, giftist þá konunni Xia Shuijan, sem er 28 ára og 1,67 metrar á hæð. Giftingin fór síðan fram í grafhýsi Kublai Khan. Smellið á „Spila“ hnappinn hér að neðan til þess að sjá myndir frá brúðkaupinu.

Erlent

Vilja kynjakvóta í læknanám

Radikale venstre stjórnmálaflokkurinn í Danmörku vill nota kynjakvóta til að auka hlut karla í læknanámi, en þeir eru í miklum minnihluta þeirra sem hefja nám í læknisfræði þar. Rök flokksins eru að konur sérhæfi sig helst í greinum á borð við heimilis- eða barnalækningar. Því sé útlit fyrir skort á læknum í þeim greinum sem karlmenn sækja frekar í, líkt og skurðlækningar. Háskólayfirvöldum í Kaupmannahafnarháskóla lýst illa á hugmyndirnar. Þau benda á að vandamálið sé fyrst og fremst fólgið í því að drengir spjari sig verr í skólakerfinu en stúlkur, og það þurfi að leysa.

Erlent

Vatn finnst í fyrsta skipti utan sólkerfisins

Vísindamenn hafa fundið vatn utan sólkerfisins, í fyrsta skipti svo óyggjandi sé. Vatnið greindist í gufuðu formi á reikisstjörnunni HD189733b sem svipar til Júipíters og er í 63 ljósára fjarlægð frá jörðu.

Erlent

F.B.I. rannsakar myndband þar sem grunur er á að 2 ára stelpa sé undir áhrifum alsælu

Alríkislögreglan í Bandaríkjunum er að hjálpa yfirvöldum í Houston, Texas þar sem verið er að athuga hvort að glæpur hafi verið framinn þegar hópur ungra kvenna tóku upp myndband af smábarni þar sem það sat á gólfi í aftursæti bíls. Konurnur hlógu óspart að barninu og gáfu í skyn að barnið, sem er tveggja ára stúlkubarn, væri undir áhrifum alsælu.

Erlent

Stuðningsmenn Ghazi vilja heilagt stríð

„Al Jihad, al Jihad," eða „Heilagt stríð, heilagt stríð," ómaði um þegar klerkurinn úr Rauðu Moskunni, Abdul Rashid Ghazi, var jarðaður í morgun. Hann lést í áhlaupi pakistanska hersins á moskuna.

Erlent

Ári of snemma

Manni sem flaug frá Kanada til Bretlands til að vera viðstaddur brúðkaup vinar síns brá í brún þegar hann komst að því að hann mætti ári of snemma. Vinur mannsins bauð honum fyrr á árinu í brúðkaupið, sem átti að vera sjötta júlí. Hann gleymdi hinsvegar að minnast á að það væri júlí á næsta ári. Maðurinn, sem er kennari í Toronto, eyddi rúmum sextíu þúsund krónum í flugmiðann. Hann sagði við BBC fréttastofuna að vinir sínur skemmtu sér konunglega yfir klúðrinu.

Erlent

Engin áhrif á hlýnun jarðar

Virkni sólarinnar hefur engin áhrif haft á hlýnun andrúmsloftsins hér á jörðinni síðustu áratugina. Þvert á móti, því virkni sólarinnar hefur minnkað nokkuð síðustu tuttugu árin, en á þeim tíma hefur hitinn í andrúmsloftinu hækkað.

Erlent

Evrópusambandið á móti því að nota launmorðingja

Evrópusambandið styður ekki þá hugmynd að beita launmorðingjum í baráttunni gegn hryðuverkum. Dómsmálaráðherra sambandsins, Franco Frattini, skýrði frá þessu í morgun. Hann var að svara hugmynd þýska innanríkisráðherrans Wolfgang Schaeuble, sem sagði í viðtali um helgina að skýra þyrfti hvenær stjórnarskrár heimiluðu ríkjum að elta uppi og myrða hryðjuverkamenn.

Erlent

Geðsjúkir fangar fengu lykil að klefum sínum

Fimm geðsjúkir fangar sluppu í lok júní úr fangelsi á Jótlandi. Extra blaðið greinir frá þessu. Þeim var óvart gefinn master lykill að réttargeðdeildinni í Árósum og skruppu í kjölfarið til Hamborgar á kvennafar. Mennirnir sátu inni fyrir rán og ofbeldisbrot og þóttu hættulegir. Einn þeirra stakk geðlækninn sinn árið 2002. Tæknimenn sem skiptu um lása í klefum fanganna létu þá óvart hafa lykla sem gengu að öllu lásum á deildinni þeirra.

Erlent

Hvítlaukur við vindgangi

Vísindamenn við háskólann í Wales sem rannsaka áhrif vindgangs búfénaðar á hlýnun jarðar hafa dottið niður mögulega lausn – að fóðra hann á hvítlauk.

