Erlent

Auka viðbúnað á Hawaii vegna Norður-Kóreu

Bandaríkjaher hefur aukið viðbúnað sinn á Hawaii vegna hugsanlegrar eldflaugaárásar Norður-Kóreu en japanskt dagblað greindi frá því í gær að Norður-Kóreumenn hefðu í hyggju að skjóta langdrægustu eldflaug sinni í átt að Hawaii nálægt þjóðhátíðardegi Bandaríkjanna, 4. júlí.

Erlent

Allen Stanford handtekinn fyrir fjársvik

Bandaríska alríkislögreglan FBI handtók í gær auðkýfinginn Allen Stanford fyrir fjársvik en honum er gefið að sök að hafa gefið út skuldabréf að andvirði átta milljarða dollara með vöxtum sem eru of háir til að geta staðist.

Erlent

Bandaríski herinn á slóð N-kóreskra skipverja

Bandaríski herinn fylgist nú með norður kóreska skipinu Kang Nam, sem talið er flytja ólöglegan vopnabúnað eða tæki. Háttsettir yfirmenn í bandaríska hernum segjast ekki vita nákvæmlega hvað sé um borð, en skipið sé þekkt fyrir að flytja vafasaman varning.

Erlent

Dýravinir óánægðir með flugufregnir af Obama

Dýraverndunarsamtökin PETA (People for the Ethical Treatment of Animals) lýstu í dag yfir óánægju sinni með Barack Obama, forseta Bandaríkjanna. Ástæðan er sú að Obama steindrap flugu sem var að flögra um hann í miðju viðtali við CNBC sjónvarpsstöðina.

Erlent

Leitarhópur alltaf fundið svarta kassann

Paolo Carmassi, hátt settur yfirmaður í fyrirtækinu sem byggði svarta kassann í flugvél Air France sem hrapaði fyrr í mánuðinum, er ekki af baki dottinn við leitina að kassanum. Fyrirtæki hans, Honeywell Aerospace, hefur alltaf tekist að finna svarta kassann eftir flugslys hingað til.

Erlent

Hrollvekjandi fjöldi nauðgara í S-Afríku

Einn af hverjum fjórum Suður Afrískum karlmönnum sögðust hafa nauðgað í könnun sem heilsurannsóknarstöð landsins gerði. Helmingur nauðgaranna viðurkenndi að hafa nauðgað fleiri en einu fórnarlambi.

Erlent

Háskólanum í Teheran rústað - myndir á Facebook

Myndir voru birtar á samskiptasíðunni Facebook í dag sem sagðar eru sýna eyðileggingu í Háskólanum í Teheran. Varalið hliðhollt Íransforseta er sagt hafa ráðist þar með ofbeldi gegn stjórnarandstæðingum. Úrslitum forsetakosninganna í síðustu viku var áfram mótmælt í írönsku höfuðborginni í dag.

Erlent

Stjórn ESB mótmælt í Brussel

Það voru óánægðir Evrópubúar sem streymdu út á götur Brussel í dag til að mótmæla ýmsu sem þeir telja aflaga hafa farið í stjórn Evrópusambandsins. Leiðtogar ESB ríkja funduðu í borginni í dag um framtíð Lissabonsáttmálans og hvernig megi fá Íra til að samþykkja hann.

Erlent

Komu í veg fyrir hryðjuverkaárásir á kjördag

Írönsk yfirvöld segjast hafa komið í veg fyrir sprengjuárásir hryðjuverkamanna á kjördag í Íran fyrir tæpri viku. Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneyti leyniþjónustumála tókst lögreglu og leyniþjónustustofnunum í Íran að koma í veg fyrir sprengjuárásir í moskum og á fjölförnum stöðum í höfuðborginni Teheran síðasta föstudag þegar forsetakosningar fóru fram í landinu.

Erlent

Mótmælt sjötta daginn í röð

Búist er við fjölmennum mótmælum í Íran sjötta daginn í röð vegna úrslita forsetakosninga þar í landi fyrir tæpri viku. Byltingarráðið í Íran hefur kallað frambjóðendurna þrjá sem biðu ósigur til að bera vitni fyrir helgina vegna rannsóknar á ásökunum um kosningasvik.

Erlent

Kynjaskiptir lestarvagnar gegn öfuguggum

Rekstraraðilar járnbrauta í Tókýó, höfuðborg Japans, íhuga nú að taka í notkun lestarvagna fyrir karla eingöngu til að fyrirbyggja kynferðislega áreitni en töluvert er um að fingralangir öfuguggar gerist fjölþreifnir í yfirfullum vögnum á háannatíma þegar farþegarnir eru sem sardínur í dós í vögnunum.

