Uppgjörið:Keflavík - Valur 85-88| Valur tryggði heimaleikjaréttinn í fyrstu umferð Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 19. mars 2026 21:55 Kári Jónsson var flottur í liði Vals í kvöld. Vísir / Anton Brink Keflavík tók á móti Val í kvöld þegar 21. umferð Bónus deild karla hóf göngu sína í kvöld. Valur gat með sigri tryggt heimavallarréttinn fyrir úrslitakeppnina á meðan Keflavík hafði enn tölfræðilega möguleika á að ná Val í 4. sætinu. Eftir mjög svo jafnan leik var það Valur sem fór að lokum með öflugan þriggja stiga sigur 85-88. Leikurinn fór hægt af stað og voru báðar varnir liðana að halda mjög vel. Bæði lið voru að komast í flottar stöður en vantaði örlítið uppá gæðin til að klára. Það var ekki mikið skorað og allt í járnum eftir fyrsta leikhluta 20-16. Það var örlítið meira fjör í öðrum leikhluta og liðin voru áfram mjög jöfn á velli lengst af og skiptust á því að leiða leikinn með góðum áhlaupum. Undir lok leikhlutans náði Valur góðu áhlaupi og fóru með níu stiga forystu inn í hálfleikinn 36-47. Valur opnaði seinni hálfleikinn á þriggja stiga körfu frá Callum Lawson en það sló Keflavík ekki út af laginu og þeir svöruðu með tíu stiga áhlaupi sem þrýsti Val í að taka leikhlé eftir um þrjár mínútur í þriðja. Keflavík leitaðist eftir því að komast nær Valsmönnum sem náðu að halda heimamönnum í hæfilegri fjarlægð. Keflavík náði að minnka muninn niður í eitt stig þegar Halldór Garðar Hermannsson setti tvo þrista í röð fyrir heimamenn en fyrrum Keflvíkingurinn Igor Maric í liði Vals svaraði þá í sömu mynt og hélt Val skrefinu framar. Eftir þriðja leikhluta voru það Valur sem leiddi með fimm sigum 62-67, þökk sé Igor Maric. Heimamenn í Keflavík mættu grimmir út í fjórða leikhluta og átu niður forskot Vals jafnt og þétt áður en Hilmar Pétursson kom þeim svo loks yfir í stöðunni 74-73. Eftir mikla spennu þar sem bæði lið skiptust á því að leiða voru það gestirnir í Val sem reyndust að lokum sterkari og fóru með þriggja stiga sigur 85-88. Atvik leiksins Igor Maric kæfði niður mómentum Keflavíkur undir lok þriðja leikhluta og kom í veg fyrir að Keflavík færi með forystuna inn í fjórða leikhluta. Igor Maric þekkir gólfið hér í Keflavík betur en flestir en hann spilaði við góðan orðstír fyrir Keflavík í nokkur ár áður en hann samdi svo við Val í vetur. Stjörnur og skúrkarKristófer Acox var stigahæstur í lið Vals með 19 stig og reif að auki niður 13 fráköst. Var nálægt því að vera skúrkurinn í kvöld en hann klikkaði á vítaskotum undir lokin sem hefði geta verið dýrt.Lazar Nikolic setti dýrmæt vítaskot undir restina sem lokuðu leiknum.Hjá Keflavík var Mirza Bulic öflugur að ráðast á hringinn og endaði stigahæstur með 24 stig.DómararnirHeilt yfir var þetta fínasta frammistaða hjá tríóinu í dag þó svo þeir voru nálægt því að missa þetta niður í einhverja vitleysu á tímabili. Heilt yfir var þetta bara mjög fín frammistaða.Stemingin og umgjörðKeflavík er mikill körfuboltabær og það vantaði ekki upp á stemninguna í kvöld. Hún var mjög nálægt því að skila þeim sigri en orkan sem heimamenn fengu úr stúkunni var mjög góð. Fullt hrós svo á alla Valsmenn sem mættu í kvöld og öskruðu sitt lið áfram.ViðtölFinnur Freyr Stefánsson.Vísir / Anton Brink„Körfubolti er bara svona“„Hörku helvítis leikur“ sagði Finnur Freyr Stefánsson þjálfari Vals eftir sigurinn í kvöld.„Við náðum smá orku þarna upp í öðrum leikhluta og byggjum upp mun. Keflavík koma svo grimmir út í seinni og erum að tapa mikið af boltum í hraðaupphlaupum og stöðum sem að við hefðum kannski átt að skora á meðan við töpum svo boltanum þegar þeir skora á móti“„Svolítið mislagðar hendur en svo er þetta bara 50/50 í fjórða“Valur vann leikinn með þrem stigum en töpuðu þrem leikhlutum í kvöld. Þrátt fyrir það fannst Finni hans lið ekki beint sleppa með sigurinn í kvöld.„Körfubolti er bara svona. Stundum er allt í einu ein skoruð karfa í lok leikhluta eða einhver byrjar að skora. Eðli leiksins er svona þannig mér fannst við vera í þannig tækifæri að vera meira yfir í lokin en Keflavík gerði vel með stórar körfur og allt þetta. Ég er bara ánægður með sigurinn“ sagði Finnur Freyr Stefánsson.Daníel Guðni Guðmundsson.Vísir/Vilhelm„Tveir tapleikir í röð núna samtals með fjórum stigum, það svíður“„Afleitur annar leikhluti, mjög þreytandi dæmi í gangi hérna“ sagði svekktur Daníel Guðni Guðmundsson þjálfari Keflavíkur eftir tapið í kvöld.„Að ná ekki að grípa andann og stemninguna í fyrsta leikhluta því þetta var líka flatt í fyrsta leikhluta. Við spilum ágætis varnarleik en þetta var bara einhver handbolti á tímabili og menn eitthvað ragir og leyfa þeim að stýra okkur í þær áttir sem að þeir vildu“„Annað uppi á teningnum í seinni hálfleik. Við náðum að gera margt mjög gott þar og komum okkur aftur inn í leikinn en svo bara súr niðurstaða“Keflavík vann þrjá leikhluta af fjórum en þurftu þrátt fyrir það að sætta sig við þriggja stiga tap í kvöld.„Rosalega svekkjandi því að þetta er annar leikurinn í röð sem að við gerum það en við sýnum alltaf þennan baráttuanda og karakter að koma okkur aftur inn í þetta og við vitum alveg hvað er að ganga vel fyrir okkur“„Þetta er frekar þreytt að þurfa að standa í þessu að grafa sig í einhverja holu og hafa einhvern jafnan leik á móti eins góðu liði og Val“„Tveir tapleikir í röð núna samtals með fjórum stigum, það svíður“ sagði Daníel Guðni Guðmundsson. Bónus-deild karla Keflavík ÍF Valur