Erlent
Borgaði 23 þúsund billjónir Bandarískur maður fékk rúmlega 23 þúsund billjóna (23 milljónir milljarða) dala kreditkortareikning eftir að hann keypti einn sígarettupakka á bensínstöð. Erlent 16.7.2009 00:00
Svarti kassinn fundinn en skemmdur Björgunarmenn hafa fundið svarta kassann í farþegaflugvélinni sem hrapaði í Norður Íran í morgun. Kassinn er talinn skemmdur en rannsóknarmenn vonast til þess að ná upplýsingum úr honum varðandi tildrög og ástæðu slyssins. Erlent 15.7.2009 23:15
Rússnenskur aðgerðarsinni myrtur Rússnenski aðgerðarsinninn Natalia Estemirova fannst látin í norður-kákasushéraði í Rússlandi. Hún hafði verið myrt. Henni hafði verið rænt út á götu þegar henni var kippt upp í sendiferðarbíl og í kjölfarið drepin. Erlent 15.7.2009 21:08
Á annað hundrað manns fórst í flugslysi Óttast er að 150 farþegar sem voru um borð í þotu sem hrapaði í norðvesturhluta Íran fyrir í morgun hafi farist. Þotan var frá leið til Tehran til Yerevan. Erlent 15.7.2009 09:46
Harry Potter veitt uppreist æru Harry Potter hefur verið veitt uppreist æru innan Páfagarðs og hreinsaður af áburði um djöfladýrkun auk annars. Erlent 15.7.2009 08:24
NAACP vilja myndir af lögregluofbeldi Réttindasamtök þeldökkra í Bandaríkjunum (NAACP) hafa opnað fyrir möguleika til að hlaða myndum af lögregluofbeldi inn á heimasíðu samtakanna. Erlent 15.7.2009 08:10
Selja Bretum svikið fish & chips Veitingamenn á hinum hefðbundnu bresku fiskveitingahúsum hafa ítrekað verið staðnir að því að selja leirgeddu frá Víetnam sem þorsk. Erlent 15.7.2009 07:28
Skaut úr veiðiriffli gegnum framrúðu Ótrúlegt þykir að 18 ára ökumaður í bænum Vinderup á Jótlandi hafi sloppið ómeiddur eftir að rúmlega fimmtugur maður skaut nokkrum skotum úr veiðiriffli gegnum framrúðu bíls hans. Erlent 15.7.2009 07:26
Þrjár púmur skotnar í Bresku-Kólumbíu Þrjár púmur hafa verið skotnar nærri kanadíska bænum Princeton í Bresku-Kólumbíu það sem af er mánuðinum. Erlent 15.7.2009 07:23
Skutu borgarstjóra í hefndarskyni Byssumenn, sem grunur leikur á að tengist eiturlyfjasmyglhring, skutu borgarstjóra Namiquipa-borgar í Norður-Mexíkó til bana þar sem hann sat undir stýri bíls síns í gær. Erlent 15.7.2009 07:21
Verkfall 12.000 breskra póstmanna Verkfall 12.000 póststarfsmanna um allt Bretland, sem hefst síðdegis á morgun og stendur í einn sólarhring, mun setja póstþjónustu þar í landi verulega úr skorðum. Erlent 15.7.2009 07:18
Óttast hörku Kínastjórnar Baráttuhópar Úígúra í Mið-Asíuríkjum hvetja nú liðsmenn sína og stuðningsfólk til að hafa hægt um sig og forðast fjöldamótmæli. Erlent 15.7.2009 04:15
Renzaho fer í lífstíðarfangelsi Stríðsglæpadómstóll á vegum Sameinuðu þjóðanna hefur komist að þeirri niðurstöðu að Tharcisse Renzaho, 65 ára fyrrverandi ríkisstjóra í Kigali, höfuðborg Rúanda, hafi verið einn helsti forsprakki fjöldamorðanna þar árið 1994. Erlent 15.7.2009 02:45
Orkufyrirtækin stærst í heimi Olíufélagið Royal Dutch Shell er stærsta fyrirtæki heims, samkvæmt nýrri samantekt viðskiptatímaritsins Fortune. Tímaritið birtir árlega lista yfir stærstu fyrirtæki heims. Erlent 15.7.2009 01:45
Leynileg áætlun um morðsveitir frá CIA Frá árinu 2001 var bandaríska leyniþjónustan CIA með áætlun tilbúna um að ráða helstu leiðtoga hryðjuverkasamtakanna Al Kaída af dögum. Þeirri áætlun var aldrei hrint í framkvæmd, en hún var heldur ekki lögð á hilluna fyrr en í síðasta mánuði. Erlent 15.7.2009 00:45
Buzek forseti Evrópuþingsins Jerzy Buzek, fyrrverandi forsætisráðherra Póllands, var í gær kosinn forseti Evrópuþingsins. Erlent 15.7.2009 00:30
Litháar banna umfjöllun um samkynhneigð Litháenska þingið samþykkti í dag lög sem banna umfjöllun um samkynhneigð, tvíkynhneigð og fjölkvæni á vefsíðum og annarstaðar. Ástæðan fyrir lögunum er sú að þau séu til þess að vernda börn fyrir þeim. Erlent 14.7.2009 22:51
Útafarastofu lokað vegna illrar meðferðar á líkum Dómari í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum hefur fyrirskipað að útfarastofu í fylkinu skuli lokað eftir að í ljós kom að starfsmaður hennar sagaði fætur látins manns af við kálfa til þess að koma honum fyrir í kistunni. Erlent 14.7.2009 21:42
Kínverjar óttast Al-Qaeda vegna kynþáttaóeirða Kínversk yfirvöld eru áhyggjufull eftir að hryðjuverkasamtökin Al-Qaeda hótaði að hefna grimmilega fyrir þá Uighura-Kínverja sem hafa fallið í kynþáttaátökum á milli þeirra og Han-Kínverja í borginni Urumqi. Erlent 14.7.2009 21:12
Brúðarvöndur grandaði flugvél Hefðin að kasta brúðarvendi leiddi til alvarlegs óhapps þegar flugvél á Ítalíu hrapaði eftir að vendinum hafði verið kasta út úr henni. Erlent 14.7.2009 20:45
Endeavour-skoti frestað í fimmta skipti Fresta þurfti skoti geimferjunnar Endeavour í gær, þriðja daginn í röð og allt í allt í fimmta skiptið frá því að hefja átti leiðangurinn. Þrumuveður geisaði í innan við 20 sjómílna fjarlægð frá skotpallinum og banna öryggisreglur NASA skot við þær aðstæður. Erlent 14.7.2009 08:34
Skildu tólf lík eftir í vegkanti Lögregla í vesturhluta Mexíkó fann í gær tólf lík sem skilin höfðu verið eftir í vegkanti. Erlent 14.7.2009 08:13
Ferðaskrifstofur bjóða sólskinstryggingu Fréttastofan greindi frá því á föstudaginn að franskir ferðamenn þættu samkvæmt könnun þeir verstu í heimi. Hins vegar virðast franskar ferðaskrifstofur standa sig öllu betur. Erlent 14.7.2009 08:11
Skjálfti upp á 6,3 á Taiwan Snarpur jarðskjálfti upp á 6,3 stig á Richter skók Taiwan snemma í morgun. Að sögn bandarísku jarðskjálftavaktarinnar átti hann upptök sín um 135 kílómetra suð-suðaustur af höfuðborginni Taipei og á 25 kílómetra dýpi. Erlent 14.7.2009 07:36
Nauðlenti eftir að gat kom á farþegaþotu Boeing 737-farþegaþota frá Southwest Airlines nauðlenti í Charleston í Vestur-Virginíu í gær eftir að gat á stærð við fótbolta kom skyndilega á skrokk hennar. Erlent 14.7.2009 07:32
Hleypti óvart af byssu í miðju ráni Þrír menn, sem gerðu tilraun til að ræna verðmætaflutningabíl í Tåstrup í Danmörku í gærkvöldi, höfðu ekkert upp úr krafsinu. Erlent 14.7.2009 07:30
Flugmenn BA samþykkja kauplækkun Flugmenn breska flugfélagsins British Airways hafa samþykkt að taka á sig kauplækkun sem ætlað er að spara félaginu 26 milljónir punda, jafnvirði rúmra fimm milljarða króna, á ársgrundvelli. Erlent 14.7.2009 07:29
Kortleggja glæpastarfsemi í Bretlandi Að minnsta kosti 30.000 afbrotamenn í Bretlandi tilheyra einhvers konar skipulögðum glæpahópum. Þetta er niðurstaða rannsóknar þarlendrar lögreglu sem hefur nú í fyrsta sinn kortlagt glæpastarfsemi á Englandi og í Wales. Erlent 14.7.2009 07:26
Segir áhættuna óhjákvæmilega Bob Ainsworth, varnarmálaráðherra Bretlands, varði í gær aðgerðir breska hersins í Afganistan, sem hafa kostað 15 breska hermenn lífið það sem af er þessum mánuði. Erlent 14.7.2009 06:00
Sotomayor spurð út úr Sonia Sotomayor sat fyrir svörum í Öldungadeild Bandaríkjaþings í gær. Þingmenn þurfa að staðfesta skipun hennar í embætti Hæstaréttardómara. Erlent 14.7.2009 03:45