Erlent
Stéttamynd fær kvikmyndaverðlaunin Kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs fara í ár til kvikmyndarinnar "Dråpet" eftir danska kvikmyndaleikstjórann Per Fly. Lífið 23.10.2005 15:03
Krefst bóta af borginni Hinn 64 ára gamli Robert Davis, sem á dögunum var barinn af lögrelgunni í New Orleans, ætlar að höfða skaðabótamál gegn borginni. Sjálfur sagðist Davis vera saklaus fyrir dómi en hann er ákærður fyrir ölvun á almannafæri og fyrir að hafa veitt viðnám við handtöku. Erlent 23.10.2005 15:03
Kanaan framdi sjálfsmorð Sýrlenskir ríkisfjölmiðlar sögðu frá því í gær að rannsókn Muhammad al-Louji ríkissaksóknara á dauða Ghazi Kanaan innaríkisráðherra hefði leitt í ljós að Kanaan hefði stungið byssu upp í munn sér og hleypt. Hann kenndi hann einelti líbanskra fjölmiðla í garð Kanaan um. Erlent 23.10.2005 15:04
Andlitsgrímur uppseldar Flensulyfið Tamiflu er uppselt í apótekum í Belgrad í Serbíu. Þar óttatst menn að fuglaflensufaraldur kunni að breiðast út eftir að upp komst að veiran hafði fundist í Rúmeníu sem og í Tyrklandi. Erlent 23.10.2005 15:04
Blindum vísað burt Lágfargjaldaflugfélagið Ryanair sætir nú mikilli gagnrýni frá samtökum fatlaðra eftir að níu blindum og sjóndöprum einstaklingum var vísað frá borði. Erlent 23.10.2005 15:04
Pakistanar biðja um meiri aðstoð Musharraf forseti Pakistan, hefur beðið alþjóðasamfélagið um meiri aðstoð vegna hamfaranna þar á dögunum en hann sagði hörmungarnar meiri en stjórnvöld réðu við. Musharraf viðurkenndi að hjálpar- og björgunarstarf gengi illa en bað landsmenn um að sýna umburðarlyndi. Erlent 23.10.2005 15:03
Tuttugu féllu í árás í Rússlandi Tuttugu lágu í valnum eftir árás á borgina Nalchik í Kabardino-Balkaria héraði Rússlands, skammt Tsjetsjeníu þar sem borgarastríð hefur geisað meira og minna án láts síðasta áratuginn. Erlent 23.10.2005 15:03
Tala látinna komin í 25 þúsund Hjálparstarf á skjálftasvæðunum í Pakistan gengur erfiðlega, þar sem aðstoð og hjálpargögn berast seint. Stjórnvöld í Pakistan greindu frá því í morgun að minnst tuttugu og fimm þúsund manns hefðu farist í hamförunum. Erlent 23.10.2005 15:04
Steinmeier í þýsku utanríkismálin Frank Walter Steinmeier, starfsmannastjóri Gerhards Schröder fráfarandi kanslara, verður næsti utanríkisráðherra Þýskalands. Þetta kom í ljós er forusta þýska jafnaðarmannaflokksins SPD staðfesti hverjir úr þeirra röðum tækju sæti í væntanlegri samsteypustjórn með kristilegum demókrötum. Erlent 23.10.2005 15:04
Fuglaflensan á mörkum Evrópu Fuglaflensan mannskæða er nú komin að mörkum Evrópu. Rannsóknir á sýnum sem tekin voru úr fuglum í Tyrklandi hafa leitt í ljós afbrigði veirunnar sem er hættulegt mönnum. Tyrknesk yfirvöld segjast hafa náð að hefta útbreiðslu veirunnar. Erlent 23.10.2005 15:04
Tímósjenkó vinsælust Júlía Tímósjenkó, fyrrverandi forsætisráðherra Úkraínu, hefur yfirgnæfandi forskot í nýrri skoðanakönnun um vinsældir frambjóðenda til þingkosninga. Erlent 23.10.2005 15:04
Stappaði stálinu í menn sína George W. Bush Bandaríkjaforseti ávarpaði bandaríska hermenn í Tikrit í Írak í gær í gegnum myndsíma frá Hvíta húsinu en búist er við að þeir muni hafa í nógu að snúast vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar á morgun. Erlent 23.10.2005 15:04
Aldrei meiri skötuselsafli Rúmlega 3200 tonn veiddust af skötusel í lögsögu Færeyja í fyrra og hefur aflinn aldrei verið meiri. Þetta er um það bil helmingi meira en veiði Íslendinga árið undan. Erlent 23.10.2005 15:03
Skaut sextán skólabörn Kínverskur karlmaður skaut og særði sextán ung skólabörn í Anhui héraði í austanverðu Kína. Sjö barnanna liggja alvarlega særð á sjúkrahúsi en ekkert þeirra er í lífshættu. Maðurinn flýði úr skólanum eftir árásina og um 200 lögreglumenn leita nú að honum. Erlent 23.10.2005 15:03
Fuglaflensa í Tyrklandi Fuglaflensan mannskæða er nú komin að landamærum Evrópu. Talsmenn framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins tilkynntu í morgun að rannsóknir úr sýnum, sem tekin voru úr fuglum í Tyrklandi, hefðu leitt í ljós afbrigði veirunnar sem væri hættulegt mönnum. Erlent 23.10.2005 15:04
Hættulegt tannkrem Norskir og sænskir sérfræðingar hafa varað fólk við að nota tannkrem með efninu tríklósan, þar sem það getur verið skaðlegt. Efnið er í tannkremstegundum sem eru merktar Total og er bakteríudrepandi. Börnum og þunguðum konum er sérstaklega ráðlagt að nota annars konar tannkrem. Erlent 23.10.2005 15:04
Pinter fær bókmenntaverðlaunin Breska leikritaskáldið Harold Pinter hlaut í morgun Nóbelsverðlaunin í bókmenntum. Sænska akademían tilkynnti í morgun að breska leikritaskáldið hefði hlotið bókmenntaverðlaun nóbels þetta árið. Erlent 23.10.2005 15:04
Öflugur eftirskjálfti í Pakistan Öflugur eftirskjálfti reið yfir Islamabad, höfuðborg Pakistan í gærkvöld, fjórum dögum eftir að jarðskjálfti upp á 7,6 á richter varð að minnsta kosti 40 þúsund manns að bana í landinu. Erlent 23.10.2005 15:03
Skæruliðar felldir í Tsjetsjeníu Fimmtíu skæruliðar hafa verið felldir og tólf óbreyttir borgarar látið lífið í hörðum átökum hers og skæruliða í borginni Naltjik, nærri Tsjetsjeníu. Skæruliðar réðust inn í barnaskóla í borginni, en starfsfólki skólans tókst að bjarga börnunum í tæka tíð. Skæruliðarnir hafa einnig ráðist inn í lögreglustöð og opinberar byggingar. Erlent 23.10.2005 15:04
Muntefering varakanslari Franz Muntefering, formaður þýska Jafnaðarmannaflokksins, verður næsti varakanslari Þýskalands, að því er Reuter-fréttastofan greindi frá í morgun. Hann mun gegna embættinu undir forystu Angelu Merkel, leiðtoga Kristilegra demókrata, sem sest í stól kanslara og tekur við af Gerhard Schröder. Erlent 23.10.2005 15:04
Tusk eykur forskotið á Kaczynski Frjálshyggjumaðurinn Donald Tusk hefur aukið forskot sitt á keppinautinn um pólska forsetaembættið, íhaldsmanninn Lech Kaczynski, upp í tólf prósentustig, samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar sem birtar voru í gær. Úrslitaumferð forsetakosninganna, þar sem valið stendur á milli þeirra tveggja, fer fram 23. þessa mánaðar. Erlent 23.10.2005 15:04
Tugir falla í árás uppreisnarmanna Téténskir uppreisnarmenn lýstu ábyrgð á árásinni, en með henni færðist vettvangur stríðs íslamska uppreisnarmanna á Kákasussvæðinu gegn Rússum enn frekar út, en það hefur nú staðið í á annan áratug. Erlent 23.10.2005 15:04
Chavez rekur burt trúboða Hugo Chavez, forseti Venesúela, hefur lýst því yfir að starfsmönnum bandarískum trúboðasamtakanna New Tribes verði vísað úr landi. Erlent 23.10.2005 15:04
Fuglaflensan komin til Evrópu Staðfest hefur verið að alifuglar sem drápust í Tyrklandi í síðustu viku voru smitaðir af fuglaflensu af hinum hættulega H5N1-stofni. Eftir því sem veiran finnst víðar aukast líkurnar á að hún stökkbreytist og smitist á milli manna. Erlent 23.10.2005 15:04
Tíminn að renna út Kuldi, vosbúð og hungur sverfa nú að bágstöddum á jarðskjálftasvæðunum í Pakistan. Allstór eftirskjálfti reið yfir svæðið í gær en olli þó ekki teljandi skemmdum. Erlent 23.10.2005 15:04
Pinter fékk Nóbelsverðlaun Breska leikritaskáldið Harold Pinter hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels þetta árið. Valið kom heldur á óvart og Pinter sjálfum varð víst orða vant við fréttirnar, en það ku ekki gerast oft. Erlent 23.10.2005 15:04
Þrjátíu létust í sprengjuárás Í það minnsta 30 manns létu lífið í sjálfsmorðssprengjuárás við nýliðaskráningu hersins í borginni Tal Afar í norðurhluta Íraks, 35 að særðust í árásinni. Þetta er önnur sjálfsmorðssprengjuárásin í borginni á tveim dögum þrátt fyrir fullyrðingar íraskra og bandaríska yfirvalda í síðasta mánuði um að þau hefðu upprætt sveitir vígamanna í borginni. > Erlent 23.10.2005 18:59
Sagður hafa stytt sér aldur Ghazi Kanaan, innanríkisráðherra Sýrlands og yfirmaður leyniþjónustu landsins í Líbanon, fannst látinn á skrifstofu sinni í gær, að sögn sýrlenskra stjórnvalda. Tvær vikur eru þangað til skýrsla rannsóknarnefndar Sameinuðu þjóðanna um morðið á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, liggur fyrir og því leikur grunur á að valdamenn í Damaskus hafi látið ráða hann af dögum til að forða sjálfum sér frá alþjóðlegum refsiaðgerðum. > Erlent 23.10.2005 18:59
Stjórnaskrá Íraks tekin fyrir Írakska þingið kemur saman í Bagdad í dag til að gera breytingar á stjórnarskrá landsins, eftir að einn helsti stjórnmálaflokkur landsins, flokkur Súnní-Araba ákvað að hvetja stuðningsmenn sína til að samþykkja stjórnarskrána. > Erlent 23.10.2005 18:59
Thatcher áttræð Haldið verður upp á áttræðisafmæli Margaret Thatcher með miklu hófi í Lundúnum í dag. Á gestalistanum eru 680 manns, þar á meðal Elísabet Englandsdrottning og Tony Blair forsætisráðherra. > Erlent 23.10.2005 18:59