Erlent
Miðvikudagar verri en mánudagar Eftir að hafa rannsakað meira en 2,4 milljónir vefdagbóka, þar á meðal Twitter, hafa prófessorarnir Christopher Danforth og Peter Dodds við Vermont háskóla í Bandaríkjunum komist að því að miðvikudagur er versti dagur vikunnar. Erlent 23.8.2009 20:01
Tíu þúsund manns flýja skógarelda á Grikklandi Fjölmörg heimili norðaustan Aþenu, höfuðborgar Grikklands, urðu skógareldum að bráð í nótt og í morgun. Illa gengur að ná tökum á eldunum. Grískt yfirvöld fyrirskipuðu í morgun að tíu þúsund manns skyldi flytja á brott frá heimilum sínum. Erlent 23.8.2009 12:50
Bandaríkjaher gefur upp nöfn fanga í leynifangelsum Bandaríkjaher er byrjaður að gefa Rauða krossinum upp nöfn fanga sem herinn haldi í leynifangelsum í Afganistan og Írak. Þetta fullyrðir bandaríska blaðið New York Times í morgun og hefur eftir ónanfgreindum heimildarmönnum í bandaríska stjórnkerfinu. Erlent 23.8.2009 11:09
Samdi konsert fyrir kött Nora, fimm ára gömul læða frá Fíladelfíufylki í Bandaríkjunum, er nú orðin fræg á internetinu eftir að litháiski hljómsveitarstjórinn Mindaugas Piecaitis samdi fyrir hana konsert. Erlent 23.8.2009 08:30
Þriggja daga þjóðarsorg í Taívan Þriggja daga þjóðarsorg hófst í Taívan í gær. Flaggað er í hálfa stöng til að minnast þeirra sem létu líf sitt í fellibylnum Morakot. Erlent 23.8.2009 08:00
Afhentu vopn í skiptum fyrir sakaruppgjöf Hundruð herskárra uppreisnarmanna í sunnanverðri Nígeríu létu vopn sín af hendi í dag við hátíðlega athöfn í Yenagoa. Erlent 22.8.2009 22:30
Heppinn ítali vann tugi milljarða í lottó Heppinn Ítali vann einar 146,9 milljónir evra í ofurlóttóinu Suprenalotto sem rekið er af ríkinu. Andvirði vinningsins er meira en 26 milljarðar íslenskra króna. Erlent 22.8.2009 21:00
Hæ, ég er með kynsjúkdóm Brasilíska heilbrigðisráðuneytið hefur útbúið heimasíðu sem gerir fólki kleift að láta elskhuga sína vita af kynsjúkdómasmiti með tölvupóstkorti. Erlent 22.8.2009 18:20
Verðandi varnarmálaráðherra Írans eftirlýstur fyrir sprengjuárás Verðandi varnarmálaráðherra Írans er eftirlýstur af alþjóðalögreglunni, Interpol, fyrir að hafa skipulagt sprengjuárás á samkomuhús gyðinga í Argentíu fyrir fimmtán árum. Áttatíu og fimm týndu lífi í árásinni. Erlent 22.8.2009 16:40
Segja töluvert um svik í forsetakosningum Afganistan Afganskir kosningaeftirlitsmenn segja að töluvert hafi verið um svik í forsetakosningunum í Afganistan á fimmtudaginn. Evrópusambandið telur að kosningarnar hafi ekki verið að fullu fjrálsar en að mestu réttlátar. Erlent 22.8.2009 15:24
Um helmingur treystir Obama Tæpur helmingur Bandaríkjamanna, um 49 prósent þeirra sem tóku þátt í nýrri skoðanakönnun, segist trúa því að Barack Obama Bandaríkjaforseti muni taka réttar ákvarðanir. Erlent 22.8.2009 08:45
Þrettán hundruð börn með blýeitrun Meira en þrettán hundruð börn hafa greinst með blýeitrun vegna mengunar frá manganbræðslu í bænum Wenping í Hunan-héraði. Aðeins fáeinir dagar eru frá því hundruð manna greindust með blýeitrun vegna mengunar frá annarri verksmiðju í Kína. Erlent 22.8.2009 08:30
Lausn Líbíumanns vekur reiði og deilur Bandarísk stjórnvöld hafa gagnrýnt ákvörðun dómsmálaráðherra Skotlands um að leysa Líbíumanninn Abdel Baset al-Megrahi úr haldi. Erlent 22.8.2009 07:30
Tveir segjast vera sigurvegarar Bæði Hamid Karzai, núverandi forseti, og Abdullah Abdullah, fyrrverandi utanríkisráðherra í stjórn Karzais, sögðust í gær sannfærðir um að hafa unnið sigur í forsetakosningunum í Afganistan sem haldnar voru daginn áður. Erlent 22.8.2009 07:00
Bílaumferð eyðileggur kynlífið Bílaumferð virðist hafa afar slæm áhrif á kynlíf trjáfroska sem búa í námunda við borgir og bæi í Ástralíu. Ný rannsókn hefur leitt í ljós að umferðarniðurinn drekkir lostafullu kvakki karlfroskana, með hörmulegum afleiðingum. Erlent 22.8.2009 03:00
