Erlent

Þremur suður-kóreskum gíslum sleppt

Talíbanir hafa látið lausar þrjá suður-kóreskar konur úr hópi nítján gísla sem teknir voru fyrir rúmum mánuði. Stjórnvöld í Suður-Kóreu greindu frá því í gær að þau hefðu náð samkomulagi við Talíbani um lausn gíslanna.

Erlent

Lýstur saklaus eftir 48 ára gamlan dóm

Áfrýjunardómstóll í Kanada breytti í gær fjörutíu og átta ára gömlum dómi í morðmáli. Fjórtán ára gamall drengur, Steven Truscott var dæmdur til dauða árið 1959 fyrir að myrða bekkjarsystur sína.

Erlent

Íranskir fangar látnir lausir

Bandaríski herinn hefur látið lausa sjö Írani sem handteknir voru á Sheraton Ishtar hótelinu í miðborg Bagdads í nótt. Mennirnir voru handteknir eftir að George Bush Bandaríkjaforseti gagnrýndi afskipti Írana af Írak. Hann hefur sakað Írani um að sjá herskáum síja múslimum í Írak fyrir vopnum, fjármagni og herþjálfun.

Erlent

Herforingi í Chile fær lífstíðardóm

Hæstiréttur í Chile hefur staðfest lífstíðardóm yfir fyrrverandi herforingja í Chile fyrir þátt hans í að myrða tólf andstæðinga Ágústus Pinochets. Hugo Salas Wenzel, sem fór fyrir leyniþjónustunni, er fyrsti yfirmaðurinn í her Pinochets sem fær lífstíðardóm fyrir mannréttindabrot. Mennirnir sem voru drepnir höfðu tekið þátt í misheppnaðri tilraun til að ráða Pinochet af dögum í september 1986.

Erlent

Opinn fyrirlestur hjá ÍE

Í dag mun Dr. Octavi Quintana Trias, yfirmaður heilsurannsóknarsviðs Evrópusambandsins, halda opinn fyrirlestur um evrópskar heilsurannsóknir í fyrirlestrasal Íslenskrar erfðagreiningar að Sturlugötu 8 kl. 16.30. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku.

Erlent

Mafíumorðalda sem hófst með eggjakasti

Sex Ítalir voru drepnir í Duisburg í fæðardeilu milli hópa í Ndrangheta-glæpasamtökunum frá Kalabríu á Suður-Ítalíu. Þýska lögreglan gerði húsleit á tugum heimila. Hinir myrtu voru jarðsettir fyrir helgi. Morðingjarnir eru enn ófundnir.

Erlent

Ópíumrækt eykst stjórnlaust

Ópíumrækt í Afganistan hefur stóraukist á árinu. Milljarða Bandaríkjadala velta er af viðskiptum með uppskeruna, sem notuð er til heróínframleiðslu. Þeir sem reka þessi viðskipti eru talibanar og spilltir embættismenn ríkisstjórnar Hamids Karzais forseta. Þetta er fullyrt í nýrri skýrslu Eiturlyfja- og glæpastofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNODC.

Erlent

Lögregla viðurkenni mistök

Martti Ahtisaari, fyrrverandi forseti Finnlands, sagði í gær að öryggislögreglu landsins hefði væntanlega orðið á mistök er hún sakaði fyrrverandi aðstoðarmann sinn um njósnir fyrir austur-þýsku leyniþjónustuna Stasi á áttunda áratugnum, og ætti að gangast við þeim.

Erlent

Svörtu kassarnir fundnir

Svörtu kassarnir tveir úr farþegaþotunni sem hrapaði í hafið úti af ströndum Indónesíu á nýársdag eru fundnir. Í kössunum eru upplýsingar um ferðir vélarinnar og upptaka af því sem sagt var í stjórnklefa. Vonast er til að það varpi ljósi á hvað olli slysinu, sem varð 102 mönnum að bana.

Erlent

Gül heitir að virða hin veraldlegu gildi

Hinn trúarlega sinnaði stjórnarflokkur Tyrklands fagnaði mikilvægum sigri í gær er frambjóðandi hans, Abdullah Gül utanríkisráðherra, var kjörinn forseti lýðveldisins. Hann hét því að virða veraldlegar hefðir þess og gæta hlutleysis.

Erlent

Æska sem lukkudýr SS

Alex Kurzem, sem flutti til Ástralíu árið 1949, sagði hálfri öld síðar fjölskyldu sinni sannleikann um ótrúlega æsku sína. Sú saga er nú komin út á bók.

