Vinstrið

Fréttamynd

Kosningavaktin 2026: Kjör­dagur genginn í garð

Kosningar til sveitarstjórna fara fram sveitarfélögum landsins í dag. Kjörstaðir opna klukkan níu og verður þeim flestum lokað klukkan 22 í kvöld. Fréttastofa mun fylgjast grannt með gangi mála alla helgina – fylgjast með tíðindum af kjörstöðum, yfirmönnum kjörstjórna kynna niðurstöður talninga, leita viðbragða við gangi mála og taka púlsinn á kjósendum.

Innlent
Fréttamynd

Sjálf­stæðis­flokkur stærstur en nær ekki meiri­hluta með Miðflokki og Fram­sókn

Sjálfstæðisflokkurinn bætir enn við sig fylgi og mælist langstærstur í borginni í síðustu könnun Maskínu fyrir kosningar. Sitjandi meirihluti er fallinn en ólíkt síðustu könnun Gallup myndi Sjálfstæðisflokkur ekki ná að mynda þriggja flokka meirihluta með Miðflokknum og Framsókn. Í stað þess gæti Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn náð saman meirihluta með Viðreisn. 

Innlent
Fréttamynd

Enginn mögu­leiki á meiri­hluta til vinstri sam­kvæmt nýrri könnun

Meirihlutinn í borgarstjórn er fallinn og Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig fylgi samkvæmt nýrri könnun Gallups. Ef niðurstöður hennar endurspegla úrslit kosninganna munu Sjálfstæðisflokkur, Miðflokkur og Framsókn geta myndað saman meirihluta. Ekki yrði hægt að mynda meirihluta til vinstri.

Innlent
Fréttamynd

„Sam­fylkingin í Reykja­vík er kvenna­gildra“

Oddvitar í Reykjavík tókust á um leikskólamálin í kappræðum Sýnar á miðvikudaginn. Frambjóðendur voru fyrst beðnir um að svara því hvort Reykjavík stæði sig vel í leikskólamálum sem allir þeirra svöruðu neitandi.

Innlent
Fréttamynd

Kjós­endur vilja helst þessa flokka í sam­starf

Kjósendum Viðreisnar í Reykjavík hugnast miklu frekar að mynda meirihluta með vinstri flokkum en hægri flokkum að loknum kosningum samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Flokkurinn gæti verið í lykilstöðu varðandi meirihlutamyndun.

Innlent
Fréttamynd

Of­beldi og á­byrgð

Af hverju er ekki sjálfsagt að sagt sé opinskátt frá ofbeldi sem á sér stað eða rætt upphátt ef um er að ræða staðfestan grun um ofbeldi?Af hverju þykir í lagi að ráðast að þeim sem segja frá og þeir gerðir að blóraböggli á meðan ofbeldið sætir þöggun og gerendur þannig látnir njóta vafans?

Skoðun
Fréttamynd

Fötlunargleraugun upp!

Það var mikið gleðiefni þegar Ísland lögfesti loksins samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks í lok síðasta árs eftir áratuga baráttu fatlaðs fólks, aðstandenda og hagsmunasamtaka þeirra. Nú sitjum við eftir með spurninguna „Og hvað svo?“ því mannréttindasáttmálar eru einskis virði ef samfélagið ætlar ekki að virða þá, vinna eftir þeim og læra af mistökunum sem gerð hafa verið.

Skoðun
Fréttamynd

Þetta er stefna flokkanna í sam­göngu­málum í Reykja­vík

Samgöngusáttmáli sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins er í algleymingi í stefnum flokkanna í samgöngumálum í Reykjavík, ýmist stuðningur við sáttmálann, andstaða eða tillögur að endurskoðun hluta hans. Vísir tók saman stefnu flokkanna í málaflokknum en áhersla á bílastæði fer þar mikinn.

Innlent
Fréttamynd

Öll börn eiga rétt á öryggi

Við erum öll sammála um að leik- og grunnskólar eigi að vera öruggt umhverfi fyrir öll börn, þar sem öll börn eru boðin velkomin á sínum eigin forsendum.

Skoðun
Fréttamynd

Sjálf­stæðis­flokkur eykur for­skotið á Sam­fylkingu í Reykja­vík

Sjálfstæðisflokkurinn mælist með tíu prósentustiga forskot á Samfylkinguna í nýrri Maskínu-könnun í Reykjavík. Flokkarnir voru nánast jafnir í mars en síðan þá hefur Sjálfstæðisflokkurinn bætt verulega við sig á sama tíma og Samfylkingin hefur dalað. Vinstrið sækir jafnframt mest fram milli mælinga.

Innlent
Fréttamynd

Sanna hét áður Díana

Sanna Magdalena Mörtudóttir hét eitt sinn Díana Magdalena Mörtudóttir en ákvað að breyta um nafn. Eitt sinn furðaði kjósandi sig á því að hún kæmi ekki fram undir réttu nafni en í ljós kom að Íslendingabók hafði aldrei uppfært skráningu nafns hennar.

Lífið
Fréttamynd

Langt frá hátekjulistanum

Ójöfnuður er til staðar á Íslandi og hefur veruleg áhrif á líf fólks. Helmingur alls auðs er í höndum tíu prósent landsmanna. Á sama tíma búa þúsundir barna við fátækt. Þegar auður og völd safnast á hendur fárra skapast skekkja sem bitnar á samfélaginu í heild.

Skoðun
Fréttamynd

Rifjaði upp erfitt augna­blik frá 1994 til að skjóta á mót­herja

Regn­bogafánar og lausa­ganga flokks­gæðinga komu við sögu þegar odd­vitar flokkanna sex sem bjóða fram fyrir sveitar­stjórnar­kosningarnar í Hafnarfirði mættust í fjörugum um­ræðum við kosninga­pall­borð frétta­stofu Sýnar, Vísis og Bylgjunnar í gær. Skotið var á oddvita fyrir brotthvarf úr ráðherrastól fyrir rúmlega þrjátíu árum.

Innlent
Fréttamynd

Við­reisn upp fyrir Sjálf­stæðis­flokk og Fram­sókn bætir við sig

Samfylkingin mælist með mest fylgi í Hafnarfirði í nýrri könnun Maskínu, líkt og í síðustu könnun. Það sem vekur hins vegar athygli er að Viðreisn fer upp fyrir Sjálfstæðisflokk og mælist næst stærst flokka. Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar er kolfallinn þrátt fyrir fylgisaukningu Framsóknar.

Innlent
Fréttamynd

Kosningapallborð frétta­stofu: Glæ­ný skoðana­könnun kynnt fyrir Hafnar­fjörð

Það styttist óðfluga í sveitarstjórnarkosningar þann 16. maí og við höldum áfram að hita upp fyrir stóru stundina. Oddvitar sex framboðslista sem bjóða fram í Hafnarfirði koma saman í kosningapallborði fréttastofu klukkan tvö í dag á Vísi til að ræða helstu málefni sem eru undir í kosningunum. Þá verður ný skoðanankönnun birt um fylgi flokkanna.

Innlent
Fréttamynd

Bilið á milli turnanna breikkar

Sjálfstæðisflokkurinn er stærstur í Reykjavíkurborg og eykur forskot sitt á Samfylkinguna. Flokkurinn mælist með ríflega tuttugu og fimm prósenta fylgi í borginni í nýrri könnun Maskínu og hefur farið upp um fjögur prósentustig síðan í mars.

Innlent
Fréttamynd

Út­lit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni

Það verður flókið að mynda meirihluta í borgarstjórn í vor miðað við nýuppfærða kosningaspá Vísis að mati stjórnmálafræðings. Stóru tíðindin nú séu þau að það mikla sóknarfæri sem opnast hafi á vinstri væng íslenskra stjórnmála sé byrjað að fyllast, sérstaða Vinstrisins sé miklu skýrari en ella.

Innlent
  • «
  • 1
  • 2