Erlent
Eldgosið í Eyjafjallajökli reiði guðs Nokkuð framboð er af trúarlegum útskýringum á eldgosinu í Eyjafjallajökli. Þannig greinir rússneska fréttastofan Interfax frá því að Samband sérfræðinga í rétttrúnaðarkirkjunni segi að gosið og askan sem eldfjallið spúði yfir Evrópu sé vegna reiði guðs yfir réttindum samkynhneigðra í Evrópu og umburðarlyndis Íslendinga gagnvart heiðinni trú. Erlent 1.5.2010 10:15
Indversk ráðgáta: Segist hafa fastað alla sína ævi Indverjinn Prahlad Jani fullyrðir að hann hafi lifað í um sjötíu ár án þess að borða eða drekka. Vísindamenn eru furðu lostnir en Jani er haldið í einangrun á spítala í indversku borginni Ahmedabad. Erlent 1.5.2010 07:00
Cameron kominn með nauma forystu Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur staðfest þá niðurstöðu Samkeppniseftirlitsins (SE) að Síminn hafi brotið samkeppnislög gagnvart fjarskiptafyrirtækinu TSC. Hins vegar lækkar áfrýjunarnefndin sektina sem Samkeppniseftirlitið gerði Símanum upphaflega að greiða úr 150 milljónum í 50 milljónir. Erlent 1.5.2010 06:00
Grunaður um að hafa ætlað að myrða Chavez Yfirvöld í Venesúela hafa handtekið 29 ára gamlan mann sem grunaður er um að hafa ætlað að ráða forseta landsins Hugo Chavez af dögum. Maðurinn var handtekinn í vesturhluta landsins nálægt landamærum Kólombíu og á hann að hafa sent SMS skilaboð þar sem tilræðinu er lýst. Erlent 30.4.2010 23:52
Öðrum olíuborpalli hvolfdi á Mexíkóflóa Óttast er að hinn risastóri olíuflekkur í Mexíkóflóa eigi eftir að stækka enn frekar eftir að olíuborpalli hvolfdi á svæðinu í dag. Pallinum hvolfdi undan strönd Louisiana en í síðustu viku kom upp eldur á öðrum palli á sama svæði sem varð til þess að nú stefnir í meiriháttar umhverfisslys í flóanum. Ellefu manns létust þegar sá pallur brann en í þetta skiptið slasaðist enginn. Óhappið mun hinsvegar gera mönnum erfiðara fyrir að hemja olíumengunina því nú þarf að einbeita sér að tveimur vígstöðvum. Erlent 30.4.2010 22:16
Atvinnuleysi á Spáni mælist nú 20 prósent Atvinnuleysi á Spáni hefur náð nýjum hæðum en hagstofa Evrópusambandsin, Eurostat, birti í dag nýjar atvinnuleysistölur fyrir álfuna. 20 prósent Spánverja eru nú atvinnulausir eða 4,6 milljónir manna. Aðeins í Lettlandi er staðan verri en á síðasta ársfjórðungi var mældist atvinnuleysið á Spáni 19 prósent. Erlent 30.4.2010 21:18
Bresku dagblöðin skipta um flokka Tvö af stærstu dagblöðum Bretlands hafa nú lýst yfir stuðningi við stjórnmálaflokka fyrir komandi kosningar í landinu 6. maí næstkomandi. Þar í landi tíðkast það að blöðin veðji á ákveðinn hest og í dag lýsti The Guardian yfir stuðningi við Frjálslynda demókrata. Erlent 30.4.2010 20:50
Íslenskir karlmenn lifa lengst Íslenskir karlmenn lifa lengst allra karla í heiminum og konur frá Kýpur lifa lengst kynsystra sinna, samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar sem birt var í tímaritinu The Lancet í dag. Erlent 30.4.2010 16:30