Erlent

Grunur um mannát í Vín

Lögregla í Vínarborg greindi frá því í gær að hún væri að yfirheyra mann sem grunaður er um að hafa myrt annan heimilislausan mann og hugsanlega lagt sér innyfli hans til munns.

Erlent

Yfirmaður í Abu Ghraib sýknaður af ákæru

Herréttur í Maryland í Bandaríkjunum sýknaði í dag bandarískan herforingja sem ákærður var fyrir að bera ábyrgð á misþyrmingum á föngum í Abu Ghraib fangelsinu í Írak. Maðurinn, Steven Jordan, var eini yfirmaðurinn sem kallaður var til ábyrgðar vegna hneykslisins.

Erlent

Forsvarsmenn Parken vilja 80 milljónir í bætur

Danska fótboltabullan sem hljóp inn á völlinn í leik Dana og Svía í júní síðastliðinn og sló til dómara leiksins á yfir höfði sér 80 milljóna króna sekt. Það er rekstraraðili Parken leikvangsins sem fer fram á skaðabæturnar.

Erlent

52 tveir látnir eftir bardaga í Kerbala

52 létust og 260 slösuðust í hörðum bardögum í írösku borginni Kerbala í dag. Þar börðust öryggissveitir stjórnvalda við byssumenn en í borginni fer nú fram trúarhátíð sjíta í borginni. Hundruð þúsunda pílagríma hafa komið til borgarinnar síðustu daga.

Erlent

Slæður umdeildar í Tyrklandi

Abdullah Gul var í dag kjörinn forseti Tyrklands, í atkvæðagreiðslu á tyrkneska þinginu. Gul var áður framarlega í flokki íslamista í Tyrklandi, en hann hefur heitið því að styðja áframhaldandi aðskilnað ríkis og trúar í landinu.

Erlent

Brann lifandi með fjórum börnum sínum

Tugir manna hafa farist í skógareldunum í Grikklandi og margir eiga um sárt að binda. Sérstaklega þykir þó sorgleg saga 37 ára gamallar móður sem reyndi að flýja eldana ásamt fjórum börnum sínum. Hún átti heima í Aþenu en var í heimsókn hjá móður sinni í smáþorpinu Artemida sem er um 330 kílómetra suðvestur af höfuðborginni.

Erlent

Slegist um boðskort á minningarathöfn um Díönu

Hatrammur slagur geisar nú um það í Bretlandi að fá boðskort í minningarathöfn um Díönu prinsessu. Þá eru liðin tíu ár frá dauða hennar. Þannig hringdi fyrrverandi bryti hennar öskureiður í skipuleggjendurna þegar hann fékk ekkert kort. Paul Burrell taldi sig trúnaðarvin hennar. Hann hefur hinsvegar makað krókinn vel á bókum sem hann hefur skrifað um þjónustu sína.

Erlent

Ahmadinejad vill aðstoða í Írak

Mahmoud Ahmadinejad forseti Írans sagði í dag að máttur Bandaríkjanna Írak færu þverrandi og að Íran væri tilbúið að leggja sitt lóð á vogarskálarnar.

Erlent

Ryanair rukkar meira

Flugfélög hafa löngum verið lagin við að finna sér matarholur. Lággjaldafyrirtækið Ryanair er nú búið að finna enn eitt gjaldið til þess að leggja á farþega sína. Frá og með tuttugusta september verða farþegarnir að greiða 200 króna aukagjald fyrir að fá að fara um borð í flugvélina sem þeir eiga að ferðast með.

Erlent

Chavez breytir sólarhringnum

Hugo Chavez, forseti Venesúela ætlar að breyta sólarganginum fyrir fátæka þegna sína. Eða þannig. Þann fyrsta september næstkomandi seinkar Venesúela klukkunni um hálftíma. Með því segjast stjórnvöld styðja við réttlátari dreifingu sólargeislanna á ríka og fátæka.

Erlent

Abdullah Gul nýr forseti Tyrklands

Tyrkneska þingið kaus rétt í þessu fyrrverandi íslamistann Abdullah Gul sem forseta landsins. Gul hefur undanfarin ár gegnt embætti utanríkisráðherra fyrir AK flokkinn. Frá árinu 2002, þegar AK flokkurinn komst til valda, hefur hann sannað sig sem öflugan diplómat og meðal annars verið í fararbroddi í viðræðum um inngöngu Tyrklands í Evrópusambandið.

Erlent

Talibanar tala aftur um afdrif gísla

Fulltrúar talibana og Suður-kóreustjórnar hófu samningaviðræður á ný í morgun um afdrif nítján gísla frá Suður-Kóreu, sem talibanar hafa í haldi í Afganistan.

Erlent