Erlent
Annar verðbréfamiðlari handtekinn Annar verðbréfamiðlari stórbankans Societe Generale hefur verið handtekinn í tengslum við rannsókn á verðbréfaviðskiptum fjárhættumiðlarans Jerome Kerviel. Miðlarinn er sagður vera kollegi Kerviel sem er í haldi í fangelsi í París. Erlent 12.3.2008 13:00
Óveður gengur enn yfir Bretland Mikið hvassviðri heldur áfram að ganga yfir Bretland og valda tjóni. Vörubílar fjúka um koll og tré rifna upp með rótum. Skipuleggjendur Cheltenham kappaksturshátíðarinnar ákváðu að aflýsa öðrum degi kappakstursins. Sömu sögu er að segja af veðreiðum í Gloucesterskíri þar sem búist var við 55 þúsund manns. Erlent 12.3.2008 11:40
Nýjar spurningar um "hobbitana" í Kyrrahafinu Nýjar spurningar hafa vaknað um "hobbitana" eftir að bein fundust á Palau eyjaklasanum í Kyrrahafinu nýlega. Áður höfðu svipaðar leyfar af smávöxnu mannfólki fundist á eyjunni Flores sem er í 2000 km fjarlægð. Erlent 12.3.2008 11:15
Táragasi skotið að munkum í Tíbet Kínverska lögreglan notaði táragas til að leysa upp hundruð Búddamunka sem mótmældu nálægt höfuðborg Tibet í gær. Samkvæmt fréttum Free Asia útvarpsstöðvarinnar sem er styrkt af bandarísku ríkisstjórninni umkringdu öryggisverðir um 500 munka í gær þegar þeir gengu nálægt lögreglustöðinni í Lhasa. Vitni sagði útvarpsstöðinni að um tvö þúsund vopnaðir lögreglumenn í mismunandi einkennisbúningum hefðu verið á staðnum og skotið táragasi að fólkinu. Erlent 12.3.2008 11:10
250 mótmælendur í Danmörku ekki ákærðir Lögreglan í Kaupmannahöfn hefur fallið frá því að ákæra 250 manns sem handteknir voru í tengslum við óeirðir vegna niðurrifs Ungdómshússins í borginni í september 2006. Erlent 12.3.2008 10:59
Krotað á flugvél El Al Veggjakrot með skilaboðum í þágu Palestínumanna var skrifað á arabísku inn í farangusgeymslu El Al flugvélar. Veggjakrotið uppgötvaðist þegar verið var að afferma vélina á Malpensa flugvelli í Mílanó. Atvikið hefur vakið áhyggjur meðal Ísrela um flugvallaöryggi á Ítalíu. Erlent 12.3.2008 10:30
Fangar í Guantanamo fá að hringja í ættingja sína Bandaríkjaher hyggst leyfa föngum í Guantanamo-fangabúðunum á Kúbu að hringja reglulega í ættingja sína, í fyrsta sinn frá því að búðirnar voru settar á fót fyrir rúmum sex árum. Erlent 12.3.2008 10:27
BNA: Afsögn þýðir ekki stríð við Íran Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna ,hefur vísað á bug sem „fáránlegum" sögusögnum að afsögn æðsta yfirmanns hersins í Írak þýði að Bandaríkin ætli í stríð við Íran. Erlent 12.3.2008 10:17
Top Gear kynnir í farsíma undir stýri Mynd sem virðist sýna Jeremy Clarkson kynni Top Gear þáttanna tala í farsíma á meðan hann keyrir hefur verið afhent lögreglu. Erlent 12.3.2008 09:48
Konur og börn létust í skothríð í Afganistan Tvær konur og tvö börn létust þegar þau lentu í miðri skothríð milli hersveita á vegum NATO og uppreisnarmanna í suðurhluta Afganistans í gær. Erlent 12.3.2008 09:26
Vill ekki að teikning verði notuð í pólitískum tilgangi Danski teiknarinn Kurt Westergaard hefur ákveðið að leita til dómstóla til þess að koma í veg fyrir að andstæðingar múslíma í Danmörku noti teikningu hans af Múhameð spámanni í mótmælum sem fyrirhuguð eru í Álaborg á laugardag. Erlent 12.3.2008 09:01
Fundu 250 kíló af kókaíni í gámi í Sydney Fíkniefnalögreglan og tollverðir í Ástralíu hafa lagt hald á kókaín að andvirði rúmlega fimm milljarða króna. Erlent 12.3.2008 08:37
Systur skutu auðæfum undan erfðaskatti í Japan Tvær japanskar systur hafa verið handteknar fyrir að skjóta gífurlegum auðæfum undan erfðaskatti. Erlent 12.3.2008 08:02
Fjórða hver unglingsstúlka í Bandaríkjunum með kynsjúkdóm Ein af hverjum fjórum unglingsstúlkum í Bandaríkjunum á er með kynsjúkdóm. Algengasti sjúkdómurinn er vírus sem veldur leghálskrabba. Erlent 12.3.2008 07:42
Thaksin lýsir yfir sakleysi sínu Thaksin Shinawatra fyrrum forsætisráðherra Taílands lýsti yfir sakleysi sínu á fyrsta degi réttarhaldanna yfir honum fyrir spillingu í starfi. Erlent 12.3.2008 07:38
Æðsti yfirmaður heraflans í Írak segir af sér Æðsti yfirmaður bandaríska hersins í Írak og Afganistan, arðmírállinn William Fallon, hefur sagt af sér. Erlent 12.3.2008 06:57
