Enski boltinn
Óvæntur sigur QPR á Goodison Park - Blackburn í slæmum málum Nýliðar QPR unnu óvæntan 1-0 sigur á Everton í viðureign liðanna á Goodison Park í dag. Tommy Smith skoraði eina mark leiksins í fyrri hálfleik. Enski boltinn 20.8.2011 13:15
Robin van Persie: Andy Carroll minnir mig á Alan Shearer Robin van Persie, fyrirliði Arsenal, varaði sína félaga við Andy Carroll, framherja Liverpool, fyrir leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í dag. Van Persie líkir Andy Carroll við Alan Shearer en það var einmitt Carroll sem tryggði Newcastle United sigur á Emirates-vellinum í fyrra. Enski boltinn 20.8.2011 11:30
Nasri byrjar hjá Arsenal en Luis Suarez er á bekknum hjá Liverpool Arsene Wenger, stjóri Arsenal, og Kenny Dalglish, stjóri Liverpool, hafa tilkynnt byrjunarliðin sín fyrir leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni sem hefst á Emirates-vellinum klukkan 11.45 og er í beinni á Stöð 2 Sport 2 sem og á HD-rásinni. Enski boltinn 20.8.2011 11:05
Liverpool vann tíu menn Arsenal - Arsenal á enn eftir að skora Liverpool fagnaði sínum fyrsta sigri á Emirates-leikvanginum og jafnframt sínum fyrsta útisigri á Arsenal í ellefu ár þegar liðið vann 2-0 sigur á Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í dag. Enski boltinn 20.8.2011 10:06
Newcastle vann 1-0 útisigur á nágrönnum sínum Newcastle fagnaði sínum fyrsta sigri á tímabilinu og sínum fyrsta sigri á Leikvangi Ljósanna síðan 2006 þegar liðið vann 1-0 sigur á nágrönnum sínum í Sunderland í ensku úrvalsdeildinni í dag. Enski boltinn 20.8.2011 09:59
Aftur til fortíðar: Viðureignir Arsenal og Liverpool ávísun á dramatík Arsenal og Liverpool mætast í stórslag ensku úrvalsdeildarinnar á morgun. Leikir liðanna bjóða ævinlega upp á dramatík líkt og á síðasta tímabili þar sem spjöld fóru á loft og mörk voru skoruð í viðbótartíma. Það er við hæfi að rifja upp nokkrar af eftirminnilegri viðureignum liðanna. Enski boltinn 19.8.2011 18:15
Japaninn Ryo Miyaichi orðinn löglegur með Arsenal Japanski framherjinn Ryo Miyaichi, sem skrifaði undir fimm ára samning við Arsenal í desember síðastliðnum, er loksins kominn með atvinnuleyfi og er því orðinn löglegur með enska félaginu. Enski boltinn 19.8.2011 12:45
Nasri í leikmannahópi Arsenal á móti Liverpool á morgun Arsene Wenger, stjóri Arsenal, tjáði fjölmiðlamönnum það nú rétt áðan á blaðamannafundi fyrir leikinn á móti Liverpool á morgun að Samir Nasri sé í leikmannhóp Arsenal í þessum leik. Enski boltinn 19.8.2011 11:47
Umboðsmenn að flækjast fyrir í kaupum Man. City á Nasri Það verður enn einhver bið á því að Manchester City gangi frá kaupunum á Frakkanum Samir Nasri frá Arsenal þótt að liðin séu nánast búin að ganga frá öllum málum og að leikmaðurinn sé himinlifandi með samningstilboð City. Enski boltinn 19.8.2011 10:15
Nemanja Vidic frá í allt að fimm vikur vegna kálfameiðsla Nemanja Vidic, fyrirliði Manchester United, gæti verið frá næstu fimm vikurnar vegna meiðsla á kálfa en félagi hans í miðri United-vörninni, Rio Ferdinand, verður hinsvegar ekki eins lengi frá og óttast var. Enski boltinn 19.8.2011 09:45
Daily Mail: Abramovich til í að eyða 60 milljónum í Modric og Mata Daily Mail heldur því fram í morgun að Roman Abramovich, rússneski eigandi Chelsea, sé tilbúinn að eyða stórum upphæðum í þá Juan Mata og Luka Modric sem hafa margoft verið orðaðir við Chelsea-liðið á síðustu vikum. Enski boltinn 19.8.2011 09:00
Jenkinson í byrjunarliði Arsenal á móti Liverpool? Meiðsli í varnarlínu Arsenal þýða væntanlega að hinn 19 ára Carl Jenkinson verður í byrjunarliðinu á móti Liverpool í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn. Enski boltinn 18.8.2011 19:00
Lukaku kominn til Chelsea - löglegur á laugardaginn Chelsea er búið að ganga frá kaupunum á Romelu Lukaku frá belgíska félaginu Anderlecht og framherjinn verður því löglegur í leiknum á móti West Brom á laugardaginn kemur. Enski boltinn 18.8.2011 16:00
David Ngog á leiðinni frá Liverpool til Bolton David Ngog er á leiðinni til Bolton en félagið mun væntanlega borga Liverpool fjórar milljónir punda fyrir franska framherjann. Þetta kemur fram í The Liverpool Echo. Enski boltinn 18.8.2011 15:00
Ræningjar pabba Mikel heimta veglegt lausnargjald John Obi Mikel, leikmaður Chelsea, stendur í ströngu utan vallar þessa dagana eftir að föður hans var rænt út í Nígeríu 12. ágúst síðastliðinn. Enski boltinn 18.8.2011 14:30
