Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026

Fréttamynd

Langt frá hátekjulistanum

Ójöfnuður er til staðar á Íslandi og hefur veruleg áhrif á líf fólks. Helmingur alls auðs er í höndum tíu prósent landsmanna. Á sama tíma búa þúsundir barna við fátækt. Þegar auður og völd safnast á hendur fárra skapast skekkja sem bitnar á samfélaginu í heild.

Skoðun
Fréttamynd

Borgin sem hætti að hlusta

Húsnæðisvandinn í Reykjavík snýst ekki bara um fjölda íbúða. Hann snýst fyrst og fremst um það hvort við erum að byggja íbúðir fyrir fólk sem er til, hefur áhuga á að búa í borginni eða flytja til hennar. Búið er að skapa ástand þar sem gengið er út frá því að kerfið viti betur en íbúarnir hvernig þeir vilja búa.

Skoðun
Fréttamynd

Virðing, virkni og góð lífs­gæði alla ævi

Eldra fólk er ómetanlegur hluti samfélagsins í Árborg. Þetta er hópur sem hefur byggt upp samfélagið okkar og lagt sitt af mörkum í gegnum árin. Því er mikilvægt að sveitarfélagið leggi áherslu á að þjónusta, umhverfi og tækifæri taki mið af þörfum eldri íbúa.

Skoðun
Fréttamynd

Bar­átta sem skiptir sköpum

Það er auðvelt að taka þeim réttindum sem við eigum sem sjálfsögðum hlut, svo sem að vinna á mannsæmandi launum, að eiga rétt á fríi og að geta treyst á veikindarétt, fæðingarorlof, atvinnuleysisbætur eða stuðning þegar lífið fer úr skorðum.

Skoðun
Fréttamynd

Verka­lýðs­bar­átta okkar daga

Kópavogur varð til í húsnæðiskreppu. Fólk á hrakhólum frá Reykjavík fékk úthlutaðar landsspildur til sjálfsþurftarbúskapar í móanum fyrir utan borgina.

Skoðun
Fréttamynd

Fjörður fyrir fólk

Miðbær Hafnarfjarðar er einstakur á landsvísu. Hér mætast timburhúsin, hraunið og hafið í lifandi sögulegu umhverfi sem á fáa sína líka. Þetta er ekki bara fallegur staður, þetta er það sem veitir bænum okkar sérstöðu. En þessi sérstaða er ekki sjálfgefin.

Skoðun
Fréttamynd

Hug­leiðing á 1. maí.

Í sjónvarpsþáttaseríunni Næturvaktin, sem sýnd var í sjónvarpi fyrir nokkrum árum, ber það við einn dag að félagarnir Ólafur Ragnar og Daníel standa einir vaktina. Stöðvarstjórinn, Georg Bjarnfreðarson, er í fríi og tekur þá þátt í kröfugöngunni 1. maí.

Skoðun
Fréttamynd

Vilja stjórn­völd halda Gríms­ey í byggð?

Það fer ekki framhjá neinum sem heimsækir Grímsey að þarna er samfélag sem býr yfir ótrúlegum styrk og þrautseigju. Með þetta í farteskinu hafa Grímseyingar haldið áfram og sýnt okkur samheldni og úthald við aðstæður sem íbúar í þéttbýlinu mundu flestir telja ólíðandi. En síðustu aðgerðir eða kannski væri rétt að segja aðgerðarleysi stjórnvalda eru þannig að úthald Grímseyinga fer minnkandi. 

Skoðun
Fréttamynd

Bestum borgina fyrir skynsegið fólk!

Píratar vilja borg þar sem öll fá að njóta sín og gera skemmtilega hluti saman. Þess vegna vilja Píratar besta borgina fyrir skynsegið fólk (e. neurodivergent).

Skoðun
Fréttamynd

Lægri skattar eru rétt­lætis­mál fyrir ungt fólk

Það á að borga skatta á Íslandi. Skattar fjármagna heilbrigðiskerfi, menntun og innviði sem skipta okkur öll máli. En skattar verða líka að vera sanngjarnir. Í dag upplifir margt ungt fólk að það borgi sífellt meira en fái sífellt minna til baka.

