Erlent

Mannskætt lestarslys á Ítalíu

Tíu manns eru látnir og tugir slasaðir eftir að lest fór út af sporinu í bænum Viareggio á Norður-Ítalíu í nótt og gastankar, sem hún flutti, sprungu.

Erlent

Flugslys í Indlandshafi: Óttast um 154 um borð

Farþegaþota jemenska flugfélagsins Yemenia af gerðinni Airbus A310 hrapaði í Indlandshaf í nótt með 154 innanborðs, 143 farþega og ellefu manna áhöfn. Þotan var á leið frá Sanaa, höfuðborg Jemen, til borgarinnar Moroni á Comoro-eyjum sem eru í Indlandshafi undan austurströnd Afríku en flestir farþeganna eru frá eyjunum.

Erlent

Maddoff í 150 ára fangelsi

Fjársvikarinn Bernie Maddoff hefur verið dæmdur í 150 ára fangelsi eftir að hafa svikið 65 milljarða dollara út úr viðskiptavinum sínum. Fórnalömb Maddofs klöppuðu þegar dómurinn féll.

Erlent

Endurtalning í Íran

Hafin er endurtalning á atkvæðum forsetakosninganna í Íran í 22 hverfum í höfuðborginni Teheran og nokkrum héruðum að auki.

Erlent

Hátíðnihljóð nægja ekki til að fæla ungmenni frá

Skemmdarverk voru unnin á salerni í almenningsgarði í Tókýó um helgina og virðist þar með sem tilraun til að fæla unglinga frá garðinum að næturlagi með því að senda út óþægilegt hátíðnihljóð, sem aðeins fólk innan við tvítugt nemur, hafi ekki haft tilætluð áhrif.

Erlent

Skotið á bíl í Óðinsvéum

Átta skotum var skotið að bíl í Óðinsvéum í Danmörku síðdegis í gær. Tveir innflytjendur voru í bílnum og sakaði þá ekki sem þótti mesta mildi.

Erlent

Tólf pakistanskir hermenn féllu

Uppreisnarmenn úr röðum talibana sátu fyrir bílalest pakistanska hersins og drápu tólf pakistanska hermenn nærri landamærunum að Afganistan í gær.

Erlent

Madoff dæmdur í dag

Svikahrappurinn Bernard Madoff verður færður fyrir dómara í dag og honum kynnt hvaða refsingu hann muni hljóta. Madoff rak umfangsmikla fjársvikamillu og beitti svokölluðu Ponzi-svindli til að ná fé út úr viðskiptavinum sínum en það felst í því að greiða fjárfestum arð með fé sem aðrir fjárfestar höfðu lagt til fyrirtækis hans.

Erlent

Fyrsta dauðsfallið í Brasilíu vegna svínaflensunnar

Fyrsta dauðsfallið vegna svínaflensunnar í Brasilíu hefur verið staðfest en karlmaður á sextugsaldri lést vegna flensunnar í dag. Hann greindist með fyrstu einkenni um miðjan júní eftir að hafa heimsótt Argentínu. Í framhaldinu var hann lagður inn á sjúkrahús.

Erlent

Járnfrúin útskrifuð

Járnfrúin Margaret Thatcher, fyrrum forsætisráðherra Bretlands, verður að öllum líkindum útskrifuð af sjúkrahúsi á morgun en þar hefur hún verið undir eftirlit eftir að hún féll á heimili sínu og handleggsbrotnaði fyrir rúmum þremur vikum.

Erlent

Miliband æfur og hótar Írönum refsiaðgerðum

David Miliband, utanríkisráðherra Bretlands, er sagður æfur út í ráðamenn í Íran eftir að níu starfsmenn breska sendiráðsins í höfuðborginni Teheran voru handteknir í morgun. Hann hefur hótað Írönum refsiaðgerðum.

Erlent

Obama hvetur fólk til að fara í alnæmispróf

Birtar hafa verið myndir af því þegar Barack Obama forseti Bandríkjanna og kona hans Michelle gengust undir alnæmispróf. Það er kannski rétt að taka strax fram að myndirnar eru þriggja ára gamlar og að prófið var aðeins táknrænt.

Erlent

Forseti Hondúras handsamaður

Hermenn í Hondúras handsömuðu Manuel Zelaya forseta landsins í dag og fluttu hann á brott úr forsetahöllinni. Forsetinn sem er góður vinur Hugo Chavez, forseta Venúsúela, vill breyta stjórnarskrá landsins svo hann geti boðið sig fram til endurkjörs á næsta ári. Hann rak í síðustu viku yfirmann herráðsins sem vildi ekki aðstoða við breytingarnar og eru atburðirnir í dag taldir tengjast því.

Erlent

Heimili Jacksons tæmt

Jósef Jackson er sagður hafa áhyggjur af því að hlutum yrði stolið af heimili sonarins og því ákveðið að tæma það af verðmætum.

Erlent

Leyfi hermanna í Írak afturkölluð

Um eitthundrað og þrjátíu þúsund bandarískir hermenn eru enn í Írak. Brottflutningur þeirra er hinsvegar í undirbúningi en honum á að ljúka tvöþúsund og ellefu.

Erlent

Telja svani drottningar

Hina árlegu svanatalningu á Temsá má rekja allt aftur á tólftu öld. Það er aldagömul hefð í Bretlandi að þjóðhöfðinginn á alla ómerkta svani á ám og vötnum landsins.

Erlent

Jackson krufinn aftur

Fjölskylda Michael Jacksons hefur fengið lík hans afhent og ætlar að láta gera sína eigin krufningu. Fyrstu niðurstöður opinberrar krufningar leiddu banamein hans ekki í ljós.

Erlent

Fjögur prósent dauðsfalla má rekja til áfengis

Rekja má 4% dauðsfalla í heiminum til áfengisdrykkju, fullyrða kanadískir sérfræðingar við háskólann í Toronto. Þeir segja áfengi hafa skaðlegri áhrif á efnaminni fólk heldur en þá efnameiri. Samkvæmt úttekt þeirra drekka Evrópubúar langmest af áfengum drykkjum samanborið við aðra jarðarbúa.

Erlent