Uppgjörið: ÍR - KR 102-99 | Hetjuleg endurkoma ÍR-inga Siggeir Ævarsson skrifar 19. mars 2026 18:31 Hákon Örn Hjálmarsson var stórkostlegur í kvöld með 32 stig og níu þrista. Vísir/Vilhelm ÍR-ingar unnu þriggja stiga endurkomusigur á KR-ingum, 102-99, í æsispennandi Reykjavíkurslag í kvöld þar sem úrslitin réðust á lokaskoti leiksins. ÍR-ingar tóku á móti bikarmeisturum KR í bráðfjörugum Reykjavíkurslag í kvöld. Heimamenn voru að hitta alveg hreint ótrúlega framan af leik en nýtingin þeirra fyrir utan þriggjastiga línuna var 70 prósent í hálfleik. Klonaras var drjúgur í kvöld og fékk stundum að finna fyrir því frá varnarmönnum KRVísir/Vilhelm Heimamenn hófu leikinn af miklum kraft og munaði þá mest um þristana, ekki síst frá Hákoni Erni sem setti fjóra slíka í fyrsta leikhluta í fimm tilraunum. ÍR-ingar leiddu 33-24. KR-ingar unnu sig hægt og bítandi inn í leikinn í 2. leikhluta. ÍR-ingar héldu áfram að hitta vel fyrir utan en vörn KR gaf þeim einfaldlega mun færri skot. Það munaði því aðeins þremur stigum í hálfleik og, 55-52, og leikurinn galopinn. Gestirnir hófu seinni hálfleikinn af krafti og Borche neyddist til að taka leikhlé eftir aðeins þrjár mínútur þegar staðan var orðin 59-66. ÍR-ingar komu sterkir til baka og minnkuðu muninn í eitt stig þegar Hákon Örn setti sinn áttunda þrist í níu tilraunum. KR lokaði leikhlutanum þó með tveimur þristum og leiddu með sex fyrir lokaátökin, staðan 78-84. Rinalds Malmanis í baráttunniVísir/Vilhelm KR-ingar virtust ætla að sigla þessu heim en ÍR-ingar gáfust ekki upp. Minnkuðu muninn tvisvar í eitt stig og svo kom Hákon Örn þeim yfir með níunda þristinum sínum í tíu skotum. Staðan 97-95 þegar tæpar tvær mínútur voru á klukkunni. ÍR-ingar sýndu ótrúlega seiglu á lokasprettinum og þá hittu þeir Hákon og Jacob Falko alveg lygilega fyrir utan. Þristur frá Falko þegar 40 sekúndur voru eftir reyndist svo náðarhöggið fyrir KR. Þeir reyndu að brjóta og brjóta en það dugði ekki til þar sem ÍR-ingar voru svellkaldir á línunni. KR-ingar fengu að vísu séns á að jafna en skrítin lokasókn þeirra rann bara út í sandinn. Lokatölur í Skógarselinu 102-99. ÍR-ingar fagna af innlifunVísir/Vilhelm Atvik leiksins Þristurinn sem Falko setti í stöðunni 97-96 reyndist vera síðasti naglinn í kistulok KR-inga. Þessi þristur kom líka eiginlega upp úr engu. Algjör töframaður hann Jacob Falko. Falko frábær í kvöldVísir/Vilhelm Stjörnur og skúrkar Hákon Örn Hjálmarsson átti hreint út sagt magnaðan skotleik í kvöld þar sem hann hitti úr níu þristum í tíu tilraunum. Skilaði alls 32 stigum og setti tvö víti í lokin til að klára leikinn endanlega. Þá var Jacob Falko einnig mjög drjúgur fyrir ÍR-inga með 25 stig og sex stoðsendingar og skaut sömuleiðis mjög vel, með fimm þrista í sex skotum. Kenneth var öflugur á köflum í kvöldVísir/Vilhelm Hjá KR var Kenneth Jamar Doucet Jr stigahæstur með 23 stig og fór langt með að klára leikinn áður en ÍR-ingar komu til baka. Þá var Þórir Guðmundur Þorbjarnarson einni stoðsendingu frá þrefaldri tvennu, 14 stig, ellefu fráköst og níu stoðsendingar. Dómarar Góður leikur hjá tríóinu í kvöld. Leikurinn flæddi vel og gott jafnvægi í dómunum á báðum endum. Ekki yfir neinu að kvarta þar. Stemming og umgjörð Frábær stemming í Skógarselinu í kvöld. ÍR-ingar voru fjölmennir og háværir og slepptu tuðinu og leyfðu gleðinni að stýra för. Svo var