Erlent

Systur skutu auðæfum undan erfðaskatti í Japan

Tvær japanskar systur hafa verið handteknar fyrir að skjóta gífurlegum auðæfum undan erfðaskatti.

Skattayfirvöld í Japan segja að systurnar hafi falið um 6 milljarða jena í pappakössum og pokum á heimili sínu. Upphæðin svarar til yfir fjögurra milljarða króna.

Auðæfin erfðu systurnar eftir föður sinn sem lést fyrir fjórum árum síðan. Um er að ræða stærsta mál sinnar tegundar í Japan. Undir eðlilegum kringumstæðum hefðu þær átt að greiða helming upphæðarinnar í erfðaskatt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×