Hér er Unnur Birna Heimssýningin í Shanghai í Kína verður opnuð á morgun með hátíð sem sögð er verða ekki síðri en opnunarhátíð Ólympíuleikanna í Peking árið 2008. Erlent 30.4.2010 14:50
Barónessan sögð vera að hrökklast frá ESB Talið er líklegt að Ashton barónessa muni láta af embætti utanríkismálastjóra Evrópusambandsins einhverntíma á þessu ári. Erlent 30.4.2010 14:20
Vilja refsiaðgerðir vegna herskips Suður-Kórea mun væntanlega leita til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um refsiaðgerðir gagnvart Norður-Kóreu vegna herskips sem talið er víst að norðanmenn hafi sökkt í síðasta mánuði. Erlent 30.4.2010 13:43
Kveikti í sér eftir að hafa sært fimm börn Karlmaður réðst inn í leikskóla í Kína í nótt vopnaður hamri og særði fimm börn áður en hann framdi sjálfsmorð. Þetta er í þriðja sinn á jafn mörgum dögum þar sem ráðist er á kínversk leikskólabörn. Erlent 30.4.2010 11:36
Olían komin að landi Bandaríska strandgæslan telur að olíuflekkurinn úr borholunni á Mexíkóflóa hafi borist að ströndum Bandaríkjanna í nótt. Það hefur ekki fengist staðfest. Erlent 30.4.2010 08:15
Skildi börn eftir í ruslafötu Bandarískur karlmaður var í gær dæmdur í 17 ára fangelsi fyrir að hafa rænt og skilið tvö eftir í ruslafötu í Dayton í Ohio á heitum júlídegi í fyrra. Hann kom 8 mánaða dreng og tveggja ára stúlku fyrir í ruslafötu eftir að hafa deilt við móður þeirra sem hafði slitið sambandi við hann. Erlent 30.4.2010 08:12
Sér ekkert athugavert við að taka sér barnabrúði Nígeríski þingmaðurinn sem tók sér nýverið barnabrúði segist ekki hafa brotið nein lög. Mannréttindasamtök, læknar og þingmenn í Nígeríu hafa mótmælt því að maðurinn, sem er fimmtugur, hafi fyrir nokkrum vikum kvænst 13 ára gamalli egypskri telpu. Þingkonur á nígeríska þinginu vilja að hann verði víttur. Erlent 30.4.2010 08:10
Konur mega þjóna í kafbátum Konur geta nú verið hluti áhafna um borð í kafbátum bandaríska flotans en hingað til hefur það verið óheimilt. Bandaríkjaþing gerði ekki athugasemdir við ákvörðun varnarmálaráðuneytisins og því hefur banninu verið aflétt. Erlent 30.4.2010 07:54
Útför 46 sjóliða Opinber útför 46 suður-kóreska sjóliða sem fórust þegar herskip sprakk í tvennt og sökk í síðasta mánuði fór fram í gær. Skipið var 1200 tonn að stærð með 108 manna áhöfn. Búið er að ná flaki þess upp á yfirborðið. Erlendir sérfræðingar eru sagðir hafa komist að þeirri niðurstöðu að ekki hafi orðið sprenging innanborðs í skipinu. Erlent 30.4.2010 06:56
Hafa helst áhyggjur af Ischiu Ítalía, AP Næsta eldgos á Ítalíu gæti orðið á hinni friðsælu eyju Ischia, frekar en í hinu illræmda fjalli Vesúvíusi. Ekki er þó talin hætta á gosi alveg á næstunni. Erlent 30.4.2010 06:00
Olíuflekkurinn á stærð við Írland Olíuflekkurinn sem nú breiðir úr sér á Mexíkóflóa undan ströndum Bandaríkjanna gæti orðið að mesta olíulekaslysi sögunnar að því er sérfræðingar segja. Stærðin á slikjunni jafnast nú á við Írland en fimm sinnum meira af olíu hefur lekið upp úr borholunni á hafsbotni en áður var talið. Lekin varð þegar eldur kom að olíuborpalli BP olíufélagsins undan ströndum Louisiana ríkis. Erlent 29.4.2010 22:30