auðvitað fírað upp í grillinu en ÍR-ingar bjóða einfaldlega upp á bestu borgarana í Bónus-deildinni og það er faglegt mat frá landskunnum hamborgarasérfræðingi, mér. ÍR-ingar létu vel í sér heyra í stúkunni í kvöldVísir/Vilhelm Mottmars eða bara klassískt lúkk?Vísir/Vilhelm Viðtöl Hákon Örn: „Bara grípa og skjóta sko, það er ekkert flóknara en það“ Hákon kláraði leikinn á vítalínunni eftir að hafa farið hamförum á þriggjastiga línunni allan leikinn.Vísir/Vilhelm Hákon Örn Hjálmarsson var að öðrum ÍR-ingum ólöstuðum maður leiksins í kvöld. Hann var svellkaldur á vítalínunni í lokin og sömuleiðis stóískur í viðtali eftir leik þrátt fyrir skotsýningu á vellinum. „Við settum stór skot. Enn og aftur setur Jake stórt skot fyrir okkur sem eiginlega ísar leikinn. Bara góð stemming og góður andi í liðinu. Maður veit alveg að þetta er leikur áhlaupa. Það getur allt gerst, maður þarf bara að setja nokkur skot.“ Hákon setti sjálfur ófá af þessum umræddu skotum en gerði þó ekki mikið úr 90 prósent nýtingu sinni fyrir utan. „Bara grípa og skjóta sko, það er ekkert flóknara en það.“ Líkt og Borche var Hákon sammála því að þessi sigur ætti að gefa liðinu sjálfstraust fyrir komandi úrslitakeppni en hann var sömuleiðis sáttur með að ná loks að stilla upp fullu liði. „Klárlega. Þetta er fyrsti leikurinn okkar síðan á móti Njarðvík held ég í byrjun tímabils sem við spilum með fullt lið. Margir menn góða innkomu. Við fáum Bjögga, Rafn, Kristján og Tomma inn af bekknum og þeir skila allir bara mjög góðu framlagi. Þeir voru meira að segja inn á langt fram í fjórða þar sem við gátum bara hvílt Mangó og Jimmy alveg þangað til það voru fjórar mínútur eftir. Við áttum að þá að eiga gas eftir til að klára leikinn sem þeir voru kannski ekki búnir að gera. Það klárlega hjálpaði okkur.“ Jakob: „Ekkert högg á sjálfstraustið okkar“ Jakob Sigurðsson, þjálfari KR.Vísir/Vilhelm KR-ingar virtust vera með ágætis tök á leiknum í kvöld eftir því sem leið á og blaðamaður var nánast búinn að skrifa inn sigur þeirra þegar fimm mínútur voru eftir. Jakob Sigurðsson, þjálfari KR, sagði sína menn hafa misst tökin undir lokin. „Við vorum með ágætis tök í rauninni allan seinni hálfleikinn fyrir utan síðustu mínúturnar. Bara snérist í lokin.“ ÍR hittu afar vel framan af leik og þegar Jakob fór í nánari greiningu á leiknum rakti hann tapið einmitt til góðrar byrjunar ÍR sóknarlega. „Að sjálfsögðu var stór partur af því að við töpuðum hérna í kvöld var byrjunin okkar. Við byrjuðum mjög illa, sérstaklega varnarlega. Þeir voru bara að komast í góðan takt og leið vel sóknarlega. Fengu opin skot og það hjálpaði þeim í gegnum allan leikinn. Bæði að byggja forskot í byrjun og halda sér inni í leiknum seinna meir. Þeir voru búnir að setja nokkrar körfur flestir þarna. Mér fannst það lykillinn að því hvers vegna við töpuðum leiknum.“ Talandi um að koma sér í takt, þá er úrslitakeppnin handa við hornið þar sem allir vilja vera í góðum takti. Jakob hefur ekki áhyggjur af því að þetta tap muni slá KR úr takti. „Við höfum fulla trú á okkur. Ekkert högg á sjálfstraustið okkar. Auðvitað bara eins og öll lið vill maður reyna að koma á einhverri siglingu inn í úrslitakeppnina. Við höfum svo sem verið á ágætis siglingu. Við eigum einn leik eftir sem við þurfum bara að nýta vel og vera klárir þegar úrslitakeppnin byrjar.“ Bónus-deild karla ÍR KR