Erlent
Nunna erfði hóruhús Fimmtíu og fimm ára gömul nunna í Skotlandi erfði hóruhús í Austurríki eftir móður sína sem hún hafði aldrei séð. Erlent 15.3.2010 16:53
Höfum byggt í Jerúsalem í 40 ár Bandaríkjamenn þrýsta mjög á Ísraela að hætta við áform um að byggja 1600 nýjar íbúðir í austurhluta Jerúsalem. Erlent 15.3.2010 15:57
Vill bin Laden fjölskylduna lausa Í bréfi sem sagt er vera frá einum af sonum Osama bin Ladens er æðsti trúarleiðtogi Írans hvattur til þess að sleppa fjölskyldumeðlimum bin Ladens úr prísund sinni. Erlent 15.3.2010 15:22
Tígrisdýrin eru að hverfa Gersamlega hefur mistekist að vernda stofn tígrisdýra sem nú er í alvarlegri útrýmingarhættu að sögn stofnunar Sameinuðu þjóðanna um bann við sölu á afurðum dýra í útrýmingarhættu, CITES. Erlent 15.3.2010 15:08
Ósprungnar fosfórsprengjur á Gaza ströndinni Sprengjusérfræðingar Sameinuðu þjóðanna hafa sprengt upp 340 fallbyssukúlur og sprengjur sem ekki sprungu þegar Ísraelar vörpuðu þeim á Gaza ströndina í innrásinni á síðasta ári. Erlent 15.3.2010 14:51
Handskrifað ritmál er að hverfa Handskrifað ritmál er smámsaman að leggjast af og eftir einhver ár verður hætt að kenna það í skólum, segir framtíðarrýnirinn Johan Peter Paludan í samtali við danska blaðið 24timer. Erlent 15.3.2010 13:53
Viðurkenndi morð á sex börnum sínum Þrjátíu og átta ára gömul frönsk kona viðurkenndi fyrir rétti í dag að hún hefði myrt sex nýfædd börn sín. Lík barnanna fundust í plastpokum í kjallara hennar. Erlent 15.3.2010 13:24
Norðmenn missa bíla sína Nauðungaruppboð á bílum jukust um 40 prósent í Noregi árið 2009 miðað við árið áður. Það eru bílaumboð og lánastofnanir sem heimta bílana aftur þegar kaupendurnir geta ekki staðið í skilum með afborganir. Erlent 15.3.2010 10:34
Ein stærsta rannsókn sem unnin hefur verið á orsökum geðklofa Ef báðir foreldrar barns eru haldnir geðklofa eru næstum 70% líkur á því að barnið sjálft verði haldið einhverjum geðsjúkdóm, sýnir ný dönsk rannsókn. Um 25% líkur eru á því að barnið fá sjálft geðklofa. Erlent 15.3.2010 10:17
Fangelsi og há sekt fyrir að selja hvalkjöt Japanskur veitingamaður í Kaliforníu á yfir höfði sér eins árs fangelsi og um 40 milljóna króna sekt fyrir að selja sushi með hvalkjöti. Erlent 15.3.2010 09:54
Flokkur Sarkozy tapaði Allt lítur út fyrir að hægriflokkur Frakklandsforseta hafi beðið ósigur í fyrri umferð í héraðskosningunum sem fóru fram í gær. Erlent 15.3.2010 08:13
Prestfrú lést á meðan hún fastaði 55 ára prestfrú í Flórída lést nýverið eftir að hún lokaði sig inni í svefnherbergi til að fasta. Það sagðist hún gera til að minnast þess tíma sem Jesús fastaði í eyðimörkinni. Erlent 15.3.2010 08:09
Bandaríkjastjórn enn móðguð Bandríkjastjórn telur að Ísraelar hafi sýnt varaforsetanum Joe Biden mikla vanvirðingu þegar þeir tilkynntu í síðustu viku um byggingu 1600 nýrra íbúða gyðinga í austurhluta Jerúsalem. Biden var þá í þriggja daga heimsókn á svæðinu og skyggði tilkynningin á heimsókn hans en vonir voru bundnar við að hún yrði til þess að Ísraelar og Palestínumenn hæfu friðarviðræður á nýjan leik. Palestínumenn vilja að austurhluti borgarinnar verði höfuðborg sjálfstæðrar Palestínu. Erlent 15.3.2010 07:57
Kennari kærður fyrir að kalla nemenda aumingja Bandarískur kennari hefur verið kærður fyrir að kalla stúlku í sjötta bekk „loser“ eða aumingja í umsögn í tengslum við ritgerð sem hún skilaði. Erlent 15.3.2010 07:10
Århus verði Aarhus Meirihluti borgarstjórnar Árósa vill að stafsetningu á heiti borgarinnar verið breytt og að hætt verði að nota danska bolluaið og að í stað bókstafsins komi tvöfallt A. Frá þessu er greint á vef Berlingske Tidende. Erlent 15.3.2010 07:08
Handtekinn fyrir að hóta fjöldamorðum í Svíþjóð Lögreglan í Stokkhólmi handtók í gærkvöldi karlmann sem hefur viðurkennt að hafa hótað að fremja fjöldamorð í Konunglega tækniháskólanum í höfuðborg Svíþjóðar í dag. Erlent 15.3.2010 07:00
Boðað verkfall flugliða óréttlætalegt Samgönguráðherra Bretlands gagnrýnir harðlega fyrirhugað verkfall sem flugliðar hjá flugfélaginu British Airways hafa boðað um næstu helgi. Að hans mati eru hinar fyrirhuguðu aðgerðir með öllu óréttlætanlegar. Um helgina slitnaði upp úr viðræðum á milli samningsaðila og lítur allt út fyrir að þúsundir starfsmanna flugfélagsins leggi niður störf í þrjá daga frá og með næsta laugardegi. Ráðherrann telur að boðað verkfall stefni framtíð British Airways í hættu. Erlent 15.3.2010 06:58
Vilja Thaksin aftur til valda Bangkok, ap Þúsundir mótmælenda komu saman í Bangkok, höfuðborg Taílands á sunnudag. Mótmælendurnir, sem kenndir eru við rauðar skyrtur, vilja að stjórnvöld leysi upp þingið og efni til kosninga. Þannig vonast þeir til að Thaksin Shinawatra, fyrrverandi forsætisráðherra, komist aftur til valda en hann var settur af með hervaldi árið 2006 vegna meintrar spillingar og misbeitingu valds. Erlent 15.3.2010 01:30
Skotheld vesti seljast eins og heitar lummur fyrir HM Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu sem fram fer í sumar hefur orðið til þess að skotheld fatnaður kólombíska fatahönnuðarins Miguel Caballero selst sem aldrei fyrr. Skotheldu vestin hans Caballeros eru nægilega sterk til þess að standast vélbyssuskothríð en þykja einnig svo vel hönnuð að hægt er að vera í þeim í fínustu koteilboðum. Erlent 14.3.2010 21:30
Ekkert lát á morðum í Mexíkó Ekkert lát virðist vera af fréttum um morð í Mexíkó sem tengjast eitulyfjahringjum. Nú síðast voru þrjár manneskjur myrtar í landamæraborginni Ciudad Juarez og tengjast þær ræðisskrifstofu Bandaríkjanna þar í borg. Tvö hinna myrtu voru Bandaríkjamenn, kona sem starfaði á skrifstofunni og eiginmaður hennar. Þá var Mexíkanskur eiginmaður annars starfsmanns einnig drepinn. Erlent 14.3.2010 21:30
Eftirlýstur Baski handtekinn í London Lögreglan í Lundúnum handtók í dag mann sem eftirlýstur er af spænskum yfirvöldum fyrir hryðjuverk. Maðurinn, Garikotz Murua, er 29 ára gamall Baski og er hann talinn tengjast aðskilnaðarsamtökum Baska, ETA. Er honum gefið að sök að hafa efnt til og tekið þátt í óeirðum og hemdarverkum í Baskalandi. Erlent 14.3.2010 20:22
