Erlent
Skutu palestínska byssumenn Ísraelskir hermenn skutu þrjá Palestínumenn til bana nærri bænum Jenín á Vesturbakkanum í nótt í leit sinni að herskáum uppreisnarmönnum. Að sögn ísraelska hersins skutu tveir byssumenn, sem taldir voru félagar í Íslamska Jihad, á hermennina sem svöruðu með skothríð. Hins vegar segja palestínsk vitni að herinn hafi skotið mennina tvo þar sem þeir földu sig uppi í ólífutré. Erlent 23.10.2005 15:00
Auglýsingar dragi úr sjálfstrausti Þrír af hverjum fjórum foreldrum í norrænu ríkjunum telja að auglýsingar sem beint er til barna og ungmenna veiki sjálfstraust þeirra. Erlent 23.10.2005 15:00
Byggðir að sökkva vegna hlýnunar Byggðir í Alaska eru hreinlega að sökkva vegna hlýnunar á norðurslóðum og lífverur eru í vanda á svæðinu vegna breytts umhverfis. Erlent 23.10.2005 15:00
Hollensku lögin rýmkuð Hollenska ríkisstjórnin ætlar sér að auka við lög um líknardráp þar í landi, og setja viðmiðunarreglur um hvenær læknar megi binda enda á líf dauðvona nýbura, séu foreldrar samþykkir því. Erlent 23.10.2005 15:00
Hollensku lögin rýmkuð Hollenska ríkisstjórnin ætlar sér að auka við lög um líknardráp þar í landi, og setja viðmiðunarreglur um hvenær læknar megi binda enda á líf dauðvona nýbura, séu foreldrar samþykkir því. Erlent 23.10.2005 15:00
50 látnir - 100 særðir Að minnsta kosti 50 manns eru sagðar látnir og 100 særðir eftir að röð bílsprengna sprakk norður af Bagdad fyrir stundu. Ekki liggja fyrir nánari upplýsingar um ódæðið að svo stöddu. Erlent 23.10.2005 15:00
Skógareldar í Kaliforníu Miklir skógareldar geisa á tveim stöðum í Kaliforníu. Rúmlega 1500 hektarar lands hafa nú orðið eldinum að bráð og fjölmargir hafa þurft að yfirgefa heimili sín. Eitt þúsund slökkviliðsmenn berjast nú við eldana og nú fyrir stundu gaf bandaríska veðurstofan út vindviðvörun í Suðvestur-Kaliforníu þar sem vindhraðinn er nú 64 kílómetrar á mínútu og því talið að eldarnir geti breiðst hratt út. Erlent 23.10.2005 15:00
Yfir 60 manns sprengdir í Írak Þrír sjálfsmorðssprengjumenn sprengdu í gær nær samtímis bílsprengjur í bæ norður af Bagdad, þar sem flestir íbúar eru sjía-múslimar. Að minnsta kosti sextíu manns létu lífið og um 70 særðust, að því er sjúkrahúslæknir greindi frá. Fimm bandarískir hermenn féllu í sprengingu í bæ í vesturhluta landsins. Erlent 23.10.2005 15:00
Segja næga olíu í jörðu Næg olía er í jörðu til að endast um áratuga skeið. Þetta segja Sádi-Arabar sem héldu fund með stjórnendum Exxon Mobil, stærsta olíufélags heims, í Jóhannesarborg í Suður-Afríku í gær, en umræður um að olían sé að ganga til þurrðar hafa aukist mikið. Erlent 23.10.2005 15:00
Fann fóstur við fíkniefnaleit Kólumbíska lögreglan fann óvænt þrjú fóstur við hefðbundna leit að eiturlyfjum í smylgvarningi. Fóstrin eru talin vera fjögurra til fimm mánaða gömul. Fóstrin voru vandlega innpökkuð í plast og þeim komið fyrir í líkneski af dýrlingi og var böggullinn á leið til Miami. Lögreglan telur að nota hafi átt fóstrin við einhvers konar djöfladýrkun eða slíkar athafnir en hún gefur þó ekki upp hvers vegna hún telur svo vera. Erlent 23.10.2005 15:00
