Erlent
27 eitulyfjasmyglarar felldir í Mexíkó Mexíkóski herinn felldi 27 meðlimi eiturlyfjagengis þegar skotbardagi braust út við bandarísku landamærin í nótt. Herflokkur varð fyrir árás þegar hann nálgaðist það sem virðist hafa verið þjálfunarbúðir fyrir glæpamennina en búðirnar uppgötvuðust í eftirlitsflugi flughersins. Erlent 3.9.2010 07:12
Ekki lengur þörf fyrir guð Breski vísindamaðurinn og metsöluhöfundurinn Stephen Hawking hefur komist að þeirri niðurstöðu að engin þörf sé fyrir guð til að útskýra tilurð heimsins. Heimurinn hafi einfaldlega orðið til af sjálfu sér, án íhlutunar guðs Erlent 3.9.2010 05:30
Friðarviðræður á ný Beinar friðarviðræður Ísraela og Palestínumanna hófust í gær í Bandaríkjunum eftir tveggja ára hlé. Þátttakendur sögðust hóflega bjartsýnir, en stefna á að ljúka viðræðum innan árs með samningi um stofnun Palestínuríkis. Erlent 3.9.2010 05:00
Hitametin féllu víða í sumar Gríðarleg hitabylgja hefur verið í Japan í sumar og mælast hitarnir þar þetta sumarið meiri en nokkru sinni, en mælingar þar hófust árið 1898. Erlent 3.9.2010 04:30
Stuðlað að betri heilsu hafsins Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ákvað á miðvikudag að setja viðmið um gott umhverfisástand sjávar. Þessu er ætlað að auðvelda aðildarríkjum að þróa samhæfðar áætlanir um þessi mál á hverju hafsvæði fyrir sig. Þetta á að tryggja samræmi og þannig auðvelda samanburð milli svæða. Erlent 3.9.2010 04:00
Milljónir barna í mikilli hættu Enn eru um 2,3 milljónir barna í Pakistan undir fimm ára aldri án lífsnauðsynlegrar hjálpar. Barnaheill – Save the Children hafa náð til um 10 prósent þeirra barna sem hafa þurft að flýja heimili sín vegna þeirra gríðarmiklu flóða sem hafa geisað í landinu undanfarnar fjórar vikur. Erlent 3.9.2010 04:00
Hafa áhyggjur af olíulekanum Barack Obama, Bandaríkjaforseti, fundaði í dag og í kvöld með embættismönnum vegna sprengingarinnar sem varð á olíuborpalli á Mexíkóflóa út af ströndum Louisiana í dag. Björgunarmenn segja olíuslikju á sjónum. Robert Gibbs, talsmaður Hvíta hússins, segir að Obama muni fylgjast náið með framvindu mála. Erlent 2.9.2010 22:45
Annar olíuborpallur á Mexíkóflóa sprakk Olíuborpallur sprakk á Mexíkóflóa í dag á svipuðum slóðum og annar olíuborpallur sprakk í apríl. Umræddur borpallur er í eigu fyrirtækisins Mariner Energy. Þrettán starfsmönnum tókst að komast undan og hefur þeim nú verið bjargað, að því er fram kemur á vef breska ríkisútvarpsins. Þar er haft eftir yfirmanni hjá bandarísku strandgæslunni að olíuflekkir hafi sést við borpallinn. Erlent 2.9.2010 19:37
Um 240 konum nauðgað í Kongó Grunur leikur á að um 240 konum, stúlkum og börnum hafi verið nauðgað þegar að uppreisnarmenn hertóku bæ í Kongó í Afríku á dögunum. Þetta segja Sameinuðu þjóðirnar í nýrri skýrslu. Yfirvöld í Kongó höfðu áður sagt að þeim hefðu borist tilkynningar um 150 nauðganir í bænum. Erlent 2.9.2010 11:15
Friðarferlið hafið að nýju Beinar friðarviðræður Ísraela og Palestínumanna eru hafnar eftir tveggja ára hlé. Viðræðurnar fara fram í Washington höfuðborg Bandaríkjanna og í gærkvöldi bauð Barack Obama forseti til kvöldverðar í Hvíta húsinu. Erlent 2.9.2010 09:08
Hague sver af sér samkynhneigð Utanríkisráðherra Bretlands hefur gefið út yfirlýsingu þar sem sögusögnum um samkynhneigð hans er vísað á bug. Erlent 2.9.2010 09:02
Námamennirnir eru ekki byttur og dópistar Heilbrigðisráðherra Chile hefur þurft að koma fram í fjölmiðlum og kveða niður sögusagnir þess efnis að námamennirnir 33 sem dúsa í lokaðri námu á 700 metra dýpi, séu alkóhólistar og fíkniefnaneytendur. Erlent 2.9.2010 08:51
Allri borgarstjórninni stungið í steininn Sannarleg stjórnarkreppa ríkir nú í brasilísku borginni Dourados en í gær voru allir æðstu stjórnendur borgarinnar handteknir fyrir spillingu. Erlent 2.9.2010 08:11
Lifði af fall af fertugustu hæð Rúmlega tvítugur maður lifði af fjörutíu hæða fall ofan af húsþaki í New York. Maðurinn lenti á fólksbifreið af gerðinni Dodge Charger. Hann fór í gegnum bakrúðu bílsins og hafnaði í aftursætinu. Maðurinn brotnaði á báðum fótum en svo virðist sem hann hafi stokkið fram af þakinu. Erlent 2.9.2010 05:00
Segjast hóflega bjartsýnir Litlar vonir virðast bundnar við að nýjar viðræður Ísraela og Palestínumanna skili árangri, þótt þátttakendur segist hóflega bjartsýnir. Erlent 2.9.2010 04:30
Forsendan fyrir stríðinu reyndist ekki rétt „Vandinn við þetta stríð, í huga margra Bandaríkjamanna, er að ég held sá, að forsendan sem notuð var til að réttlæta upphaf þess reyndist þegar til kom ekki rétt,“ sagði Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, á miðvikudag þegar hann heimsótti bandaríska hermenn í borginni Ramadi í Írak. Erlent 2.9.2010 04:15
Blair: Brown var óþolandi Ævisaga Tony Blair fyrrverandi forsætisráðherra Breta kemur út í dag og í henni vandar hann eftirmanni sínum í Downing stræti ekki kveðjurnar. Erlent 1.9.2010 10:19
Fjöldamorðingi gerði samning við djöfulinn Lögregla í höfuðborg Argentínu hefur handtekið mann sem á síðustu vikum hefur myrt sex manneskjur til að þóknast djöfli einum. Maðurinn, Marcelo Antelo, er 22 ára gamall og segja fjölmiðlar þar í landi að hann hafi gert einskonar samning við djöfulinn, eða öllu heldur goð í andatrú sem kallast "Höfðingi dauðans", eða San la Muerte. Erlent 1.9.2010 10:18
Minnast upphafs heimsstyrjaldarinnar Þess er nú minnst í Póllandi að 71 ár er liðið frá upphafi Seinni heimsstyrjaldarinnar þegar Þjóðverjar réðust á Pólland. Pólsk freigáta skaut í morgun nokkrum skotum undan ströndum landsins á Eystrasalti en þann 1. september 1939 hóf Þýska herskipið Schleswig-Holstein á pólska herstöð á ströndinni. Erlent 1.9.2010 09:57
Námamennirnir beðnir afsökunar Eigendur námunnar þar sem 33 verkamenn lokuðust inni á dögunum hafa beðið þá og fjölskyldur þeirra afsökunar. Björgunarstörf hófust í gær en búist er við því að það taki þrjá til fjóra mánuði að ná til mannanna, sem eru á 700 metra dýpi. Erlent 1.9.2010 07:21
Earl nálgast austurströndina Fellibylurinn Earl nálgast nú austurströnd Bandaríkjanna og yfirvöld í Norður Karólínu hafa fyrirskipað fólki í strandhéruðum ríkisins að koma sér í öruggt skjór. Erlent 1.9.2010 07:18