Leitað að kallinum í kassanum - 30 þúsund pund í boði Tim Shaw hefur verið lokaður inni í kassa á stærð við fataskáp einhversstaðar á Bretlandi í rétt tæpan mánuð. Sá fyrsti sem finnur Tim fær 30 þúsund pund að launum en tíminn er að renna út. Tim ætlar að vera í kassanum í heilan mánuð og síðdegis á morgun rennur tíminn út. Erlent 14.3.2010 20:15
Fjöldamorðum hótað í háskóla í Stokkhólmi Lögreglan í Stokkhólmi rannsakar nú orðsendingu sem birtist á netinu á föstudaginn var en í henni hótar óþekktur maður að fremja fjöldamorð í Konunglega tækniháskólanum í höfuðborg Svíþjóðar. Lögregla og skólayfirvöld taka hótunina mjög alvarlega. Erlent 14.3.2010 17:37
Mamma Maddíar biður fyrir ræningjunum Kate McCann, móðir Maddý litlu sem hvarf af hótelherbergi í Portúgal árið 2007, segist biðja fyrir mönnunum sem rændu dóttur hennar. Þetta kemur fram í útvarpsviðtali við Kate sem fór í loftið í dag á BBC. McCann, sem er kaþólsk, segir að Guð hafi gefið sér innri styrk til þess að komast í gegnum daginn þegar portúgalska lögreglan gaf henni réttarstöðu grunaðs í málinu. Erlent 14.3.2010 16:38
Árásin í Kandahar var aðvörun til Bandaríkjamanna Sprengjuárásirnar í Kandahar í gær sem urðu að minnsta kosti 35 manns að bana í gær voru aðvörun til Bandaríkjanna og NATO. Talsmaður Talibana lýsti þessu yfir í dag og var árásunum ætlað að fæla Bandaríkjamenn og bandamenn þeirra frá því að auka við liðsstyrk sinn á svæðinu til þess að hrekja Talíbana á brott. Erlent 14.3.2010 15:21
Snjósleðamenn lentu í snjóflóði Þrír snjósleðamenn eru látnir og margra er saknað í Kanada eftir að snjóflóð féll í kanadísku klettafjöllunum í gær. Um 200 snjósleðamenn voru þar samankomnir á móti þegar flóðið skall á hluta hópsins. Erlent 14.3.2010 14:23
Ísraelar handsama háttsettan Hamas-liða Háttsettur foringi hjá Hamas samtökunum í Palestínu var handtekinn í dag í árás sem ísraelskir hermenn gerðu í bænum Ramallah á Vesturbakkanum. Maher Udda, er 47 ára gamall og segja Ísraelar að hann tengist dauða um 70 manna í gegnum árin. Erlent 14.3.2010 13:51
Frétt af rússneskri innrás í Georgíu var uppspuni Það varð uppi fótur og fit í Georgíu í gærkvöldi þegar sjónvarpsstöð í landinu flutti af því fréttir að rússneskir skriðdrekar væru komnir til höfuðborgarinnar Tblisi og að forseti landsins væri látinn. Fréttinn var uppspuni en engu að síður olli hún miklu uppnámi í landinu og símkerfi landsins hrundi auk þess sem fjöldi fólks þusti út á götur. Erlent 14.3.2010 10:14
Jarðskjálfti skók byggingar í Tókýó Öflugur jarðskjálfti skók Japan í morgun og hristust byggingar í höfuðborginni Tókýó. Skjálftinn átti upptök sín um 80 kílómetra undan austurströnd landsins og mældist hann 6,6 stig. Erlent 14.3.2010 09:55
Þrettán myrtir í Acapulco Þrettán voru drepnir í mexíkönsku strandborginni Acapulco í gær. Morðin eru talin tengjast fíkniefnaviðskiptum og höfðu morðingjarnir hoggið höfuðin af fjórum fórnarlambanna. Erlent 14.3.2010 08:30