Innlent
Skýlaus krafa að hækka lægstu launin Launahækkun til handa þeim lægstlaunuðu verður að vera skýlaus krafa við endurskoðun kjarasamninga í haust segir formaður Verkalýðsfélags Akraness. Hann segir fólkið á lægstu laununum hafa setið illilega eftir í launaþróun síðustu ára. Innlent 18.4.2006 11:35
Ekki talið að boðið verði upp á launahækkanir Fyrsti formlegi samningafundurinn milli Eflingar og Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu vegna starfsfólks á dvalar- og hjúkrunarheimilum, verður í dag. Ekki er talið að boðið verði upp á tilteknar launahækkanir á fundinum en vonir standa þó til að kjaradeila ófaglærðra leysist áður en til aðgerða kemur í næstu viku. Innlent 18.4.2006 11:34
Úrvalsvísitalan lækkar um tvö prósent Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hefur lækkað um tvö prósent í viðskiptum í morgun. Hlutabréf í Landsbankanum hafa lækkað mest um rúm fjögur prósent. Næst mest er lækkunin á hlutabréfum í FL Group sem hafa lækkað um tæp fjögur prósent í morgun. Innlent 18.4.2006 11:49
Og Vodafone tekur í notkun „EDGE-tækni" Og Vodafone hefur tekið í notkun svokallaða EDGE-tækni sem gerir viðskiptavinum í farsímaþjónustu fyrirtækisins mögulegt að nota símtæki sín með fjölbreyttari og hraðvirkari hætti en áður. Innlent 18.4.2006 10:53
Fiskaflinn helmingi minni en í fyrra Afli íslenskra fiskiskipa fyrstu þrjá mánuði ársins er aðeins rétt rúmlega helmingur þess sem hann var á fyrsta ársfjórðungi síðasta árs. Mestu munar um að loðnuveiði er mun minni í ár en í fyrra. Innlent 18.4.2006 10:50
Nýr framkvæmdastjóri TM Software Stefán Þór Stefánsson hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra hjá TM Software – Custom Development (áður Origo) af Einari Gunnari Þórissyni sem tekið hefur við nýju starfi hjá TM Software Healthcare. Stefán hefur víðtæka reynslu af ábyrgðarstörfum tengdum fjármálum og sölu- og markaðsmálum fyrirtækja. Viðskipti innlent 18.4.2006 10:40
EDGE í notkun á fleiri stöðum Og Vodafone hefur eflt farsímakerfi sitt en frekar í kringum höfuðborgarsvæðið með því að taka í notkun EDGE tækni sem gerir viðskiptavinum í farsímaþjónustu fyrirtækisins mögulegt að nota símtæki sín með fjölbreyttari og hraðvirkari hætti en áður. Nú hefur Og Vodafone lokið við uppsetningu á EDGE sambandi frá Úlfarsfelli við Mosfellsbæ og að Grundarhverfi á Kjalarnesi. Viðskipti innlent 18.4.2006 09:59
Hætt við sölu Ölgerðarinnar Ekkert verður af fyrirhugaðri sölu Ölgerðarinnar og innflutningsfyrirtækisins Danóls þar sem tilboð reyndust ekki ásættanleg að mati eigenda. Þegar fyrirtækin voru sett í söluferli í lok febrúar var tekið fram af hálfu eigenda að þau yrðu seld saman eða hvort í sínu lagi, að því gefnu að ásættanlegt verð fengist. Innlent 18.4.2006 09:48
Viðræður hefjast í dag Viðræður um kjör ófaglærðra starfsmanna á dvalar- og hjúkrunarheimilum aldraðra hefjast síðdegis í dag. Starfsmennirnir hafa tvisvar gripið til setuverkfalla á undanförnum vikum vegna óánægju með kjör sín. Innlent 18.4.2006 08:06
Braust inn í sex bíla Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn á Akureyri í nótt eftir að hann hafði brotist inn í sex bíla í bænum. Maðurinn hafði einhverja smámynt upp úr krafsinu. Innlent 18.4.2006 08:04
Innbrotsþjófur gripinn glóðvolgur Karlmaður var handtekinn á þriðja tímanum í nótt fyrir tilraun til innbrots í tölvuverslun í Álfheimum. Lögreglumenn komu að honum þar sem hann var að reyna að spenna hurðina upp. Þjófurinn fékk að gista fangageymslur lögreglunnar í nótt og verður yfirheyrður í dag. Innlent 18.4.2006 07:57
Sinueldar í Hafnarfirði Tveir sinueldar voru kveiktir í Áslandi í Hafnarfirði í nótt. Að sögn slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins voru eldarnir minniháttar og voru þeir slökktir á skömmum tíma. Innlent 18.4.2006 07:55
Fjórir í gæsluvarðhaldi vegna stórs fíkniefnamáls Fjórir menn, þrír Íslendingar og einn Hollendingur, voru úrskurðaðir, í Héraðsdómi Reykjavíkur, í þriggja vikna gæsluvarðhald á föstudaginn langa vegna eins stærsta fíkniefnamáls sem komið hefur upp hérlendis. Gríðarlegt magn fíkniefna fannst í iðnaðarhúsnæði í Reykjavík á fimmtudagskvöld. Innlent 17.4.2006 18:36
Von á frekari bensínhækkunum Bensínverð hefur hækkað um nærri þrettán krónur á einum mánuði og er bensínverð í hæstu hæðum og hvergi hærra en hér á landi. Búast má við frekari hækkunum á næstunni hér á landi vegna hækkana á heimsmarkaði. Innlent 17.4.2006 18:16
Fuglinn ekki sýktur af H5N1 Fuglinn sem fannst dauður á Elliðavatni fyrr í mánuðinum var ekki sýktur með hinu mannskæða H5N1 afbrigði fuglaflensu. Þetta sýna niðurstöður rannsóknar sem fram fór í Svíþjóð. Fuglinn fannst dauður í Elliðaárdal þann 8. apríl og ástæða þótti til sýnatöku og frekari rannsóknar. Innlent 17.4.2006 15:04
Dagsbrún fær 730 milljóna endurgreiðslu frá danska ríkinu Dagsbrún, sem hyggur á útgáfu fríblaðs í Danmörku, fær um 730 milljónir íslenskra króna endurgreiðslu frá danska ríkinu þar sem notast verður við dönsku póstþjónustuna við að dreifa blaðinu. Ritstjórar þeirra dagblaða sem nú eru á markaði segja ljóst að þeir munu þurfa að gera breytingar á blöðunum til að standa af sér íslenskættuðu samkeppnina. Innlent 17.4.2006 12:32
Hvalveiðisinnar í meirihluta Alþjóðahvalveiðiráðsins Hvalveiðisinnar eru komnir í meirihluta Alþjóðahvalveiðiráðsins að mati breska blaðsins Independent. Þessi breytta staða er árangur margra ára starfs Japana en Íslendingar og Norðmenn hafa einnig komið þar við sögu. Innlent 17.4.2006 12:23
Tæplega 400 þúsund kr. í mánaðartekjur af fíkniefnasölu á Litla-Hrauni Dæmi eru um að fangar hafi hátt í fjögur hundruð þúsund krónur í tekjur á mánuði fyrir fíkniefnasölu innan veggja fangelsisins á Litla-Hrauni. Þetta kemur fram í grein í nýjasta tölublaði Hraunbúans, blaði sem fangar á Litla-Hrauni gefa út. Innlent 17.4.2006 12:08
Lóan er komin Lóan er komin til landsins. Til hennar sást, og reyndar um það bil fimmtán fugla, við Kálfatjarnarkirkju á Vatnsleysuströnd í gær. Þá sáust lóur framan við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja síðdegis í gær. Frá þessu greinir á vef Víkurfrétta. Lífið 17.4.2006 10:35
