Kostnaður, ójöfnuður og þátttaka barna í íþróttum á Akureyri Sigrún Steinarsdóttir skrifar 30. apríl 2026 10:51 Þátttaka barna í íþróttum og tómstundum er almennt talinn lykilþáttur í velferð þeirra. Hún hefur jákvæð áhrif á líkamlega heilsu, andlega líðan, félagsfærni og getur virkað sem forvörn gegn ýmsum félagslegum vanda. Þrátt fyrir þetta sýna rannsóknir að brottfall úr íþróttum eykst verulega á unglingsárum. Á yfirborðinu gæti þetta virst tengjast áhugaleysi, sérhæfingu, meiðslum eða andlegri líðan. En það er ein ástæða sem sjaldan er rædd opinberlega: Kostnaður. Í dag er raunveruleikinn sá að ekki allir foreldrar hafa efni á að leyfa börnum sínum að taka fullan þátt í íþróttum. Við viljum öll að börnin í næsta húsi geti farið í keppnisferðir og fengið nýja búninga eins og hinir. En staðan er einfaldlega ekki þannig fyrir alla. Á Akureyri er kostnaður við íþróttaiðkun orðinn verulegur, sérstaklega eftir því sem börn eldast. Æfingagjöld eru aðeins hluti af heildarmyndinni. Til dæmis eru árleg æfingagjöld: um 79.000 kr. í 7. flokki handbolta um 112.000 kr. í 3. flokki handbolta 86.500–124.000 kr. á önn í fimleikum 77.000–92.000 kr. í blaki Þó að frístundastyrkur sveitarfélagsins sé 60.000 kr. á ári, nær hann aðeins að mæta hluta af þessum kostnaði. Það sem vegur þó oft þyngra eru aðrir þættir: Keppnisferðir, æfingabúðir, búningar og annar búnaður. Sá kostnaður getur hlaupið á hundruðum þúsunda króna á ári. Fyrir fjölskyldur í góðri fjárhagsstöðu er þetta áskorun, en viðráðanleg. Fyrir tekjulægri heimili getur þetta hins vegar verið óyfirstíganleg hindrun. Ef barn kemst ekki með í keppnisferð vegna kostnaðar, eða getur ekki keypt sama búning og liðsfélagar, hefur það ekki aðeins fjárhagsleg áhrif heldur einnig félagsleg. Barnið getur upplifað sig útundan og jafnvel orðið fyrir stríðni. Þetta getur haft áhrif á sjálfsmynd og dregið úr líkum á áframhaldandi þátttöku. Þessi staða tengist beint fátækt. Samkvæmt gögnum frá UNICEF frá 2023 búa um 10% barna við sárafátækt á Íslandi. Það þýðir að foreldrar þeirra eiga í erfiðleikum með að uppfylla grunnþarfir eins og mat og húsnæði. Þegar staðan er þannig er ljóst að kostnaður við íþróttir og tómstundir verður ekki forgangsmál, jafnvel þó viljinn sé til staðar. Þetta vekur upp grundvallarspurningu: Hvernig eiga foreldrar sem eiga erfitt með að ná endum saman að greiða fyrir íþróttir barna sinna? Raunveruleikinn er sá að þessi breyta – kostnaður – hefur bein áhrif á þátttöku barna, en fær lítið vægi í umræðunni. Í raun má segja að eftir því sem börn eldast, aukist líkurnar á að þau hætti – ekki bara vegna áhugaleysis, heldur vegna aðstæðna sem þau ráða ekki við. Af hverju skiptir þetta máli? Þegar börn detta út úr íþróttum vegna fjárhagslegra aðstæðna erum við ekki aðeins að missa þátttakendur úr félagsstarfi – við erum að auka ójöfnuð. Börn sem hafa efni á þátttöku fá áfram að njóta þeirra ávinninga sem íþróttir veita, á meðan önnur sitja eftir. Þetta er því ekki aðeins spurning um íþróttir, heldur um jöfn tækifæri, félagslega þátttöku og framtíðarmöguleika barna. Hvað er hægt að gera á Akureyri? Til að tryggja að öll börn hafi raunverulegt aðgengi að tómstundum þarf markvist samstarf: Auka stuðning við tekjulægri fjölskyldur umfram núverandi frístundastyrk Lækka eða jafna kostnað við keppnisferðir og búnað Tryggja að engin börn séu útilokuð vegna fjárhags Auka samstarf milli bæjarins og íþróttafélaga um jöfn tækifæri Niðurstaða Þó að við viljum trúa því að öll börn hafi jafnan aðgang að íþróttum er raunin sú að kostnaður skapar ósýnilegar hindranir. Á Akureyri, líkt og annars staðar, þýðir þetta að sum börn fá ekki að taka þátt – ekki vegna skorts á vilja eða hæfileikum, heldur vegna efnahagslegra aðstæðna. Ef markmiðið er að halda börnum í íþróttum þarf að horfast í augu við þessa staðreynd. Annars mun brottfall halda áfram að aukast – og ójöfnuður með því. Höfundur skipar þriðja sæti lista Samfylkingarinnar á Akureyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar