Tinda­stóll - Stjarnan 100-91 | Stólarnir í úr­slit annað árið í röð en meistararnir úr leik

Arnar Skúli Atlason skrifar
Tindastóll er á leið í úrslitaeinvígi Bónus deildar karla.
Tindastóll er á leið í úrslitaeinvígi Bónus deildar karla. vísir / ernir

Tindastóll er á leið í úrslitaeinvígi Bónus deildar karla annað árið í röð, eftir 100-91 sigur í oddaleik í undanúrslitum gegn ríkjandi Íslandsmeisturum Stjörnunnar.

Stólarnir lentu 2-0 undir í einvíginu en sneru stöðunni sér í vil og fóru með 3-2 sigur eftir oddaleik.

Valur eða Grindavík mun mæta Tindastóli í úrslitaeinvíginu en oddaleikur þeirra liða fer fram í kvöld og er í beinni textalýsingu á Vísi. 

Stjarnan án Seth Leday

Það var mikið undir í kvöld þegar Tindastóll og Stjarnan mættust í kvöld. Stjarnan varð fyrir áfalli í seinasta leik þegar Seth LeDay lykilleikmaður þeirra meiddist og því var á brattan að sækja í leiknum.

Stólarnir byrjuðu sterkt

Tindastóll byrjuðu betur í kvöld og leiddu í upphafi leiks. Tindastóll var að setja þriggja stiga körfur niður á meðan Stjarnan voru að fá sín stig úr teignum. Dedrick Basile og Júlíus Orri fóru fyrir liði Tindastóls en Hjá Stjörnuna voru Giannis Agravanis og Luka Gasic atkvæða mestir. Tindastóll leiddi eftir fyrsta leikhluta 30-22.

Tindastóll hélt áfram í 2 leikhluta og leiða og jók forystuna hægt og rólega. Tindastóll fékk mikið framlag frá Davis Geks hann hélt uppteknum hætti frá seinasta leik og sullaði niður þristunum. Tindastóll virtist ætla að hlaupa með þennan leik því að þeir leiddur með 20 stigum í hálfleik 59-39.

Stjarnan minnkaði muninn í seinni hálfleik 

Stjörnu menn byrjuðu seinni hálfleikinn betur og leituðu allra ráða til að koma sér aftur inn í leikinn og voru að koma sér inn í leikinn en Tindastóll virtist alltaf geta svarað. Ef það var ekki Basile þá var það Júlíus Orri eða Davis Geks. Luka og Ginnis fóru mikinn og voru að setja stór skot og koma sér á hringinn. Stjarnan náði að minnka muninn um 5 stig í fjórðungnum en Tindastóll leiddi 80-65 fyrir loka fjórðunginn.

Stjarnan byrjaði betur í honum og komu muninum strax niður í 10 stig. Hilmar Smári var frábær fyrir þá í fjórðungnum og var að setja körfur í öllum regnbogans litum. Giannis hélt áfram að setja stóra þrista eða koma sér á hringinn og Luka var frábær líka. Tindastóls vélin var að hiksta og þá er gott að eiga Taiwo Badmus inni. Hann fékk að fá meira boltann og hann sá um að skora boltanum fyrir þá. Stjarnan náði að koma muninum niður i 7 stig en nær komust þeir ekki og þegar Taiwo skoraði þrist og kom þessu upp í 12 stiga mun þegar mínúta var eftir þá var björninn unninn og Stólarnir sigldu þessu heim eftir það. Lokatölur 100-91 og Tindastóll fara í úrslit annað árið í röð en Stjarnan eru komnir í sumarfrí.

Atvik leiksins

Taiwo Badmus ísaði þennan leik þegar það var rúm mínúta eftir af leiknum með þrist sem fór langleiðina með þennan frábæra leik sem var spilaður í Síkinu í kvöld.

Stjörnur

Hjá Tindastól var Taiwo Badmus með 25 stig 6 fráköst og 5 stoðsendingar, Dedrick Basile var með 22 stig, 6 fráköst og 6 stoðsendingar.

Hjá Stjörnunni var Luka Gasic mjög góður með 26 stig og 5 fráköst. Giannis var með 24 stig, 8 fráköst og 9 stoðsendingar, Pablo og Hilmar skiluðu sitthvorum 18 stigunum fyrir þá.

Dómararnir

Þeir stóðu sig með besta móti og lítið út á þeirra frammistöðu að setja í kvöld.

Stemmingin og umgjörð

Þetta var geggjað í kvöld. Stút fullt og vel pakkað í Síkinu í kvöld.

Mikið gaman og mikið stuð.

Baldur Þór: Það er karakter í þessu liði 

Baldur Þór Ragnarsson Þjálfari Stjörnunar var ánægður með sitt lið eftir hetjulega baráttu í kvöld.

„Leiður á að tapa. Strákarnir lögðu allt í þetta og ég er stoltur af mínum strákum.“

Stjarnan var undir með 20 stigum í hálfleik en náðu að koma þessu í leik í seinni hálfleik.

„Það er karakter í þessu liði. Við erum frábært lið. Strákarnir eru í þessu fyrir hvorn annan og það er alltaf erfitt að vinna svoleiðis lið alveg sama hvað gengur á eða vantar marga. Ég er bara stoltur af okkar mönnum.“

Núna þegar Stjarnan er komið í sumarfrí og Baldur er með lausan samning en hann er ekki búinn að taka ákvörðun um næstu skref.

„Ég bara skoða það með minni fjölskyldu. Ég er svo sem ekkert að pæla í því núna.“

Arnar Guðjóns: Dramb er falli næst 

Arnar Guðjónsson þjálfari Tindastóls var gríðarlega ánægður að koma þessum sigri yfir línuna.

„Mjög glaður. Mjög krefjandi sería á móti góðu liði.“

Það var aðeins farið að fara um Arnar í seinni hálfleiknum því Stjarnan reyndu eins og þeir gátu að koma til baka.

„Ég sagði einhvern tíma að maður er í kvíðakasti alla seríuna það breytist ekkert á þessum tímapunkti.. “

Tindastóll fullkomnaði endurkomuna í kvöld með að vinna þriðja leikinn í röð á móti Stjörnunni.

„Þetta gerist ekki oft að lið komi til baka. Þetta er mjög krefjandi. Tvö erfið töp. Það sannast hin marg kveðna dramb er falli næst og ég held þess vegna áttu við skilið að vinna þetta.“

Arnar var ekkert búinn að spá hvort liðið hann vildi fá í úrslitaeinvíginu.

„Bara veit það ekki alveg.Ég er ekki búinn að hugsa um það. Bara mig langar ekki suður þá er það Valur en ég veit það ekki. Mér er eiginlega alveg sama.“

Júlíus Orri: Ótrúlegt hvað þeir eru sterkir í hausnum

Júlíus Orri leikmaður Tindastól var gríðarlega ánægður að vera kominn í úrslit með liði sínu eftir frábæran sigur í kvöld.

„Frábært að komast í úrslitin. Erfiður leikur sem var algjört hark. Stjörnumenn gerðu vel eins og alla seríuna og maður er ótrúlega glaður að vera kominn í úrslitin.“

Stjarnan gaf Tindastól alvöru leik og Júlíus fannst þeir góðir þrátt fyrir að vantaði mikilvæga menn í þeirra lið.

„Þeir keyra stöðugt á hringinn og setja alltaf pressu á hringinn. Eru áræðnir og ótrúlegt hvað þeir voru sterkir í hausnum alla seríuna án sína lykilmanna. Mér fannst þeir bara mjög góðir.“

Júlíus fannst þeir ekki lakari í tapleikjunum í þessari seríu en Tindastól menn voru öflugri en Stjarnan í seinustu þremur og sigldu þessu í hús

„Mjög ánægðir. Okkur fannst við ekki lakari aðilinn í þessum tveimur tapleikjum. Okkur fannst við sína okkar rétta andlit í seinustu þremur. Auðvitað komu kaflar hér og þar sem við hefðum getað spilað betur en maður spilar ekki betur en andstæðingurinn leyfir. Þeir voru bara góðir“

Aðspurður hvort liðið væri óskamótherji í úrslitunum þá var Júlíus Orra alveg sama.

„Mér er alveg sama. Það skiptir engu.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira