Erlent
Segja árásir á Gaza gjöf frá Obama Næstráðandi Osama bin Ladens innan al-Qaeda-samtakanna, Ayman al-Zawahiri, segir í hljóðrituðu ávarpi, sem flutt var íbúum á Gaza-svæðinu í gær, að árásir Ísraelshers á liðsmenn Hamas-samtakanna séu gjöf frá Barack Obama áður en hann sest á valdastól og honum við hlið standi svikarinn Hosni Mubarak, forseti Egyptalands. Erlent 7.1.2009 08:18
Heimili Bruce Lee verður ferðamannastaður Yfirvöld í Hong Kong samþykktu í gær tillögu auðjöfurs nokkurs sem boðist hefur til að standa straum af kostnaði við að breyta heimili bardagalistastjörnunnar Bruce Lee í ferðamannastað. Erlent 7.1.2009 08:14
Leigubílstjóramorðingi á ferð í Japan Yfirvöld í Osaka í Japan grunar að þar sé á ferð raðmorðingi sem situr um líf leigubílstjóra. Tveir leigubílstjórar voru skornir á háls og rændir í lok desember og nú á mánudagskvöldið slapp sá þriðji naumlega með stungusár á hálsi eftir að hafa verið rændur, segir japanska dagblaðið Yomiuri Shimbun. Erlent 7.1.2009 07:30
Fórnarlamb skotárásar reyndist undirheimakóngur Veitingahúsaeigandinn sem særðist í skotárás á veitingahúsinu Bali í Kaupmannahöfn í fyrrakvöld er þekktur í undirheimum borgarinnar og gengur þar undir heitinu Mr. Big. Erlent 7.1.2009 07:20
Skotar íhuga að hækka sakhæfisaldur í 12 ár Skoski þjóðarflokkurinn íhugar nú að leggja fram frumvarp um hækkun sakhæfisaldurs úr átta árum í tólf. Er það skref í átt að því fjórtán ára marki sem nefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna hefur krafist að Skotar geri að sakhæfisaldri en með hugtakinu er átt við þann aldur þegar unnt er að sækja viðkomandi til saka fyrir dómi. Erlent 7.1.2009 07:17
Efla eftirlit með glæpagengjum Þýska lögreglan hyggst efla eftirlit með þýskum nýnasistum og mótorhjólaklúbbnum Vítisenglum. Yfirvöld í þýskalandi hefur miklar áhyggjur af samvinnu þessa hópa. Erlent 6.1.2009 23:58
Breskir lögreglumenn fá 5000 TASER byssur Framleiðandi svokallaðra TASER byssa, eða rafbyssa sem lögregla notar sem valdbeitingatæki víða um heim, tilkynnti í gær að bresk stjórnvöld hefðu pantað fimm þúsund byssur af fyrirtækinu Erlent 6.1.2009 21:49
Minnst fjörutíu látnir eftir árás Ísraelsmanna á skóla Í það minnsta fjörutíu eru látnir og tugir sárir eftir að ísraelskar skriðdrekasveitir réðust á skóla á Gaza. Sameinuðu þjóðirnar reka skólann, og hafði fólk leitað skjóls þar fyrir bardögunum. Erlent 6.1.2009 14:55
Tólf fjölskyldumeðlimir féllu í loftárás Ísraela Minnst tólf meðlimir sömu fjölskyldu féllu í loftárás Ísraela á heimili þeirra á Gaza ströndinni í nótt að því er AFP fréttastofan greinir frá. Þar af voru sjö börn á aldrinum eins til tólf ára, þrjár konur og tveir karlmenn. Þá lést maður sem átti leið hjá húsinu í árásunum. Erlent 6.1.2009 14:32
Krefjast þess að Rússar komi lagi á gasið Evrópusambandið krefst þess að Rússar komi gasflutningum til Evrópu í samt lag hið fyrsta. Nokkru Evrópuríki segja röskun hafa orðið á gasflutningum þangað eftir að rússneski orkurisinn Gazprom skúrfaði fyrir gas til Úkraínu. Það sé sérlega bagalegt nú þegar kalt sé í veðri í Evrópu. Erlent 6.1.2009 12:51
Ísraelar sakaðir um að beita krabbameinsvaldandi sprengjum Norskur læknir segir Ísraela beita DIME sprengjum í hernaði sínum á Gaza ströndinni. Sprengjurnar eru með lítinn sprengjuradíus til að valda sem minnstu mannfalli, en valda þó sérlega alvarlegum áverkum. Þær innihalda þungmálma og hafa rannsóknir bent til þess að þær valdi krabbameini hjá þeim sem lifa þær af. Erlent 6.1.2009 12:41
Átökin magnast á Gaza Átök Ísraela og Palestínumanna á Gaza hafa magnast síðasta sólahringinn. Þrír ísraelskir hermenn féllu þegar landar þeirra skutu fyrir mistök á þá úr skriðdreka. Þrír Palestínumenn féllu þegar skotið var á skóla Sameinuðu þjóðanna í Gazaborg í morgun. Þar höfðu margir leitað skjóls frá vopnum Ísraela. Erlent 6.1.2009 12:09
Stúlka lést úr fuglaflensu Nítján ára stúlka er látin úr fuglaflensu í Peking. Yfirvöld hafa staðfest að flensan er af afbrigðinu H5NI, sem lengi hefur verið óttast að muni valda heimsfaraldri. Erlent 6.1.2009 10:20
Sjö hundruð Afganar mótmæltu Gaza-árásum Um sjö hundruð manns komu saman á götum Kandahar í Suður-Afganistan í gær til að mótmæla árásum Ísraela á Gaza-svæðinu. Brenndu mótmælendurnir ísraelska fánann og hrópuðu slagorð í gjallarhorn. Erlent 6.1.2009 07:39
Ofbeldisverkunum linnir ekki í Kaupmannahöfn Tveir menn eru særðir, annar þeirra alvarlega, eftir að óþekktur árásarmaður ruddist inn á veitingastaðinn Bali í Kaupmannahöfn í gærkvöldi, dró upp byssu og skaut fimm skotum að mönnunum. Erlent 6.1.2009 07:36
Japanar biðja viðskiptaguðinn um gott ár Þúsundir jakkafataklæddra manna söfnuðust saman í Tókýó, höfuðborg Japans, í gær, við helgidóm viðskiptaguðsins Ebisu-Sama, og lögðust á bæn. Þarna var á ferð starfsfólk úr fjármála- og bankageiranum sem bað fyrir góðu viðskiptaári 2009. Erlent 6.1.2009 07:31
Bretar skila kaupleigubílum í hrönnum Nýlegum glæsivögnum sem falla undir svokallaða kaupleigusamninga er nú skilað unnvörpum um allt Bretland. Ástæðan er að kaupendurnir óttast að við lok samningstímans, þegar kemur að svokallaðri lokagreiðslu, sitji þeir uppi með bíl sem er mun verðminni en nemur lokagreiðslunni Erlent 6.1.2009 07:28
Gömlu ævintýrin allt of blóðug Sígild ævintýri eru að mati breskra foreldra allt of hrottafengin til að lesa þau fyrir börn auk þess sem þau þykja ekki í takt við pólitíska rétthugsun. Erlent 6.1.2009 07:23
Sviku út rúmar fjórar milljónir gegnum eBay Hjúkrunarkona og atvinnulaus unnusti hennar eru nú fyrir rétti í Bolton á Englandi ákærð fyrir stórfelld fjársvik með því að hafa boðið hluti til sölu á uppboðsvefnum eBay án þess að láta söluvarninginn af hendi enda var hann aldrei til. Erlent 6.1.2009 07:20
Fjórtán börn dóu á Gaza í dag Fjórtán börn hafa fallið í árásum Ísraela á Gaza-svæðið í dag. Ísraelar hafna hugmyndum um vopnahlé. Tíundi dagur aðgerða Ísraela gegn Hamas-liðum á Gaza. Annar dagur landhernaðar. Skotið var á hús úr lofti, af láði og legi. Minnst tuttugu og einn almennu palestínskur borgari hafi fallið í dag, þar af fjórtán börn. Erlent 5.1.2009 19:07
Fimmtungur fallinna á Gaza eru börn Talið er að rúmlega fimmtungur þeirra ríflega fimm hundruð Palestínumanna sem hafa fallið í árásum Ísarelsmanna á Gaza séu börn. Aðalsjúkrahúisð í Gaza-borg hefur ekki lengur undan að taka við særðum og margir deyja áður en þeir komast undir læknis hendur. Erlent 5.1.2009 12:41
Rændu herstöð Danska lögreglan leitar enn manna sem rændu í herstöð í Slagelse aðfaranótt sunnudags. Þrír menn réðust inn í herstöðina, yfirbuguðu vaktmann og höfðu á brott með sér vopns og skotfæri sem átti að flytja til danskra hermanna í Afganistan í lok mánaðarins. Erlent 5.1.2009 12:27
Skutu með hríðskotabyssum á lögreglu Grískur óeirðalögreglumaður liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi í Aþenu eftir að tveir menn skutu með hríðskotabyssum á lögreglusveit sem var að gæta stjórnarbyggingar í miðborginni í nótt. Árásarmannanna er enn leitað. Engin samtök eða hreyfing hafa lýst árásinni á hendur sér. Erlent 5.1.2009 12:25
Of horuð ungbörn líklegri til að greinast síðar með sykursýki Ungbörn sem eru of horuð eru líklegri til að greinast með sykursýki síðar á ævinni en þau sem eru of feit. Erlent 5.1.2009 08:23
Aðalsjúkrahús Gaza hefur ekki lengur undan Aðalsjúkrahús Gaza-borgar hefur ekki lengur undan að taka við særðum Palestínumönnum og margir deyja áður en læknar komast þeim til aðstoðar. Þetta segir Erik Fosse, norskur læknir sem þar starfar, í samtali við CNN. Erlent 5.1.2009 08:21
Breskum blaðamönnum sleppt eftir 40 daga í gíslingu Tveir breskir blaðamenn, sem voru í haldi sómalskra mannræningja í 40 daga, fengu frelsið á ný í gær. Erlent 5.1.2009 08:16
Jólasveinn hrapaði til jarðar í Norður-Yorkshire Fimm slökkviliðisbílar ásamt björgunarliði voru ræstir út með hraði í breska bænum Marrick í Norður-Yorkshire um helgina þegar tilkynnt var um flugvél sem hrapað hefði til jarðar í skóglendi rétt utan bæjarins. Erlent 5.1.2009 08:11
Breskur prófessor sálgreinir strætisvagnafarþega Framsækið fólk velur sér sæti framarlega á efri hæð breskra strætisvagna, þeir sem eru sjálfstæðir í hugsun velja miðjuna en uppreisnargjarnir eru aftast. Erlent 5.1.2009 08:09
Gaf sig fram eftir hnífstungu á nýársdagsmorgun Rúmlega tvítugur maður af marokkóskum uppruna gaf sig fram við lögregluna í Kaupmannahöfn síðdegis á föstudag og játaði að hafa stungið tvo menn eftir að til átaka kom milli þeirra á skemmtistaðnum Søpavillonen á nýársdagsmorgun. Erlent 5.1.2009 07:58
Bílbelti hefðu bjargað á fjórða tug mannslífa í Danmörku Fjórðungur þeirra 209 Dana sem létu lífið í umferðarslysum á nýliðnu ári notuðu ekki öryggisbelti. Þetta kemur fram í skýrslu danska umferðarráðsins og segir talsmaður þess tölurnar sláandi. Erlent 5.1.2009 07:54