Ekki talið að boðið verði upp á launahækkanir 18. apríl 2006 12:00 Álfheiður Bjarnadóttir, talskona ófaglærðra á dvalar- og hjúkrunarheimilum. Mynd/Vilhelm
Fyrsti formlegi samningafundurinn milli Eflingar og Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu vegna starfsfólks á dvalar- og hjúkrunarheimilum, verður í dag. Ekki er talið að boðið verði upp á tilteknar launahækkanir á fundinum en vonir standa þó til að kjaradeila ófaglærðra leysist áður en til aðgerða kemur í næstu viku. Jóhann Árnason, stjórnarformaður Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu og framkvæmdarstjóri hjúkrunarheimilisins Sunnuhlíðar í Kópavogi, telur að engin tilboð verði lögð fyrir á fundinum í dag. Hann segir að þar sem þetta sé fyrsti formlegi samningafundurinn þá verði farið yfir stöðuna og möguleikar til hækkunar launa verði skoðaðir. Fyrir Páska samþykktu ófaglærðir beiðni forstöðumanna dvalar- og hjúkrunarheimilanna um að fresta öllum aðgerðum til 27. apríl. Ef kjaradeilan leysist ekki fyrir þann tíma þá gæti komið til viku langs setuverkfalls eða fjöldauppsagna ófaglærðra. Jóhann segir erfitt að eiga við vikulangt seturverkfall og fjöldauppsagnir myndu hafa enn verri afleiðingar. Hann segir að það sé því óskandi að samningar náist fyrir þann tíma. Álfheiður Bjarnadóttir, talskona ófaglærðra, segir að fólk sé reitt og að til fjöldauppsagna komi ef kjaradeilan leysist ekki fljótlega. Hún segir að ófaglærðir vilji sjá aðgerðir til en ef til þeirra kemur ekki, þá muni margir segja upp störfum. Sjálf segist hún ákveðin í að segja starfi sínu lausu ef kjaradeilan leysist ekki.
Fréttir Innlent Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent „Ég hafna samningi þeirra“ Erlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Innlent Fleiri fréttir Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Sjá meira