Skoðun
Fréttamynd

Ég lifi í draumi!

Það var vor í lofti og sólin heilsaði snemma þennan morguninn. Bjart yfir öllu í nálægð við Akranes (eins og við sem búum hér þekkjum) og ég hlakkaði til að koma aftur heim eftir stutta ferð fram og til baka í gegnum göngin til að sinna vinnu á höfuðborgarsvæðinu.

Skoðun
Fréttamynd

Neyðar­kall úr Eyjum

Vestmanneyingar eru seinþreyttir til vandræða, það þykir ekki gott að kvarta. Nú er hins vegar komin upp staða varðandi samgöngur í Eyjum sem er óþolandi.

Skoðun
Fréttamynd

Hvað er svona gott við að búa í Kópa­vogi?

Ég hef búið í Kópavogi frá tveggja ára aldri, með smávægilegum hléum þegar ég stundaði nám við Háskóla Íslands og síðar framhaldsnám í Kaupmannahöfn. Í dag nýt ég þeirra forréttinda að geta valið mér og minni fjölskyldu búsetu hvar sem ég kýs.

Skoðun
Fréttamynd

Viltu græða sólar­hring í hverjum mánuði?

Að geta starfað í sínum heimabæ eru ómetanleg lífsgæði. Margir Hafnfirðingar hafa lagt mikla vinnu og orku í sérhæfingu á sínu sviði, en þurfa því miður oft að keyra langar vegalengdir á hverjum degi til að sækja vinnu við hæfi. Þessu þurfum við að breyta.

Skoðun
Fréttamynd

Nýr golf­völlur í Hafnar­firði

Golfíþróttin nýtur sífellt vaxandi vinsælda, biðlistar í golfklúbba á höfuðborgarsvæðinu eru langir og dæmi um allt að 7 ára bið eftir aðild. Til að bregðast við þessu var skrifað í málefnasamning Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins í Hafnarfirði 2022-2026 „Unnið verði að skipulagi nýs golfvallar“

Skoðun
Fréttamynd

Ef ég C með hattinn, fer ég örugg­lega í stuð

Þessa frægu setningu þekkja ansi mörg enda hefur hún fylgt þjóðinni, sem og ótal aðrar, allt frá því að hin víðfræga bíómynd Með allt á hreinu kom út árið 1982. Dúddi, hinn vinnusami rótari og bílstjóri Stuðmanna, var viss um að hann kæmist í stuð ef hann eignaðist hatt Kristins Styrkárssonar Proppé og var það auðsótt hjá sjálfum Stinna stuð að gefa hattinn eftir.

Skoðun
Fréttamynd

Siglu­nes, já eða nei?

Viljum við auka aðgengi barna að sjónum og öðrum náttúruperlum borgarinnar? Viljum við að börn og ungmenni fái raunveruleg tækifæri til að kynnast hafinu, læra á það og njóta þess?

Skoðun
Fréttamynd

Reykja­vík er höfuð­borg, ekki fjöl­menningar­borg

Þótt hér í Reykjavík búi til skemmri eða lengri tíma margir góðir innflytjendur, er Reykjavík í huga mínum ekki sérstök fjölmenningarborg. Fyrst og síðast er Reykjavík höfuðborg okkar Íslendinga og menning hennar skal einkennast af því.

Skoðun
Fréttamynd

Hafnar­fjörður, höfnin, sam­göngur og sam­fé­lagið

Við erum komin á þann stað að þurfa að taka skref til stækkunar á hafnarsvæðinu okkar til að þjóna betur stærri skipum sem sjá um flutninga til og frá landinu. Frá því rétt eftir árið 2000 hefur stækkun Straumsvíkurhafnar verið á skipulagi.

Skoðun
Fréttamynd

Hvernig get ég að­stoðað?

Ég er stoltur Reykvíkingur. Ég hef ávallt haldið því fram að Reykjavíkurborg hafi verið hvað allra sveitarfélaga öflugust að viðhalda blómlegu menningarlífi í þágu allra landsmanna og sérstaklega fyrir íbúa hennar.

Skoðun