Innlent
Kemur til greina að Nató taki við varnarhlutverki Framkvæmdastjóri NATÓ telur koma til greina að sambandið taki við varnarhlutverki Bandaríkjamanna hér á landi. Í gær ræddi hann málefni Íslands við George Bush, forseta Bandaríkjanna, Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra, og Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra. Innlent 21.3.2006 18:57
Höfundur Draumalandsins stendur við ummælin Höfundur Draumalandsins dregur ekkert í land, þótt Alcoa kalli hann ósannindamann. Alcoa sé umsvifamikill þáttakandi í hönnun og þróun á stríðsvélum, ekki aðeins venjulegur hráefnisframleiðandi. "Alcoa framleiðir til dæmis Tomahawk eldflaugarnar, Bradley skriðdreka sem eru svona allra ljótustu djöflarnir sem við sjáum í Íraksmyndunum. Við erum hluti af mjög stóru og grimmu samhengi," segir Andri Snær sem skrifaði bók sína til að stinga á kýlum í samfélaginu. Innlent 21.3.2006 18:55
Umhverfissvið Rvk óskar eftir umsóknum Umhverfisráð Reykjavíkur hefur auglýst eftir tilnefningum til Umhverfisviðurkenningar Reykjavíkurborgar 2006. Til greina kemur fyrirtæki eða stofnun sem leitast við að haga rekstri sínum í samræmi við reglur um sjálfbæra þróun. Viðurkenningin kom í hlut Borgarholtsskóla árið 2005 og var það í níunda sinn sem hún var veitt. Innlent 21.3.2006 17:49
Tilboð í Héðinsfjarðargöng opnuð í dag Tékkneska vertakafyrirtækið Metrostav a.s. og Háfell ehf. stóðu sameiginlega að lægsta tilboði í gerð Héðinsfjarðarganga en tilboð í göngin voru opnuð í dag. Tilboðið hljóðaði upp á rúma fimm komma sjö milljarða og sem er um áttatíu og níu prósent af áætluðum verkkostnaði. Fimm tilboð hafa borist í verkið og tvö frávikstilboð en göngin verða þrír komma sjö kílómetrar á lengd á milli Siglufjarðar og Héðinsfjarðar og um sex komma níu kílómetra löng milli Ólafsfjarðar og Héðinsfjarðar. Næst lægsta tilboðið hljóðaði uppá rúma fimm komma átta milljarða króna þannig að litlu munar á tilboðunum tveimur. Innlent 21.3.2006 17:03
Varnarmál Íslands rædd á fundi í Frakklandi Geir H. Haarde, utanríkisráðherra, ræddi varnarmál Íslands á fundi sínum með Philippe Douset-Blazy, utanríkisráðherra Frakklands í dag. Utanríkisráðherra er staddur í vinnuheimsókn í París í boði franska starfsbróður síns. Innlent 21.3.2006 16:38
Tvær snjóbyssur að gjöf Á aðalfundi Sparisjóðs Svarfdæla í gær var Skíðafélagi Dalvíkur fært að gjöf andvirði tveggja snjóbyssa til að stækka snjóframleiðslukerfi félagsins í Böggvisstaðafjalli. Innlent 21.3.2006 16:24
Vilja að stuðlað verði að farsælum starfslokum Framkvæmdarstjórn Starfsgreinasamband Íslands krefst þess að stjórnvöld hefjist strax handa við stefnumörkun um atvinnuuppbyggingu á Suðurnesjum. Í ályktun sem framkvæmdarstjórnin sendi frá sér segir að gera verði þá kröfu til íslenskra stjórnvalda og Bandaríkjahers sem atvinnurekanda að stuðlað verði að farsælum starfslokum allra starfsmanna og leita til leiða til að draga úr afleiðingum uppsagnanna með félagslegri aðstoð. Innlent 21.3.2006 16:17
Diskó og pönk á Árbæjarsafninu Pönktónleikar á Árbæjarsafninu hljómar kannski fáránlega, en gæti þó orðið staðreynd innan fárra vikna. Í júní verður opnuð sýning á safninu þar sem fjallað verður um menningu ungs fólks í Reykjavík á árunum 1975-85, og diskóið og pönkið verður haft í forgrunni. Innlent 21.3.2006 15:57
Sök skipt til helminga Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Hagkaup að greiða karlmanni um þrítugt rúma milljón króna í bætur vegna vinnuslyss sem hann varð fyrir síðla árs 2002. Honum er þó gert að bera nokkra ábyrgð sjálfur og var því sök skipt til helminga. Innlent 21.3.2006 15:49
Ólík afstaða Halldórs og Geirs varðandi uppsögn varnarsamningsins Össur Skarphéðinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir athyglisvert að formenn stjórnarflokkanna hafi ólíka afstöðu til möguleikanna á uppsögn varnarsamningsins við Bandaríkin. Þá segir hann utanríkisráðherra hafa sýnt ótrúlegt fyrirhyggjuleysi um öryggismál á hafi. Innlent 21.3.2006 13:17
Bæjarstjóri fundaði með starfsmönnum Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, fundaði í gær með íslenskum starfsmönnum varnarliðsins í Keflavík. Mikil ólga var meðal starfsmanna sem margir óttast atvinnuleysi í haust. Innlent 21.3.2006 13:14
Urgur í starfsmönnum varnarliðsins Urgur er í starfsmönnum varnarliðsins en tollgæslan hefur eflt eftirlit sitt á umferð um aðalhlið varnarstöðvarinnar og leitar nú ítarlega í mun fleiri bílum en áður. Innlent 21.3.2006 12:51
Gagnrýna stjórnarformann OR Stjórn Vinstri grænna í Reykjavík telur fráleitt að Alfreð Þorsteinsson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, vilji að Orkuveitan hafi forgöngu um frekari skuldbindingar um orkusölu til álvers í Helguvík, án samráðs við stjórn Orkuveitunnar og borgarstjórn. Innlent 21.3.2006 12:06
Kemur til greina að NATO taki við vörnum Íslands Jaap de Hoop Schaffer, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins telur að til greina komi að Atlandshafsbandalagið taki yfir varnarhlutverkið sem Bandaríkjamenn hafa sinnt til þessa. Hann ræddi málefni Íslands við George Bush forseta og Condoleezzu Rice, utanríkisráðherra í gær. Innlent 21.3.2006 11:59
UVG segja óþarfa að verja Ísland með hervaldi Félag ungra vinstri grænna á Akureyri fagnar löngu tímabærri ákvörðun Bandaríkja Norður-Ameríku að hverfa af landi brott með herafla sinn. Í tilkynningu frá félagionu segir að ungir visntri grænir séu sammála því að óþarfi sé að verja Ísland með hervaldi og telja landið mun öruggara eftir brotthvarf Bandaríkjahers. Augljóst sé að varnarsamningur við Bandaríkin sé einnig óþarfur og ber að segja honum upp tafarlaust. Innlent 21.3.2006 10:38
Ekkert eftirlit með kaupum á vinnuvélaolíu Ekkert eftirlit er með því hverjir kaupa vinnuvélaolíu og í hvaða tilgangi en slík olía er rúmlega 43% ódýrari en dieseolían. Yfir 18 sölustaðir á höfuðborgarsvæðinu selja slíka olíu í sjálfsölum sínum. Innlent 21.3.2006 09:44
Öflugar loftvarnir mikilvægar Björn Bjarnason segir enn gríðarlega mikilvægt að á Íslandi séu öflugar loftvarnir og að ekki sé búið að útiloka að hér verði herþotur í framtíðinni. Þetta kom fram á málþingi félags stjórnmálafræðinga í Háskóla Íslands í gær. Innlent 21.3.2006 09:40
Draumalandið kynnt Húsfyllir var í Borgarleikhúsinu í gærkvöld þar Andri Snær Magnason rithöfundur kynnti nýja bók sína, Draumalandið. Bókin, sem hefur undirtitilinn Sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð, hefur þegar vakið töluvert umtal þrátt fyrir að hún hafi fyrst komið út í gær. Innlent 21.3.2006 09:35
Vinnsla hefst aftur í vikunni Vinnsla hefst á ný á morgun eða á fimmtudag í frystihúsi Fossvíkur á Breiðdalsvík en það skemmdist töluvert í eldi fyrir rúmri viku. Innlent 21.3.2006 09:32
Kemur til greina að segja upp varnarsamningnum Forsætisráðherra segir vel geta komið til greina að segja varnarsamningi Íslands og Bandaríkjanna upp en að minnsta kosti þurfi að endurskoða hann. Þetta sagði hann á fundi í Stapanum í gærkvöldi. Forsætisráðherra sagði Jaap de Hoop Scheffer, framkvædastjóra Atlandshafsbandalagsins, telja nauðsynlegt að hafa viðbúnað á Íslandi. Innlent 21.3.2006 09:15
Fjögurra bíla árekstur í Svínahrauni Einn var fluttur á slysadeild með minniháttar áverka eftir fjögurra bíla árekstur í Svínahrauni í gærkvöldi. Tengivagn á bíl bilaði með þeim afleiðingum að fólksbíll sem kom á eftir fór út af þegar ökumaðurinn reyndi að stöðva bíl sinn og valt. Innlent 21.3.2006 08:36
Föst í brunni daglangt Kona þurfti að dúsa daglangt í tæplega tuttugu metra djúpum brunni í bænum Xintai í Kína í gær eftir að hún féll ofan í hann. Á meðan björgunaraðgerðum stóð var súrefni dælt niður til konunnar. Erlent 21.3.2006 07:18
Vörubíll skorðaðist fastur undir brú Vörubíll skorðaðist fastur undir brúnni á Kársnesbraut við Nýbýlaveg um áttaleytið í gærkvöldi þegar bílstjóri vörubifreiðarinnar keyrði undir brúna með pallinn uppi. Nokkrar tafir urðu á umferð á meðan ökutækið var losað en til þess þurfti stórvirk tæki. Innlent 21.3.2006 07:12
Ekki lokað á samruna kauphalla Í síbreytilegu umhverfi og aðstæðum skoða menn stöðugt alla möguleika með tilliti til hvernig best sé að þróa kauphallir áfram, segir Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands. Fram kom um helgina gagnrýni Sigurðar Einarssonar, stjórnarformanns Kaupþings banka, á að ekki skyldi gengið til sameiningarviðræðna við OMX kauphöllina fyrir áramót. Viðskipti innlent 21.3.2006 00:41
Dregur úr vísitöluhækkun Samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands er vísitala byggingarkostnaðar, reiknuð eftir verðlagi um miðjan mars, 325,9 stig. Það samsvarar 0,18 prósenta hækkun frá því í febrúar. Vísitalan gildir fyrir apríl. Viðskipti innlent 21.3.2006 00:41
Moodys staðfestir mat sitt Alþjóðlega matsfyrirtækið Moodys Investors Service birti uppfært álit fyrirtækisins á lánshæfi Kaupþings banka. Viðskipti innlent 20.3.2006 21:25
Fjárfestir fyrir 1,1 milljarð Eignarhaldsfélagið Norvest, sem er í eigu Jóns Helga Guðmundssonar í BYKO, hefur keypt hlutabréf í KB banka fyrir rúman 1,1 milljarð króna. Eignarhlutur Norvest og fjárhagslegra tengdra aðila nemur um tveimur prósentum af hlutafé KB banka. Viðskipti innlent 20.3.2006 21:25
Ríkisstörfum hefur fækkað í sumum skattumdæmum Störfum á vegum ríkisins hefur fækkað töluvert í sumum skattumdæmum á síðustu átta árum sem er þvert á áætlanir ríkisstjórnarinnar. Á þetta benti þingmaður Frjálslynda flokksins í umræðum á Alþingi í dag og vildi draga Valgerði Sverrisdóttur ráðherra byggðamála til ábyrgðar. Hún sagði hins vegar málið ekki á sinni könnu. Innlent 20.3.2006 22:51
Húsfyllir í Borgarleikhúsi á kyninngu Draumalandinu Húsfyllir var í Borgarleikhúsinu í kvöld þar Andri Snær Magnason rithöfundur kynnti nýja bók sína, Draumalandið. Bókin, sem hefur undirtitilinn Sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð, hefur þegar vakið töluvert umtal þrátt fyrir að hún hafi fyrst komið út í dag. Innlent 20.3.2006 22:24
Landhelgisgæslan í lykilhlutverki Atburðir síðustu daga hafa dregið úr trausti milli Íslendinga og Bandaríkjamanna að sögn Halldórs Ásgrímssonar, forsætisráðherra. Hann sagði að Atlantshafsbandalagið þyrfti að vinna að því með Íslendingum að endurskapa það traust og að það væri grundvallaratriði að Bandaríkjamenn gæfi ákveðin svör við því hvaða skref þeir sjá fyrir sér að tekin verði næst. Halldór sagði ennfremur að nú þegar Ísland yfirtekur starfsemina á Keflavíkurflugvelli og þyrlubjörgunarsveitina þá myndi Landhelgisgæslan gegna þar lykilhlutverki og hugsanlega myndi starfsemi hennar færast alfarið yfir til Keflavíkur. Innlent 20.3.2006 21:09