Kanadaher haldið á horriminni Kanadíski herinn er "veiklaður" og allt of litlu fjármagni er varið til varna landsins. Þetta er niðurstaða skýrslu sem unnin var á vegum öldungadeildar kanadíska þingsins og birt var í gær. Erlent 23.10.2005 15:00
Abu Ghraib-myndir skulu afhentar Aðgangur skal veittur að áður óbirtum ljósmyndum af misþyrmingum á föngum í Abu Ghraib-fangelsinu í Bagdad. Þetta var niðurstaða bandarísks alríkisdómara í New York, en hann gekk þvert á vilja bandarískra stjórnvalda sem segja dreifingu myndanna skaða ímynd Bandaríkjanna. Erlent 23.10.2005 15:00
Biðjast afsökunar á aðild sinni Forráðmenn hollenska lestarkerfisins hafa í fyrsta sinn beðist afsökunar á því að hollenskar lestir skyldu hafa verið notaðar til að flytja gyðinga í útrýmingarbúðir nasista í síðari heimsstyrjöldinni. Talið er að um hundrað þúsund gyðingar hafi verið sendir með hollenskum lestum í búðir í Austur-Evrópu en margir þeirra áttu ekki afturkvæmt. Erlent 23.10.2005 15:00
Fá að snúa til baka Fleiri íbúar New Orleans mega snúa aftur til borgarinnar á morgun, en margir þeirra hafa ekki að neinu að hverfa. Sum hverfi hafa hreinlega þurrkast út. Íbúar átta tiltekinna póstnúmerasvæða mega vitja heimila sinna snemma í fyrramálið. Erlent 23.10.2005 15:00
Mannskætt rútuslys í Perú Að minnsta kosti átján manns létust og 40 slösuðust þegar tvær rútubifreiðar lentu í árekstri á hraðbraut í Perú í gærkvöld. Slysið varð 270 kílómetra suður af höfuðborginni Lima þegar önnur rútan reyndi að fara fram úr bíl en ók þá í veg fyrir aðra rútu sem kom úr gagnstæðri átt. Erlent 23.10.2005 15:00
Nýr landsstjóri í Kanada Michaëlle Jean sór í gær embættiseið sem nýr landsstjóri í Kanada en hún er fyrsti blökkumaðurinn sem gegnir þessu embætti. Skipan hennar hefur verið vel tekið víðast hvar í Kanada en var þó ekki óumdeild. Landsstjórinn er fulltrúi Bretadrottningar sem er eiginlegur þjóðhöfðingi Kanada. Erlent 23.10.2005 15:00
Hyggjast banna ruslfæði í skólum Ruth Kelly, menntamálaráðaherra Bretlands, tilkynnir í dag á þingi Verkamannaflokksins að til standi að banna allt ruslfæði í breskum skólum innan árs í viðleitni til að bæta heilsu breskra barna. Umræða um hollari máltíðir í skólum komst í hámæli í kosningunum í Bretlandi í vor en þá vakti sjónvarpskokkurinn Jamie Oliver athygli á málinu og hefur hann leitt baráttuna fram til þessa. Erlent 23.10.2005 15:00
Írakar reiðir vegna dóms Reiði braust út meðal almennings í Írak þegar kunnugt varð að Lynndie England fengi aðeins þriggja ára fangelsisdóm fyrir að misþyrma og niðurlægja írakska fanga í Abu Ghraib fangelsinu. Erlent 23.10.2005 15:00
Harka gegn Hamas Ísraelsher hélt áfram hernaðaraðgerðum sínum í gær gegn herskáum Palestínumönnum. Ísraelar segja hörkuna nauðsynlega en Hamas telur að verið sé að veikja samtökin í pólitísku tilliti. Erlent 23.10.2005 15:00
Sækja í lífsgæðin í Evrópu Þúsund innflytjendur frá fátækum ríkjum Afríku réðust á varnargirðingu milli Spánar og Marokkós til að freista þess að öðlast betri lífsgæði í Evrópu. Girðinguna reistu Spánverjar til að halda frá ólöglegum innflytjendum frá fátækum ríkjum suðlægrar Afríku sem reyna að flýja eymdina í heimalandinu. Erlent 23.10.2005 15:00
Leituðu músar í flugvél Heldur óvenjulegur laumufarþegi fannst í flugvél á vegum Qatar Airways þegar verið var að undirbúa flugtak frá flugvellinum í Maníla á dögunum. Einn úr áhöfinni kom þá auga á litla mús sem skaust á milli sæta í farþegarými vélarinnar. Flugstjórinn greip til þess ráðs að skipa öllum 250 farþegunum að fara út út vélinni á meðan reynt var að ná nagdýrinu. Erlent 23.10.2005 15:00
Damrey veldur meiri usla Tólf lágu í valnum eftir að fellibylurinn Damrey fór yfir Víetnam í gær. Alls hafa 46 látist af völdum óveðursins í Suðaustur-Asíu. Erlent 23.10.2005 15:00
Aftur ráðist á ráðningarstöð Að minnsta kosti sjö létust og 37 særðust þegar kona sprengdi sig í loft upp við ráðningarstöð írakska hersins í bænum Tal Afar nærri landamærum Sýrlands í dag. Nokkur fjöldi manna var á staðnum að skrá sig í herinn þegar árásin var gerð, en sams konar árás var gerð við ráðningarstöð í bænum Bakúba í gær. Þar létust tíu og 30 særðust. Erlent 23.10.2005 15:00
Sekur um samsæri "Ég hef ekkert gert af mér. Ég er saklaus," sagði repúblíkaninn Tom DeLay á blaðamannafundi í Hvíta húsinu í Washington í gær. DeLay þurfti að yfirgefa stöðu sína sem forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings í gær eftir að kviðdómur í Texas úrskurðaði hann sekan um samsæri og lögbrot í fjármögnun á kosningabaráttu. Erlent 23.10.2005 15:00
Tekinn af lífi fyrir morð Alan Matheney var tekinn af lífi í Indiana í Bandaríkjunum í nótt að íslenskum tíma. Matheney var dæmdur til dauða fyrir morðið á fyrrverandi eiginkonu sinni. Morðið framdi hann árið 1989 þegar hann fékk átta klukkustunda langt leyfi úr fangelsi þar sem hann afplánaði fyrri fangelsisdóm fyrir að hafa ráðist á eiginkonuna fyrrverandi, nauðgað henni og skilið eftir nær dauða en lífi. Erlent 23.10.2005 15:00
Tekinn af lífi Yfirvöld í Indiana tóku í fyrrinótt Alan Matheney af lífi með eitursprautu en hann var dæmdur til dauða fyrir morðið á fyrrverandi eiginkonu sinni árið 1989. Erlent 23.10.2005 15:00
Næstæðsti maður al-Qaida drepinn Bandarískar og íraskar öryggissveitir hafa ráðið annan valdamesta yfirmann innan hryðjuverkasamtakanna al-Qaida í Bagdad af dögum. Abdullah Abu Azzam er talinn hafa skipulagt fjölda sjálfsmorðsárása í borginni síðan í apríl sem orðið hafa hundruðum að bana en fimmtíu þúsund dollarar voru settir honum til höfuðs eða rúmlega þrjár milljónir króna. Erlent 23.10.2005 15:00
Hryllingssögur hafi verið ýktar Komið hefur í ljós að hryllingssögur frá New Orleans í kjölfar þess að fellibylurinn Katrín reið yfir suðurströnd Bandaríkjanna voru orðum auknar eða jafnvel uppspuni frá rótum. Þetta þykir áfall fyrir bandaríska fjölmiðla. Erlent 23.10.2005 15:00
Kona framdi sjálfsmorðsárás Ung kona, dulbúin sem karlmaður, framdi sjálfsmorðssprengjuárás í borginni Tal Afar í norðanverðu Írak í gær. Erlent 23.10.2005 15:00
Ýkjur einkenndu fréttaflutninginn Heimsbyggðin fylltist óhug eftir að hafa heyrt fréttaflutning af afleiðingum fellibylsins Katrínar. Nú er hins vegar að koma í ljós að fréttirnar voru í mörgum tilvikum meira í ætt við tröllasögur en raunverulegar lýsingar á því sem gerðist. Erlent 23.10.2005 15:00