Erlent
Bandaríkjamenn styðja stofnun Palestínuríkis Bandaríkjamenn eru reiðubúnir að styðja stofnun sjálfstæðs Palestínuríkis. Þetta kom fram í máli Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna,í Ísrael í gær. Sagði hún ennfremur að aðeins með stofnun sjálfstæðs palestínuríkis sé hægt að tryggja frið fyrir botni Miðjarðarhafs. Erlent 16.10.2007 07:03
Írakar biðja Tyrki að hugsa sig um Íraska stjórnin hvatti Tyrki í dag til að hætta við yfirvofandi sókn gegn kúrdískum skæruliðum yfir landamæri Tyrklands og Íraks. Erlent 15.10.2007 18:10
Pútin fer til Írans í fyrramálið Pútin Rússlandsforseti ætlar að fara til Írans í fyrramálið, þó að njósnir hafi borist um að þar verði setið um líf hans. Pútin var í Þýskalandi í dag og búist var við að hann færi til Írans í kvöld. Því var þó frestað til morguns. Erlent 15.10.2007 18:09
Bíll Díönu gæti hafa lent í árekstri Bíllinn sem Díana prinsessa var í þegar hún lést gæti hafa rekist á annan stóran og dökkan bíl þegar hann keyrði inn göngin í París. Þetta eru upplýsingar vitna við réttarrannsókn á dauða Díönu og Dodi Fayed. Erlent 15.10.2007 16:57
Vírus strádrepur seli Óþekktur vírus hefur í sumar og haust drepið á þriðja þúsund seli í Kattegat og Skagerrak. Erlent 15.10.2007 16:33
"Ruglaði" barnaníðingurinn í Taílandi Alþjóðalögreglan Interpol telur sig hafa fundið barnaníðing sem birti myndir á internetinu af sjálfum sér þar sem hann misnotaði ung börn í Kambodíu og Víetnam. Maðurinn er talinn vera breskur enskukennari sem nú er í Taílandi. Hann hafði ruglað andlit sitt, en Interpol beitti sömu aðferð til að afrugla andlit hans. Erlent 15.10.2007 15:53
Serbar draga lappirnar í málum stríðsglæpamanna Yfirsaksóknari stríðsglæpadómstóls Sameinuðu þjóðanna í Haag, sagði í dag að samvinna serbneskra stjórnvalda hefði skánað nokkuð á síðasta ári, en væri samt ekki nógu góð. Erlent 15.10.2007 14:43
Tyrkir halda fast við innrás í Írak Tyrkneskur hershöfðingi sagði í dag að of snemmt sé að segja til um nákvæmlega hvenær verður ráðist inn í Írak eða hversu miklum herafla verði beitt. Erlent 15.10.2007 14:25
Hrukkukrem virka ekki Árum saman hefur fólk trúað því að dýru fínu hrukkukremin væru betri en þau ódýru. Það er rangt, ef marka má nýlega rannsókn í Svíþjóð. Erlent 15.10.2007 13:46
A380 afhent Evrópski flugvélaframleiðandinn Airbus afhenti Singapore Airlines í morgun fyrstu A380 risaflugvélina. Framleiðsla á vélinni hefur verið langt frá því átakalaus. Erlent 15.10.2007 12:04
Óvíst um för Pútins til Írans Rússneskir embættismenn segjast nú vera óvissir um hvort Pútin forseti haldi sig við fyrirhugaða heimsókn til Írans. Pútin er núna í Þýskalandi, þar sem hann hefur verið að ræða við Angelu Merkel kanslara. Erlent 15.10.2007 12:04
Hu vill leggja áherslu á umhverfisvernd Kínverjar ætla á næstu fimm árum að leggja ofurkapp á umhverfisvernd, sem forseti landsins segir að sé nauðsynlegt til að kínverska þjóðin lifi af. Erlent 15.10.2007 12:02
Hvernig er að deyja? Flest okkar hafa líklega velt því fyrir sér hvernig það sé að deyja. Vísindamenn hafa nú rannsakað málefnið og upplýst bæði ógnvekjandi og heillandi staðreyndir um dauðann. Í nýjasta tölublaði tímaritsins New Scientist birtist niðurstaða hóps vísindamanna um mismunandi upplifun á því að komast yfir móðuna miklu, allt frá því að vera brenndur lifandi til þess að vera hálshöggvinn. Erlent 15.10.2007 11:59
Þrír fá Nóbelsverðlaun í hagfræði Bandaríkjamennirnir Leonid Hurwicz, Eric Maskin og Roger Myerson fá Nóbelsverðlaunin í hagfræði í ár. Frá þessu greindi sænska nóbelsakademían í morgun. Verðlaunin fá þremenningarnir fyrir að hafa lagt grundvöllinn að kenningu um kerfisskipulagningu markaða. Erlent 15.10.2007 11:33
Báturinn er bambusstöng Ný vatnsíþróttagrein hefur litið dagsins ljós í Kína en það er sigling á bambusstöng. Það voru íbúar í þorpinu Chishui, nálægt borginni Zuity, sem fundu þessa íþróttagrein upp og æfa sig í henni á Pinzhou ánni. Erlent 15.10.2007 11:04
Sakaður um að gefa Saddam vindla Bandarískur fangavörður Saddams Hussein mætir fyrir rétt í dag fyrir það meðal annars að hafa gefið hinum fallna einræðisherra kúbverska vindla. Erlent 15.10.2007 11:02