Barak Obama vann auðveldan sigur í Mississippi Barak Obama vann auðveldann sigur í forkosningnum í Mississippi. Hann hlaut rúm 60% atkvæða en Hillary Clinton hlaut 37%. Erlent 12.3.2008 06:55
Reiknað er með afsögn ríkisstjórans í New York í dag Reiknað er með að ríkisstjórinn í New York muni segja af sér í dag. Forystumaður Repúblikana á ríkisþinginu hefur gefið ríkisstjóranum 48 stunda frest til að segja af sér annars muni þingið svipta hann embættinu. Erlent 12.3.2008 06:51
Sagður hætta vegna ágreinings um Íran Yfirmaður herja Bandaríkjanna í Miðausturlöndum, þar á meðal Írak og Afganistan, William Fallon aðmíráll, lét í dag af embætti fyrr en áætlað var. Erlent 11.3.2008 23:49
Samkynhneigðum Írana neitað um hæli Samkynhneigður Írani sem segir að hann verði tekinn af lífi ef honum verði vísað frá Hollandi hefur verið neitað um hæli þar. Mehdi Kazemi hefur sagt að líf hans sé í hættu ef hann verði sendur aftur til Íran þar sem hann segir að yfirvöld hafi tekið kærasta hans af lífi vegna samkynhneigðar. Kærastinn gaf yfirvöldum upp nafn Kazemi áður en hann var líflátinn. Erlent 11.3.2008 17:24
Ríkisstjóra New York gefinn úrslitakostur Eliot Spitzer, ríkisstjóra New York, hefur verið gefinn lokafrestur af andstæðingum sínum til að segja af sér embætti. Að öðrum kosti verði hann kærður vegna ásakana um að hann hafi nýtt sér þjónustu vændiskonu. Helsti andstæðingur hans úr hópi repúblíkana í New York gaf honum tvo sólarhringa til að segja af sér. Erlent 11.3.2008 17:00
300 slasaðir eftir 200 bíla árekstur Þrír létust í fjöldaárekstri 200 bíla á þjóðvegi á milli Dubai og Abu Dhabi í dag. Þrír til viðbótar létust í kjölfarið. Samkvæmt upplýsingum lögreglu eru sex manns alvarlega slasaðir og 39 illa slasaðir en stöðugir. Að minnsta kosti 255 hlutu minni háttar meiðsli. Erlent 11.3.2008 16:00
Arabísk kona notar YouTube í kvennabaráttu Sádi-Arabísk kona hefur sett myndband af sjálfri sér undir stýri á YouTube til að þrýsta á þarlend yfirvöld að auka réttindi kvenna og leyfa þeim að keyra bíl. Wajeha Al-Huwaider er með ökuskírteini, en hún má einungis keyra á afskekktum svæðum í Sádí-Arabíu. Hún segir að hömlurnar lami helming þjóðarinnar og vill að yfirvöld leyfi konum að keyra í borgum. Erlent 11.3.2008 15:34
Mál samkynhneigða Íranans til Evrópuþingsins Michael Cashman þingmaður Evrópuþingsins í Strassborg mun taka fyrir mál samkynhneigðs írana sem á von á dauðadómi í Íran verði honum vísað úr landi í Bretlandi. Mehdi Kazemi er 19 ára og er nú í haldi í Hollandi þar sem hann berst gegn því að vera snúið aftur til Bretlands. Erlent 11.3.2008 14:55
Flugræningi vill kaupa Múhameðsteikningu Westergaards Bandarískur karlmaður, sem situr í fangelsi fyrir flugrán, vill kaupa fræga mynd danska teiknarans Kurts Westergaards af Múhameð spámanni. Erlent 11.3.2008 14:32
Hugsa um hvort fiskur sem borðaður er sé í útrýmingarhættu Íslensk stjórnvöld hafa töluverðar áhyggjur af tilraunum umhverfissinna til þess reyna að fá fólk til þess að hætta að kaupa fisk sem þeir segja sjálfir að sé í útrýmingarhættu. Erlent 11.3.2008 14:15
Húsleit hjá evrópskum flugfélögum vegna gruns um samráð Starfsmenn á vegum framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins gerðu í dag húsleit á skrifstofum hjá nokkrum evrópskum flugfélögum vegna gruns um verðsamráð á tilteknum leiðum. Erlent 11.3.2008 14:13
Móðir sökuð um vanrækslu eftir morð dótturinnar Móðir breskrar unglingsstúlku sem var nauðgað og myrt í Goa á Indlandi segist ekki hafa yfirgefið dóttur sína, en hún er nú sökuð um vanrækslu. Scarlett Keeling var 15 ára þegar hún fannst látin á Anjuna ströndinni að morgni 18. febrúar. Erlent 11.3.2008 13:58
Kynferðisglæpamenn í sænskum skólum Svíar eru slegnir yfir fréttum af því að ekki færri en 75 dæmdir barnaníðingar hafi fengið vinnu í sænskum skólum og dagheimilum frá árinu 2003. Erlent 11.3.2008 13:45
Komst ekki í eigið megrunarpartý Mexíkanskur maður sem eitt sinn vóg hálft tonn missti af eigin megrunarpartýi eftir vegaóhapp. Manuel Uribe var talinn þyngsti maður heims og mældist ein 560 kíló. Í fimm ár var hann ófær um að komast úr rúminu sínu, en tókst að missa 200 kíló á tveimur árum í próteinríkum megrunarkúr. Hann er nú 360 kíló. Erlent 11.3.2008 13:37