Erlent

Lady Bird Johnson látin

Lady Bird Johnson, ekkja Lyndons B. Johnson, lést á heimili sínu í Austin, Texas í kvöld. Hún var 94 ára gömul. Forsetafrúin var virt og dáð af fjölmörgum Bandaríkjamönnum. Lady Bird tók virkan þátt í stjórnmálastörfum eignimanns síns. Hann var þingmaður, varaforseti Bandaríkjanna 1960-1963 og tók við forsetaembættinu við andlát Kennedys. Hann var forseti til ársins 1969.

Erlent

Lestir skullu saman í Aþenu

Tugir særðust þegar farþegalest og flutningalest skullu saman í Aþenu í morgun. Að sögn lögreglu hefur flestum farþegunum verið náð út úr lestunum. Farþegalestin var á leið til miðborgar Aþenu full af fólki á leið til vinnu, þegar hún skall á flutningalestinni. Ekki urðu alvarleg slys á fólki. Ekki er vitað hvað olli slysinu.

Erlent

Al-Kaída nær fyrri styrk

Leyniþjónustumenn í Bandaríkjunum telja að al-Qaida hafi náð álíka styrk og rétt fyrir hryðjuverkaárásirnar 2001, samkvæmt heimildum AP fréttastofunnar. Þetta kemur fram í leyniskýrslu um mat á þjóðaröryggi, sem verður rædd á fundi í Hvíta húsinu á morgun.

Erlent

Átökum um rauðu moskuna lokið

Pakistanski herinn vann í gær endanlegan sigur á herskáum múslimum í rauðu moskunni í Íslamabad. Engin lík af konum eða börnum sögð hafa fundist í moskunni. Átökin um moskuna hafa kostað meira en 80 manns lífið.

Erlent

Dauðadómar staðfestir

Hæstiréttur í Líbíu staðfesti í gær dauðadóma frá undirrétti yfir fimm búlgörskum hjúkrunarfræðingum og palestínskum lækni, sem sögð voru sek um að hafa smitað meira en 400 börn af alnæmisveirunni.

Erlent

Konur vilja vöðvastælta menn

Stæltir karlmenn eiga fleiri bólfélaga en þeir horuðu. „Konum er það eðlislægt að vilja frekar vöðvastælta menn,“ segir David Frederick frá Kaliforníuháskóla í Los Angeles. Hann stýrði rannsókn á því hverju konur laðast að við útlit karlmanna og var þetta niðurstaðan.

Erlent

Fjórir lífstíðardómar felldir

Fjórir menn á þrítugsaldri hafa verið dæmdir í lífstíðarfangelsi fyrir að ætla að fremja hryðjuverk í Lundúnum hinn 21. júlí árið 2005, tveimur vikum eftir að 52 manns dóu í sjálfsmorðsárásum í borginni.

Erlent

Geispinn kælir heilann

Geispi er ekki ábending um súrefnisskort eins og margir halda. Ný rannsókn sálfræðinga við Albany Háskólann í New York-ríki bendir til þess að geispi sé ekki ábendig um súrefnisskort eins og almennt hefur verið álitið. Sálfræðingarnir rannsökuðu 44 nemendur og komust að því að með því að geispa berist kalt loft til heilans og kælir hann þannig að auðveldara er fyrir viðkomandi að halda sér vakandi.

Erlent

Frjáls eftir 155 daga í haldi

Þýskri konu, sem var rænt ásamt syni sínum af uppreisnarhópi í Írak fyrir 155 dögum, var sleppt á þriðjudaginn. Sonur hennar er enn í haldi.

Erlent

Lady Bird Johnson látin

Lady Bird Johnson, ekkja Lyndons B. Johnson, lést á heimili sínu í Austin, Texas í kvöld. Hún var 94 ára gömul. Forsetafrúin var virt og dáð af fjölmörgum Bandaríkjamönnum.

Erlent

Vinsældir Bjerregaards dvína

Ritt Bjerregaard, borgarstjóri í Kaupmannahöfn, lofaði 5000 nýjum félagslegum íbúðum fyrir 55 þúsund íslenskar krónur á mánuði. Tæpum tveimur árum seinna hefur hún ekki efnt kosningaloforðið.

Erlent

Styrkur al-Qaida mikill

Leyniþjónustumenn í Bandaríkjunum telja að al-Qaida hafi byggt upp styrk sem álíka mikill og hann var rétt fyrir hryðjuverkaárásirnar 2001, samkvæmt heimildum AP fréttastofunnar.

Erlent

Bandaríkjaforseti bannar fyrrverandi aðstoðarmanni sínum að bera vitni

George Bush, forseti Bandaríkjanna, hefur skipað fyrrverandi ráðgjafa sínum, Harriet Miers, að neita því að koma fyrir þingnefnd fulltrúadeildar bandaríska þingsins. Miers á að vitna um uppsagnir alríkissaksóknara. Annar fyrrverandi aðstoðarmaður Bush, Sara Taylor, vitnaði fyrir þingnefndinni í dag.

Erlent