Cameron þótti standa sig best í síðustu kappræðunum Síðustu sjónvarpskappræðum leiðtoganna í Bretlandi fyrir komandi kosningar lauk fyrirr stundu. Þetta er í fyrsta sinn í breskri sögu sem leiðtogarnir mætast í kappræðum í beinni útsendingu og voru þrjár kappræður haldnar. Í kvöld var það David Cameron, leiðtogi íhaldsmanna sem þótti standa sig best en þegar hafa tvær kannanir verið gerðar á meðal almennings um hver hafi staðið sig best. Erlent 29.4.2010 21:31
Stefnir í búrkubann í Belgíu Neðri deild belgíska þingsins samþykkti í dag lög sem banna konum að klæðast blæjum sem hylja allt andlitið á opinberum stöðum eins og í almenningsgörðum og á götum úti. Erlent 29.4.2010 21:10
Olían að ströndum Missisippi á morgun Olían byrjaði að gusast upp af hafsbotni eftir að borturn sprakk í loft upp og sökk. Ellefu menn biðu bana. Erlent 29.4.2010 17:09
Engar myndir af Stalín á götum Moskvu Borgarstjórn Moskvu hefur fallið frá því að hengja upp risaplaköt af Jósef Stalín á götum úti þegar þess verður minnst níunda maí að 65 ár eru liðin frá sigrinum á nazistum. Erlent 29.4.2010 14:36
Nýtt skátamerki Þegar talað er um skáta hugsa flestir líklega um útilegur, að hnýta hnúta, læra hjálp í viðlögum og hjálpa gömlum konum yfir götur. Erlent 29.4.2010 14:03
Í fangelsi fyrir að vera sólbrúnar Lögreglustjórinn í Teheran höfuðborg Írans hefur gefið út yfirlýsingu um að sólbrúnar konur verði handteknar og fangelsaðar. Erlent 29.4.2010 13:37
Dældu gasi í jarðgöng Palestínumanna Fjórir Palestínumenn létu lífið í gær þegar egypskir hermenn dældu gasi ofan í jarðgöng sem liggja frá Gaza ströndinni yfir til Egyptalands að sögn Hamas samtakanna. Erlent 29.4.2010 12:39
Mistök að leyfa Grikkjum að taka upp evru Trúin á að Grikkir geti greitt skuldir sínar er nú svo lítil að landið verður að greiða himinháa vexti á fjármagnsmörkuðum. Erlent 29.4.2010 10:19
Sígarettupakkar verði án vörumerkja Ríkisstjórn Ástralíu hefur samþykkt frumvarp sem neyðir tóbaksframleiðendur til að gjörbreyta umbúðum á sígarettupökkum sem seldir verða í landinu frá og með 2012. Pakkarnir eiga að vera lausir við vörumerki fyrirtækjanna en nafn þeirra skal ritað á þá með smáu letri. Þess í stað verður aðvörun við skaðsemi reykinga í forgrunni. Erlent 29.4.2010 09:46
Ummæli Browns skyggja á kappræðurnar Bresku þingkosningarnar fara fram á fimmtudaginn eftir viku og í kvöld munu leiðtogar þriggja stærstu stjórnmálaflokka landsins takast á í þriðju og síðustu sjónvarpkappræðunum. Fyrstu tvær kappræðurnar vöktu mikla athygli en nú virðist sem að ummæli Gordons Browns, forsætisráðherra Bretlands og formanns Verkmannaflokksins, muni skyggja á umræðurnar í kvöld því um fátt annað er talað í breskum fjölmiðlum. Erlent 29.4.2010 08:29
Stakk 28 leikskólabörn Maður vopnaður hnífi réðst inn í leikskóla í Kína í nótt að íslenskum tíma og stakk 28 börn og þrjá starfsmenn. Þetta er í þriðja sinn á rúmum mánuði þar sem ráðist er á leikskólabörn með þessum hætti. Erlent 29.4.2010 08:25