Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. október 2026 20:56 Declan Rice fagnar jöfnunarmarki sínu í kvöld en hann var að skora í fyrsta sinn á útivelli í Meistaradeildinni. AP/Martin Meissner Declan Rice tryggði Arsenal 2-2 jafnteli í München í Meistaradeildinni í kvöld þegar Englandsmeistararnir heimsóttu Þýskalandsmeistarana í fjörgum og skemmtilegum markaleik.Það leit reyndar út fyrir að enski landsliðsfyrirliðinn Harry Kane ætlaði að vera maðurinn á bak við sigur þýsku meistaranna. Kane lagði upp fyrra mark Bæjara og skoraði það síðara úr vítaspyrnu sem hann fékk sjálfur.Kollegi hans í enska landsliðinu átti hins vegar lokaorðið og Arsenal er áfram ósigrað í Meistaradeildinni í vetur.Þetta var mjög opinn og fjörugur leikur sem allir bjuggust kannski ekki við fyrirfram en skemmtanagildið var hátt í þessum leik á Allianz Arena í kvöld.Arsenal komst yfir þegar Eberechi Eze skoraði á 25. mínútu eftir stoðsendingu frá Martin Ödegaard. Eze var vissulega tæpur á því að vera rangstæður en myndbandsdómarar komust að því að svo var ekki.Það tók Bayern tíu mínútur að jafna en Alphonso Davies fékk þá frábæra sendingu inn fyrir frá Kane og skoraði örugglega.Staðan var því 1-1 í hálfleik en Bayern fékk vítaspyrnu á 61. mínútu eftir að boltinn fór í upprétta hönd Jurriën Timber sem var að reyna að komast fyrir skot Kane. Kane fór sjálfur á vítapunktinn og skoraði af miklu öryggi.Arsenal-menn voru hvergi nærri hættir og Declan Rice jafnaði metin í 2-2 átta mínútum fyrir leikslok. Rice tók þríhyrning við Viktor Gyökeres til að komast inn í teiginn og þrumaði svo óverjandi skoti í fjærhornið. Þetta var fyrsta útivallarmark Rice í Meistaradeildinni. Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Fótbolti Arsenal FC