Ólétt kona meðal hinna myrtu Fjórir ísraelskir landnemar, þar á meðal ófrísk kona, voru myrtir á Vesturbakkanum í kvöld. Forsætis- og varnarmálaráðherra Ísrael hafa fordæmt árásina en Hamassamtökin hafa lýst ábyrgð á ódæðinu. Fólkið var myrt í grennt við landnemabyggð gyðinga í Kiryat Arba í borginni Hebron. Erlent 31.8.2010 23:23
Bætist í hóp fallinna hermanna Fjórir bandarískir hermenn létust í morgun þegar sprengja sprakk í vegarkanti í suðurhluta Afganistans. Í gær létust sjö bandaríkjamenn í tveimur árásum og nálgast tala látinna hermanna nú 50 í þessum mánuði. Fleiri en 350 hermenn úr fjölþjóðaliðinu í landinu hafa fallið frá áramótum. Erlent 31.8.2010 10:24
Bílabruni á Standsted 24 bílar brunnu í nótt á bílastæði við Standsted flugvöll á Englandi. Bílarnir voru í eigu ferðalanga sem geymdu þá á stæðinu á meðan haldið var út í heim. Eldurinn kviknaði fyrst í einum bíl og á öryggismyndavélum má sjá hvernig hann dreifði sér í nærliggjandi bíla á nokkrum mínútum. Það tók slökkviliðið um klukkustund að ráða niðurlögum eldsins en tjónið hleypur á milljónum króna. Erlent 31.8.2010 10:23
Bretar og Frakkar samnýti flugmóðurskip Bretar og Frakkar íhuga nú að notast við sameiginleg flugmóðurskip í sparnaðarskyni. Breska blaðið The Times greinir frá þessu í dag og segir að ákvörðunin verði mögulega tekin á fundi þeirra David Camerons forsætisráðherra Breta og Nicolaz Sarkozy forseta Frakklands sem fyrirhugaður er í Nóvember. Erlent 31.8.2010 10:17
Hnattræn hlýnun: Lomborg breytir um stefnu Einn helsti gagnrýnandi þeirra sem telja jörðinni stafa hætta af hlýnun af manna völdum virðist hafa skipt um skoðun. Danski prófessorinn Björn Lomborg hefur farið fremstur í flokki á meðal þeirra sem hafa gefið lítið fyrir hættuna af hlýnun jarðar og áhrifa manna á þá þróun. Hann hefur nú skrifað bók sem kemur út á næstunni en í henni segir hann að hnattræn hlýnun sé án efa ein af helstu hættum sem steðji að mannkyninu. Erlent 31.8.2010 10:13
Handteknir á Schiphol Lögreglan á Schiphol flugvelli í Hollandi handtók tvo menn í fyrrinótt við komuna til Amsterdam en þeir voru á leið frá Chicago í Bandaríkjunum. Grunur lék á að þeir væru með hluti á sér sem nota ætti til sprengjugerðar og voru þeir hnepptir í varðhald. Erlent 31.8.2010 08:47
Barbie stungið í steininn í Mexíkó Lögreglan í Mexíkó hefur handtekið háttsettann eiturlyfjasmyglara sem gengur undir nafninu Barbie. Erlent 31.8.2010 08:03
Bjóða nágrönnum í norðri aðstoð Suður Kóreumenn hafa boðist til að senda hjálpargögn til nágranna sinna í norðri en þetta er í fyrsta sinn sem slíkt tilboð um aðstoð berst frá því Norður-Kóreumenn söktu herskipi frá Suður Kóreu í mars. Erlent 31.8.2010 07:28
Barnshafandi konur í bráðri hættu á flóðasvæðunum Um hundrað þúsund barnshafandi konur eru í bráðri hættu á svæðunum sem urðu fyrir mestri eyðileggingu af völdum flóðanna í Pakistan. Að minnsta kosti hálf milljón barnshafandi kvenna hefur orðið fyrir barðinu á flóðunum en um hundrað þúsund þeirra eiga von á sér á næstu mánuðum. Margar þeirra munu þurfa að eiga börn sín í bráðabirgðaskýlum, án aðgangs að hreinu vatni og heilbrigðisþjónustu og umkringdar menguðu flóðavatni. Erlent 30.8.2010 23:45