Erlent

Tæpt tonn af kókaíni í frosnum hákörlum

Það var við höfnina í Progresso í Yucatan-fylkinu sem hermenn úr sjóher Mexíkó unnu við að gegnumlýsa frystigáma sem komið höfðu með flutningaskipinu Dover Strait frá Costa Rica á þriðjudaginn.

Erlent

Norður-Kóreumenn eiga mörg tonn af efnavopnum

Norður-Kóreumenn búa yfir nokkur þúsund tonnum af efnavopnum sem eldflaugar geta borið og nota mætti til dæmis til þess að gera skyndiárás á Suður-Kóreu. Þetta kemur fram í skýrslu rannsóknarstofnunarinnar International Crisis Group.

Erlent

Gervihnöttur til tunglsins í dag

Bandaríska geimferðastofnunin NASA mun í dag skjóta á loft gervihnetti sem fer á sporbaug um tunglið og verður þar í eitt ár í um 50 kílómetra hæð.

Erlent

Fjórtán ára í haldi vegna hnífsstungu

Fjórtán ára drengur hefur verið handtekinn vegna hnífsstungu sem átti sér stað í Isleworth í vestur Lundúnum. Fórnarlambið, sem talið er vera fimmtán eða sextán ára, fannst við South Street í Isleworth og liggur nú þungt haldið á spítala.

Erlent

Hollendingar geta gengið að eignum ríkisins

Leysa skal úr úr hugsanlegum ágreiningi vegna Icesave samningsins fyrir breskum dómstólum. Þetta kom fram í kvöldfréttum RÚV en fréttastofa Ríkissjónvarpsins hefur undir höndum eintak af Icesave samkomulaginu milli Íslendinga og Hollendinga.

Erlent

Norður Kórea hótar miskunarlausum aðgerðum

Norður Kóreumenn hafa varað við því að þeir muni gera miskunarlausa árás verði þeim ögrað af Bandaríkjamönnum eða bandamönnum þeirra. Þessi yfirlýsing kemur einungis klukkustundum eftir að Bandaríkjaforsetinn Barack Obama lýsti yfir að kjarnorkuáætlun Norður Kóreumanna væri mikil ógn við heimsbyggðina.

Erlent

Vill vinna gegn kjarnorkuáætlun N-Kóreu af krafti

Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, segir kjarnorkuógnina sem stafi af Norður Kóreu grafalvarlega. Hann lýsti því yfir á blaðamannafundi ásamt forseta Suður Kóreu, Lee Myung-bak, að Bandaríkin myndu vinna af krafti til að binda enda á kjarnorkuáætlun Norður Kóreumanna.

Erlent

Yfirvöld fá upplýsingar af Facebook og Twitter

Eftir að írönsk yfirvöld hófu að takmarka aðgang vestrænna fjölmiðla að mótmælunum í Íran hafa samskiptasíður á borð við Twitter og Facebook orðið ómetanlegar. Sérstaklega eru síðurnar mikilvægar fyrir Bandaríkjamenn sem eiga engin stjórnmálatengsl við Íran og eiga bágt með að fylgjast með ástandinu í landinu.

Erlent

Carter fundaði með leiðtoga Hamas

Jimmy Carter, fyrrum Bandaríkjaforseti, gagnrýnir ráðamenn í Ísrael harðlega fyrir ómanneskjulega meðferð á Palestínumönnum á Gazasvæðinu. Hann segir að farið sé með Palestínumenn líkt og dýr. Forsetinn fyrrverandi, sem er 84 ára, er staddur á Gazasvæðinu til að skoða vegsummerki eftir sprengjuárásir Ísraela fyrr á árinu. Hann fundaði með Ismail Haniyeh, leiðtoga Hamassamtakanna á Gazasvæðinu.

Erlent

Barn fórnarlambs svínaflensu í Skotlandi látið

Ungabarn konunnar sem lést úr svínaflensu í Skotlandi á sunnudaginn er látið. Barnið sem var drengur, fæddist þremur mánuðum fyrir tímann en konan var sett af stað í þeim tilgangi að reyna að bjarga barninu. Að sögn talsmanns sjúkrahússins lést drengurinn ekki úr svínaflensu.

Erlent

Atkvæði talin á ný í Íran

Klerkaráðið í Íran hefur kveðið upp þann úrskurð að telja skuli á ný atkvæði forsetakosninganna sem fram fóru þar í landi á föstudaginn.

Erlent