Réttað yfir hryðjuverkamönnum í Belgíu Réttarhöld yfir sex einstaklingum sem eru sakaðir um hryðjuverkastarfsemi hófust í Brussel í Belgíu í dag. Hópurinn er talinn tengjast sjálfsmorðssprengjuárásum í Írak og er fólkið ennfremur sakað um að hafa notað Belgíu sem þjálfunarmiðstöð fyrir samtök herskárra múslima. Erlent 15.10.2007 10:25
Segja vel falsaða evruseðla í umferð í Danmörku Lögregluyfirvöld í Danmörku hafa áhyggjur af fölsuðum evruseðlum sem hugsanlega eru í umferð þar og víðar í Evrópu. Erlent 15.10.2007 10:07
Handtekinn fyrir að þykjast vera lögregluþjónn Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn í gær í bænum Holstebro í Danmörku fyrir að þykjast vera lögregluþjónn. Maðurinn hafði breytt hvítri Volvo bifreið í lögreglubíl og ekið um götur bæjarins. Erlent 15.10.2007 09:40
Bauð upp á myglaðan og útrunninn mat Eigandi veitingahúss í bænum Haderslev í Danmörku fékk þann vafasama heiður í gær að greiða eina hæstu sekt sögunnar þar í landi fyrir óhreinlæti. Maturinn sem var á boðstólnum var ekki talinn hæfur til manneldis. Erlent 15.10.2007 08:02
Svíar bestir í að hjálpa innflytjendum Svíar standa sig best í því að hjálpa innflytjendum að koma sér fyrir í hinu nýja samfélagi en Lettar verst. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem Evrópusambandið lét gera. Erlent 15.10.2007 07:24
Sautján hryðjuverkamenn handteknir á Nýja Sjálandi Lögregluyfirvöld á Nýja Sjálandi handtóku í morgun sautján manns í viðamiklum lögregluaðgerðum sem beindust gegn hryðjuverkastarfsemi þar í landi. Erlent 15.10.2007 07:21
Forseti Kína sakar embættismenn um spillingu Kínverski kommúnistaflokkurinn hefur brugðist væntingum kínverja að mati Hu Jintao, forseta Kína. Þetta kom fram í ræðu forsetans á sautjánda flokksþingi kínverska kommúnistaflokksins í Peking í gær. Erlent 15.10.2007 07:17
Þrjátíu láta lífið í sprengingu á Indlandi Að minnsta kosti þrjátíu létu lífið eftir að sprengja sprakk í kvikmyndahúsi í Punjab héraði á Indlandi í gær. Mörg hundruð manns voru í kvikmyndahúsinu og greip um sig mikil skelfing þegar sprengjan sprakk. Erlent 15.10.2007 07:06
Byssurnar tala og leiðtogar deila í Írak Á fjórða tug manna hefur látið lífið í ofbeldisverkum í Írak nú um helgina, þegar múslimar um allan heim fagna lokum Ramadan föstumánaðarins. Erlent 14.10.2007 18:19
Höggmyndir fluttar niður Akropolishæð Tvö þúsund og fimm hundruð ára gamlar styttur voru í dag fluttar af Akropolis hæð í Aþenu niður að safni sem verður þeirra framtíðarheimili. Erlent 14.10.2007 18:17
Ferðamenn drukknuðu í tælenskum helli Sex evrópskir ferðamenn voru meðal átta manna sem létu lífið í Tælandi í dag þegar vatn flæddi skyndilega inn í helli sem þeir voru að skoða. Bresk kona komst lífs af. Erlent 14.10.2007 18:16
Tilræði við Pútín í undirbúningi? Rússneska leyniþjónustan hefur fengið viðvörun um að reynt verði að ráða Vladimir Pútín, forseta Rússlands, af dögum í fyrirhugaðri heimsókn hans til Írans næstkomandi þriðjudag. Erlent 14.10.2007 18:14
Stuðningur við íhaldsmenn ekki verið meiri í 15 ár Gordon Brown á ekki sjö dagana sæla þessa dagana. Hann tilkynnti nýverið að ekki yrði boðað til kosninga í haust og túlkuðu gagnrýnendur það á þann vega að hann væri ekki nógu afgerandi stjórnmálamaður. Íhaldsmenn voru fljótir til að segja að forsætisráðherrann þyrði einfaldlega ekki í kosningar þar sem hann væri ekki viss um sigur. Ef sá ótti var fyrir hendi virðist hann hafa átt við nokkur rök að styðjast, ef marka má nýja könnun í Sunday Telegraph þar sem Íhaldsflokkurinn í Bretlandi nýtur stuðnings 43 prósenta. Þetta er besti árangur flokksins í heil 15 ár. Erlent 14.10.2007 15:54
Ráðist á forseta Þýskalands Forseti Þýskalands Horst Koehler varð fyrir árás í dag þegar hann kom af verðlaunaafhendingu á bókamessunni í Frankfurt. 44 ára gamall maður frá Rúmeníu sem búsettur er í Þýskalandi vatt sér að forsetanum og greip í jakkaboðunga hans áður en lífverðir forsetans náðu að yfirbuga hann. Erlent 14.10.2007 14:13