Nott. For­est - Arsenal 0-1 | Vara­maðurinn reyndist hetja meistaranna

Aron Guðmundsson skrifar
Madueke fagnar marki sínu ásamt Declan Rice
Madueke fagnar marki sínu ásamt Declan Rice Vísir/Getty

Noni Madueke reyndist hetja Englandsmeistara Arsenal í 1-0 sigri liðsins gegn Nottingham Forest á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Það var hart barist á City Ground, heimavelli Nottingham Forest, í dag líkt og hefur verið raunin í undanförnum leikjum liðanna á þessum velli.

Englandsmeistararnir þurftu sigur til að halda í við topplið Manchester City og sigurmark leiksins lét bíða eftir sér. 

Þegar komið var fram á 80. mínútu barst boltinn til Noni Madueke, sem hafði komið inn á sem varamaður í upphafi seinni hálfleiks, inn á vítateig Nottingham Forest. Eftir létta gabbhreyfingu lét hann vaða í átt að marki. Þaðan hafði boltinn viðkomu í varnarmanni Forest og endaði í netinu. 

Reyndist þetta mark sem tryggði Arsenal afar dýrmæt þrjú stig og dramatískan sigur. 

Með sigrinum er Arsenal áfram í 2. sæti deildarinnar með átján stig, þremur stigum minna en topplið Manchester City. Nottingham Forest er í 18. sæti og er með fimm stig eftir fyrstu sjö leiki sína. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira