Enski boltinn

Arteta kenndi „jóla­tré“ Nottingham Forest um vand­ræðin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, með Oliver Glasner, stjóra Nottingham Forest fyrir leik liðanna um helgina.
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, með Oliver Glasner, stjóra Nottingham Forest fyrir leik liðanna um helgina. Getty/David Price/Jim West

Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal, var með skýringuna á því af hverju liðinu gekk svo illa að skapa eitthvað í leiknum á móti Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni um helgina.

Arsenal-menn náðu aðeins einu skoti á markið í 1-0 sigrinum á Forest á sunnudag.

Skot Noni Madueke, sem fór af varnarmanni og í netið á 80. mínútu, var í eina skiptið sem Skytturnar náðu skoti á markið, og þótt það hafi dugað til dýrmæts sigurs var lið Arteta bitlaust nær allan leikinn.

„Ég held að við höfum spilað ellefu keppnisleiki. Við unnum tíu. Þannig að við munum tileinka okkur fjölbreyttar leiðir til að vinna við margs konar aðstæður,“ sagði Arteta.

„Við vissum að við myndum ekki skora á fyrstu tuttugu, þrjátíu mínútunum. Við áttum ekki von á öðruvísi Forest-liði því það er einstaklega vel þjálfað. Þeir stilltu upp jólatrésleikkerfi. Það er ekkert pláss til að spila. Maður þarf að vera svo nákvæmur og agaður,“ sagði Arteta.

„Annars þarf maður að skapa mikla ringulreið í teignum, hvort sem það er í opnu spili eða úr föstum leikatriðum. Það gerðum við nokkrum sinnum og sköpuðum tvö dauðafæri. Við hittum ekki einu sinni á markið og það skildi á milli. Og því lengur sem leið á leikinn sögðum við: „Allt í lagi, nú þurfum við að spila öðruvísi leik því á þessari stundu fer pirringurinn hjá okkur að aukast. En við skoruðum markið,“ sagði Arteta.

Madueke – sem var ekki valinn í nýjasta landsliðshóp Thomas Tuchel hjá Englandi – kom inn á í hálfleik fyrir Eberechi Eze, sem hafði lítið sýnt, og Arteta hrósaði hugarfari 24 ára leikmannsins.

„Noni, sjáið mig, ég brosi því hann er einstakur karakter. Hann er mjög vel liðinn í og í kringum búningsklefann, hvernig hann tengist fólki og talar við það,“ sagði Arteta.

„Hann er bara einstakur náungi. Ég held að ég hafi séð viðtal þar sem nokkrir leikmanna okkar voru spurðir: „Hvern myndir þú hringja í ef þú ættir í vanda? Og sumir þeirra sögðu Noni, sem kom mér á óvart,“ sagði Arteta.

„En ég held að það sé honum til mikils sóma og lýsi vel hvers konar manneskja hann er. Hann er á góðum stað. Ég held að eftir hléið sýni hann eitthvað annað, aðra gráðu af grimmd, og einnig aukna sannfæringu í því sem hann gerir. Hann er nú farinn að ráða úrslitum í leikjum, sem er það sem við væntum af leikmanni eins og honum,“ sagði Arteta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×