Erlent

Brúðarvöndur grandaði flugvél

Hættulegur brúðarvöndur.
Hættulegur brúðarvöndur.
Hefðin að kasta brúðarvendi leiddi til alvarlegs óhapps þegar flugvél á Ítalíu hrapaði eftir að vendinum hafði verið kasta út úr henni.

Vöndurinn fór í skrúfu vélarinnar og hún hrapaði á gistiheimili nærri brúðkaupinu sem var haldið í Montioni garði í Suvereto, nærri Livorno á Ítalíu.

Brúðarhjónin ákváðu að brydda upp á þeirri nýjung að láta kasta vendinum úr flugvélinni í stað þess að brúðurin kastaði honum aftur fyrir sig eins og hefðin kveður á um.

Það þykir mildi að enginn var inn á gistiheimilinu þegar flugvélin flaug á það. Aftur á móti slasaðist farþegi flugvélarinnar, sá sami og kastaði vendinum, alvarlega við brotlendinguna.

Samkvæmt BBC var farþeginn færður á spítala í Pisa með þyrlu. Hann var með alvarlegan höfuðáverka auk þess sem hann beinbrotnaði við fallið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×