Erlent

Kalla alnæmisskimun „ástarprufur“

Alþjóðlegu góðgerðasamtökin PSI reyna nú nýjar leiðir til að vinna gegn HIV í Svasílandi í Afríku. Þau segjast vilja færa sig burt frá hræðsluáróðri, sem samtökin segja að virki ekki, og einbeita sér frekar að ástinni.

Erlent

Ungir drengir handteknir vegna hatursglæpa

Tveir unglingspiltar hafa verið handteknir í tengslum við óhuggulegar árásir á heimili sígauna í borginni Belfast á Norður Írlandi í síðustu viku. Drengirnir verða kærðir fyrir óspektir og ógnandi hegðun.

Erlent

Mótmælendur deyja í Íran

Ríkissjónvarpsstöðin í Íran greindi frá því í gær að þrettán hefðu látist í átökum mótmælenda og óeirðalögreglu í gær í miðborg Teheran í Íran. Fréttastofur á borð við CNN segja þó að tala látinna sé mun hærri.

Erlent

Grænlendingar fá aukna sjálfsstjórn

Grænlendingar fá aukna sjálfsstjórn í dag þegar Margrét Þórhildur Danadrottning afhendir þeim lög sem kveða formlega á um fullveldi landsins. Þetta þýðir að Grænlendingar fá auknar tekjur af auðlindum sínum og yfirráð yfir dóms- og lögreglumálum. Grænlenska, eða Kalaallisut, verður einnig opinbert tungumál.

Erlent

63 létust í bílasprengju

Að minnsta kosti 63 létust og tvöhundruð særðust þegar bílasprengja sprakk utan við mosku Sjíta múslima í norðanverðu Írak í gær. Sprengjan er sú mannskæðasta í tæpa tvo mánuði.

Erlent

Akrópólis-safnið opnað í Grikklandi

Hið nýja Akrópólis-safn í Aþenu hefur nú loks verið opnað eftir langa bið innfæddra. Byggingin er öll hin nýtískulegasta og stendur við rætur Akrópólishæðarinnar. Byggingin kostaði 130 milljónir evra, eða rúma 23 milljarða króna.

Erlent

Hluti atkvæða endurtalinn í Íran

Byltingarráðið í Íran hefur ákveðið að endurtelja tíu prósent atkvæða í þeim tilgangi að róa mótmælendur sem halda því fram að niðurstöður kosninganna 12. júní síðastliðinn séu rangar. Tugir þúsunda mótmæltu í dag í miðborg Teheran í Íran.

Erlent

Eyddu milljón í eitt sælgætisbréf

Breska unglisstúlkan Larissa Wilkinson slapp með skrekkinn þegar dómari bjargaði henni frá að greiða 75 punda sekt, andvirði tæplega 16.000 króna, fyrir að henda rusli út um bílglugga. Raunar gerði dómarinn gott betur en það – hann hellti sér yfir saksóknarann í málinu fyrir sóun á fé skattgreiðenda.

Erlent

Sameinuðu þjóðirnar rannsaka morðið á Bhutto

Óháð rannsóknarnefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna kemur til með að rannsaka morðið á Benazir Bhutto, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans. Bhutto var vegin í desember árið 2007 í aðdraganda þingkosninga landsins.

Erlent

Steve Jobs fékk nýja lifur

Steve Jobs, yfirmaður Apple, þurfti á lifrarígræðslu að halda fyrir tveimur mánuðum ef marka má heimildir Wall Street Journal. Samkvæmt blaðinu mun Jobs snúa aftur til vinnu síðar í mánuðinum, en mun hugsanlega fara rólega af stað.

Erlent

Bardagar í höfuðborg Sómalíu

Annan daginn í röð geysa miklir bardagar í Mogadishu, höfuðborg Afríkuríkisins Sómalíu. Íslamistar í landinu hafa gert uppreisn gegn ríkisstjórn lansdins og hertóku meðal annars lögreglustöð og aðrar opinberar byggingar í borginni.

Erlent

Nýjasta tækni til að sigrast á flugþreytu

Ef draumar vísindamanna við nokkra bandaríska háskóla rætast mun það taka ferðalanga helmingi minni tíma að jafna sig eftir ferðalög á milli tímabelta. Þeir vinna nú að því að finna lausn á flugþreytu með aðstoð nýjustu tækni.

Erlent

Lögreglumaður lést í sprengjutilræði

Varðstjóri í spænsku lögreglunni lést í dag eftir að bílasprengja sprakk í borginni Bilbao í Baskalandi. Yfirvöld í sjálfsstjórnarhéraðinu kenna ETA, aðskilnaðarsamtökum Baska, um tilræðið.

Erlent

Milljarður þjáist af matarskorti

Milljarður manna um allan heim þjáist af matarskorti. Sú tala hefur hækkað um hundrað milljónir vegna alþjóðlegs hruns á fjármálamörkuðum samkvæmt Sameinuðu þjóðunum.

Erlent

Betra eftirlit hefði hugsanlega bjargað Bretum

Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, styður að sett verði á laggirnar stofnun innan Evrópusambandsins sem fylgist með mögulegri kerfisáhættu í fjármálakerfinu. Segist forsætisráðherrann hafa bent á nauðsyn þess að hafa slíkt eftirlitskerfi innan sambandsins um þónokkurn tíma.

Erlent

Rússnesk orrustuflugvél fórst

Rússnesk orrustuflugvél að gerðinni SU-24 fórst í suðurhluta Rússlands í dag. Tveir hermenn voru um borð í vélinni og komust þeir báðir lífs af. Þetta er í annað sinn á þremur dögum sem að orrustuflugvél af sömu gerð ferst í Rússland en yfirvöld hafa bannað allt flug slíkra flugvéla á meðan að rannsókn fer fram á tildrögum slysanna.

Erlent

Yfirmaður spænsku lögreglunnar féll í sprengjuárás

Yfirmaður í hryðjuverkasveit spænsku lögreglunnar féll í sprengjuárás hryðjuverkamanna á Norður-Spáni í morgun. Aðskilnaðarhreyfingu ETA í Baskalandi er kennt um. Reynist það rétt er árásin sú fyrsta mannskæða sem samtökin hafa framið í hálft ár.

Erlent

Tony Blair flæktur í hneykslið

Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, er flæktur í kostnaðarhneysklið sem skekið hefur bresk stjórnmál og þjóðlíf Bretlands síðasta rúma mánuðinn. Blair mun hafa fengið endurgreiddan kostnað af þakviðgerðum á heimili sínu skömmu áður en hann lét af embætti.

Erlent

Maður segist vera barn sem hvarf árið 1955

Bandaríska alríkislögreglan FBI hefur sýnt fram á það með ítarlegum rannsóknum á erfðaefni manns nokkurs að hann er ekki ungbarn sem hvarf fyrir utan verslun á Long Island í New York árið 1955.

Erlent

Barþjónn skotinn í Horsens

Slagsmálum á bar í bænum Horsens á Austur-Jótlandi í nótt lyktaði með því að barþjónn var skotinn með haglabyssu en ætlun þess sem skaut var þó að hæfa annan mann sem hann hafði átt í illdeilum við.

Erlent

Geimskot tókst með ágætum

Geimskot gervihnattar, sem ætlað er að fara á sporbaug um tunglið og mynda yfirborð þess, tókst með ágætum en hnettinum var skotið á loft frá Canaveral-höfða á Flórída í gær.

Erlent