Petr Cech frá í þrjár til fjórar vikur - meiddist á æfingu Petr Cech, markvörður Chelsea og tékkneska landsliðsins, meiddist á æfingu hjá liðinu í gær og verður frá keppni næstu þrjár til fjórar vikurnar. Félagið staðfesti þetta í dag. Enski boltinn 18.8.2011 13:30
Sky Sports: QPR búið að bjóða fjórar milljónir í Parker Tony Fernandes er orðinn meirihlutaeignandi í Queens Park Rangers og hann er fljótur að láta til síns taka því Sky Sports hefur heimildir fyrir því að Queens Park Rangers er búið að bjóða fjórar milljónir punda í Scott Parker hjá West ham. Enski boltinn 18.8.2011 13:00
Redknapp: Salan á Modric gæti styrkt Tottenham Það er komið annað hljóð í Harry Redknapp, stjóra Tottenham, sem er nú tilbúinn að horfa á eftir Luka Modric til Chelsea eftir allt saman því hann segir að Tottenham gæti fengið þrjá til fjóra góða leikmenn í staðinn. Enski boltinn 18.8.2011 09:45
Redknapp: Ekkert sem bendir til að Modric fari Þrátt fyrir þrálátar sögusagnir þess efnis að Luka Modric sé á leið til Chelsea segir stjóri hans hjá Tottenham, Harry Redknapp, að það sé ekkert sem bendir til þess að kappinn sé á förum. Enski boltinn 17.8.2011 22:15
Cardiff tapaði fyrir nýliðunum Cardiff City tapaði í kvöld fyrir nýliðum Brighton í ensku B-deildinni, 3-1, á heimavelli. Aron Einar Gunnarsson lék ekki með Cardiff vegna meiðsla. Enski boltinn 17.8.2011 20:49
Ecclestone að selja QPR Samkvæmt fréttum enskra fjölmiðla er Bernie Ecclestone að selja sinn hlut í enska úrvalsdeildarfélaginu Queens Park Rangers. Nýi eigandinn, Tony Fernandes, er sagður hafa lagt fram fjögurra milljóna punda í Scott Parker, leikmann West Ham. Enski boltinn 17.8.2011 20:28
Fulham lánar Carlos Salcido heim til Mexíkó Bakvörðurinn Carlos Salcido mun ekki spila með Fulham á þessu tímabili því enska félagið hefur lánað leikmanninn heima til Tigres-liðsins í Mexíkó. Enski boltinn 17.8.2011 16:45
Enska bikarkeppnin í beinni á fésbókinni Ensku utandeildarliðin Ascot United og Wembley FC munu spila tímamótaleik í forkeppni ensku bikarkeppninnar á föstudagkvöldið því leikurinn verður sendur út í beinni á fésbókinni. Enski boltinn 17.8.2011 16:00
Maxi Rodriguez hjá Liverpool: Samkeppni er af hinu góða Argentínumaðurinn Maxi Rodriguez fagnar nýju leikmönnunum sem komu til Liverpool í sumar þrátt fyrir að þýði mun harðari samkeppni fyrir hann sjálfan. Rodriguez skoraði sjö mörk í síðustu fjórum leikjum sínum með Liverpool á síðustu leiktíð en var ekki í leikmannahópnum á móti Sunderland um helgina. Enski boltinn 17.8.2011 14:00
Sir Bobby Charlton: David de Gea verður einn af þeim bestu Sir Bobby Charlton, goðsögnin hjá Manchester United og einn af bestu fótboltamönnum allra tíma, hefur mikla trú á spænska markverðinum David de Gea og telur að United hafi þarna gert góð kaup. Enski boltinn 17.8.2011 12:00
Emmanuel Adebayor á leiðinni í Tottenham? - viðræður í gangi Harry Redknapp, stjóri Tottenham, hefur staðfest það að félagið sé í viðræðum um að fá Emmanuel Adebayor sem er á samningi hjá Manchester City. Adebayor kláraði síðasta tímabil í láni hjá Real Madrid. Enski boltinn 17.8.2011 11:15
Flottustu mörkin í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar Enska úrvalsdeildin hefur tekið saman fimm flottustu mörkin í fyrstu umferðinni sem fór fram um helgina. Það er Svíinn Sebastian Larsson sem skoraði fallegasta mark helgarinnar þegar hann tryggði Sunderland 1-1 jafntefli á Anfield. Enski boltinn 17.8.2011 10:45
Benayoun og Kalou með í nýju tilboði Chelsea í Luka Modric Það lítur allt út fyrir það að Chelsea muni gera Tottenham þriðja tilboðið í Króatann Luka Modric á næstu dögum en Tottenham hefur þegar hafnað tilboðum upp á 22 milljónir punda og 27 milljónir punda. Enski boltinn 17.8.2011 09:45
Wenger braut reglur UEFA í gær: Mátti ekki koma skilaboðum á bekkinn Arsene Wenger, stjóri Arsenal, gæti verið í vandræðum hjá UEFA þar sem að hann skipti sér af leik sinna manna á móti Udinese í forkeppni Meistaradeildarinnar í gær. Wenger tók út leikbann í leiknum og var upp í stúku en Frakkinn sást senda skilaboð niður til Pat Rice á bekknum. Enski boltinn 17.8.2011 09:15
Nasri á twitter: Ég er ekki með fésbókarsíðu og skrifaði þetta ekki Samir Nasri, franski leikmaðurinn sem er væntanlega á förum frá Arsenal, segir að það sé einhver að þykjast vera hann inn á fésbókinni og hann hafi ekki skrifað að hann myndi yfirgefa félagið sár og reiður. Enski boltinn 17.8.2011 09:00