Obama-döðlur seljast langbest Í Mið-Austurlöndum þykja döðlur ómissandi fæða í hinum helga mánuði, ramadan, sem hefst í dag í flestum löndum múslima. Í ár seljast döðlur, sem kenndar eru við Barack Obama Bandaríkjaforseta, betur en aðrar döðlur. „Við höfum hrifist af Obama og þess vegna nefnum við bestu döðlurnar okkar í höfuðið á honum,“ segir Athif Hashim, kaupmaður í Kaíró, höfuðborg Egyptalands. Erlent 22.8.2009 02:00
Lausn Megrahis sögð tengjast viðskiptasamningum Lausn Lockerbie sprengjumannsins Abdel Baset al Megrahi er sagt tengjast viðskiptasamningum milli Bretlands og Líbíu. Þessu heldur sonurr Gaddafi ofursta Líbíu fram. Erlent 21.8.2009 22:14
Obama hrósar Afgönum fyrir lýðræðislegar forsetakosningar Barack Obama, Bandaríkjaforseti, segir að forsetakosningarnar í Afganistan séu mikilvægt skref fram á við fyrir land sem hefur búið við ofbeldi og óstöðugleika árum saman. Erlent 21.8.2009 20:57
Skapaði lengsta ljóð í heimi með aðstoð Twitter Rúmenskur vefhönnuður heldur því nú fram að hann hafi skapað lengsta ljóð í heimi. Ljóðið samanstendur af handahófskenndum Twitter skilaboðum enskumælandi notenda og er ein 364 þúsund erindi. Erlent 21.8.2009 16:03
Skotbardagar milli lögreglu og bankaræningja í Árósum Til skotbardaga kom milli lögregluþjóna og bankaræningja sem réðust inn í útibú Nordea bankans skammt frá Randersvej í Árósum um klukkan tíu í morgun að dönskum tíma. Lögregluhundur drapst eftir að hann varð fyrir skoti. Einn ræningjanna er í haldi lögreglunnar en talið er að þeir hafi verið fleiri og leitar lögreglan þeirra nú, meðal annars með aðstoð þyrlu. Talið er að ræningjarnir séu frá Litháen. Erlent 21.8.2009 11:07
Lockerbie morðingi fékk konunglegar móttökur í Líbíu Aðstandendur þeirra sem létust í Lockerbie ódæðinu eru ævareiðir yfir því að maðurinn sem sprengdi farþegaþotu í loft upp árið 1988 skuli vera frjáls maður. Honum var fagnað sem hetju við heimkona til Líbíu í gærkvöldi. Erlent 21.8.2009 09:30
Bush vildi hækka hættustig vegna hryðjuverka kortéri fyrir kosningar Fyrrverandi heimavarnaráðherra Bandaríkjanna segir að stjórnvöld hafi reynt að fá hann til þess að auka hættustigið í landinu rétt fyrir kosningar. Erlent 21.8.2009 08:55
Talning hafin í Afganistan Talning atkvæða er hafin í kjölfar forsetakosninga í Afganistan sem haldnar voru í landinu í gær. Milljónir Afgana létu hótanir um ofbeldi á kjörstað ekki aftra sér frá því að mæta en þetta er í annað sinn sem Afganar ganga að kjörborðinu eftir að Talíbanar voru hraktir frá völdum í landinu. Erlent 21.8.2009 08:46
Hýdd fyrir að fá sér bjórglas Fyrirsæta ein í Malasíu er fyrsta konan í sögu landsins sem dæmd hefur verið til þess að hljóta sex vandarhögg fyrir að drekka bjór á almannafæri. Dómurinn var felldur af Sharía dómstól landsins en fyrirsætan sjálf hefur nú krafist þess að dómnum verði framfylgt á almannafæri. Erlent 21.8.2009 08:44
Strax færð til yfirheyrslu Ellefu menn úr áhöfn rússneska flutningaskipsins Arctic Sea voru samstundis færðir til yfirheyrslu eftir að áhöfnin kom til Moskvu með flugi í gær. Erlent 21.8.2009 03:00
Lemúrar hafðir á matseðlinum Fimmtán hafa verið handteknir á eyjunni Madagaskar grunaðir um að hafa slátrað fjölda lemúra. Erlent 21.8.2009 02:45
Tveir menn kærðir vegna skartgriparáns í Lundúnum Mennirnir tveir sem handteknir voru í tengslum við 40 milljón punda rán í Graff skartgripaversluninni í miðborg lundúna, hafa verið ákærðir. Þetta kemur fram í Scotland Yard. Erlent 20.8.2009 23:30
Skotárás á Norðurbrú í Kaupmannahöfn Óeinkennisklæddur lögreglumaður er særður eftir skotárás við Jægersborggade á Norðurbrú í Kaupmannahöfn fyrr í kvöld. Maðurinn hlaut skotsár á handlegg og maga. Árásin átti sér stað í hverfi þar sem fíkniefnasalar og glæpagengi ráða ríkjum. Erlent 20.8.2009 22:49
Kosningaþáttaka dræm í Afganistan Kjörstöðum hefur nú verið lokað í Afghanistan en í dag fóru fram forsetakosningar í landinu. Ofbeldi og hótanir öfgamanna vörpuðu þó ákveðnum skugga á kosningadaginn. Erlent 20.8.2009 20:49
Drengur handtekinn vegna háríkveikju í lest Sextán ára drengur hefur verið handtekinn fyrir að kveikja í hári á ferðamanni i lest sem var á leið frá Hastings til London. Erlent 20.8.2009 20:32