Opið í Bláfjöllum og Hlíðafjalli Skíðasvæðið í Bláfjöllum verður opið til klukkan sex í dag. Nýfallinn þunnur snjór er yfir svæðinu en skíðaleiðir þrengri en venjulega svo fólki er sérstaklega bent á að fara varlega og halda sig á troðnum skíðabrautum. Í Hlíðarfjalli verður opið til klukkan fimm. Lífið 17.4.2006 10:07
Maður henti sér í höfnina Maður henti sér í höfnina í Reykjavík um klukkan þrjú í nótt. Hann var ölvaður og sagðist hafa fengið nóg af lífinu. Honum fannst sjórinn hins vegar mjög kaldur og hætti snögglega við þegar ofan í var komið og fór upp úr aftur. Innlent 17.4.2006 10:00
Þarf lítið til að gleðja Félagar í Rótarýklúbbi Reykjavíkur héldu í dag til Afríku en þar ætla þeir að styrkja ýmis verkefni eins og bólusetningu og fræðslu barna. Innlent 16.4.2006 18:28
Óvæntur liðsauki Lögreglunni í Keflavík barst óvæntur liðsauki síðla í gær þegar þegar fjallmyndarlegur dísarpáfagaukur kom á lögreglustöðina. Líklegt þykir að gauksi hafi strokið að heiman og rati ekki til baka. Eigandi páfagauksins getur komið við á varðstofunni í Keflavík og vitjað gauksins, svo hann geti notið páskanna í faðmi fjölskyldunnar. Innlent 16.4.2006 11:11
Fjórir menn handteknir eftir átök í heimahúsi Fjórir karlmenn voru handteknir eftir átök milli þeirra í samkvæmi í Breiðholti. Lögreglunni barst tilkynning í kringum miðnætti um að mikil læti bærust frá íbúð þar sem þeir voru staddir. Nokkrir samkvæmisgestir voru vopnaðir hnífum og voru undir áhrifum áfengis- eða vímuefna. Innlent 16.4.2006 11:02
Einn gisti fangageymslur Einn maður gisti í fangageymslum lögreglunnar á Akureyri í nótt en mikil skemmtanahöld voru í bænum. Maðurinn, sem er á þrítugsaldri var talsvert ölvaður og þótt hann hafi ekki gert mikið af sér var hann til leiðinda eins og lögreglan orðaði það sjálf. Innlent 16.4.2006 10:04
Leiðindaveður á mörgum skíðasvæðum Leiðindaveður er á mörgum skíðasvæðum landsins. Opið er á neðra svæðinu í Hlíðarfjalli í dag. Lokað er í Bláfjöllum og á skíðasvæði Ísfirðinga en þar á að athuga með opnun klukkan ellefu. Innlent 16.4.2006 10:03
Einn fluttur á slysadeild eftir slagsmál Ungur karlmaður var fluttur á slysadeild Landsspítala-Háskólasjúkrahús eftir slagsmál í miðborginni. Einhverjar ryskingar áttu sér stað milli hans og annars manns og lenti ungi maðurinn með hendina í rúðu, sem brotnaði, og skarst maðurinn nokkuð. Meiðsl hans voru þó ekki alvarleg. Innlent 16.4.2006 09:51
Farfuglarnir seint á ferð Miklar norðanáttir undanfarið hafa seinkað komu farfugla til landsins. Þrátt fyrir að þessir vorboðar séu farnir að láta sjá sig eru þeir mun færri en venjulega og enn bólar ekkert á sumum þeirra eins og hrossagauknum. Innlent 15.4.2006 19:29
Samkynhneigðir fái full réttindi Íslenska þjóðkirkjan verður að veita samkynhneigðum öll sömu réttindi og gagnkynhneigðum. Þetta er skoðun prestanna Þórhalls Heimissonar og Bjarna Karlssonar. Innlent 15.4.2006 17:05
Forseti bæjarstjórnar leiðir listann Elías Jónatansson, iðnaðarverkfræðingur og forseti bæjarstjórnar bolungarvíkur leiðir lista sjálfstæðismanna fyrir sveitarstjórnarkosningarnar þann 27. maí. Framboðslistinn var samþykktur einróma af fulltrúaráði Sjálfstæðisfélaganna í Bolungarvík á fundi ráðsins á skírdag. Innlent 15.4.2006 15:10