Erlent

Fréttamynd

Krefjast afsagnar Göran Persson

Mikið uppnám hefur orðið í sænskum stjórnmálum eftir að sérstök rannsóknarnefnd, sem fór yfir viðbrögð stjórnvalda vegna flóðbylgjunnar sem reið yfir Suðaustur-Asíu á annan dag jóla í fyrra, kynnti skýrslu sína í gær. Skýrslan fer hörðum orðum um viðbrögð ríkisstjórnarinnar og afsagnar forsætis- og utanríkisráðherra er nú krafist.

Erlent
Fréttamynd

Hjálparstarfið í hættu

Sameinuðu Þjóðirnar þurfa að skera verulega niður hjálparstarf á hamfarasvæðunum í Pakistan ef ekki berst meira fjármagn strax á næstu dögum.

Erlent
Fréttamynd

Blair gefur eftir

Bretar eru tilbúnir að gefa eftir hluta af endurgreiðslum sínum til að sátt náist um nýtt fjárlagafrumvarp innan Evrópusambandsins.

Erlent
Fréttamynd

Særði tvo yfirmenn í sjálfsmorðstilraun

Bandarískur sjóliði og tveir yfirmenn hans særðust þegar hermaðurinn reyndi, að því er virtist, að fremja sjálfsmorð á herstöð í Texas í gær. Þegar yfirmennirnir komu að manninum, mundandi byssu, reyndu þeir að stöðva hann og upphófust þá átök um skotvopnið.

Erlent
Fréttamynd

Sá þúsundasti tekinn af lífi

Þúsundasti bandaríski fanginn var tekinn af lífi í morgun, eftir að dauðarefsing var tekin upp á nýjan leik í Bandaríkjunum fyrir þrjátíu árum.

Erlent
Fréttamynd

6 ára gamall drengur beið bana eftir árás þriggja hunda

6 ára gamall drengur beið bana í Oberglatt í Sviss í gær þegar þrír varðhundar réðust á hann. Drengurinn var á leið á dagheimili og átti aðeins eftir nokkur hundruð metra þegar hundarnir komu skyndilega hlaupandi og réðust á hann á meðan sjónarvottar stóðu hjálpvana hjá og gátu ekkert gert.

Erlent
Fréttamynd

Aflífaður fyrir smygl

Ástralskur eiturlyfjasmyglari var tekinn af lífi í Singapúr í nótt, þrátt fyrir ítrekaða beiðni ástralskra stjórnvalda um að manninum yrði sýnd miskunn. Stjórnvöld í Ástralíu eru æf vegna málsins og það gæti átt eftir að draga dilk á eftir sér.

Erlent
Fréttamynd

Seldi vinum sínum aðgang að dóttur sinni

Sjö menn sem sitja nú í gæsluvarðhaldi eða hafa verið dæmdir í Danmörku grunaðir um að hafa misnotað stúlku þegar hún var 10 ára gömul. Faðir stúlkunnar leyfði mönnunum að misnota hana gegn greiðslu. Mennirnir eru á fimmtugs aldri og allt upp í 73 ára gamlir.

Erlent
Fréttamynd

Skæruliðar aðsópsmiklir

Uppreisnarmenn í borginni Ramadi í vesturhluta Íraks skutu eldflaugum að stjórnarbyggingum og bandarískum varðstöðvum í gær. Engan sakaði þó í árásunum sem helst virðast hafa verið framdar í áróðursskyni. Skömmu eftir uppþotin héldu grímuklæddir skæruliðarnir hver sína leið.

Erlent
Fréttamynd

Þrýsta á um svör við fangaflugsásökunum

Vaxandi óánægju gætir nú víða í Evrópu yfir því að hægt virðist ganga að komast að því hvað sé hæft í ásökunum um fangaflug og leynifangelsi CIA. Í nafni ESB hefur breska stjórnin farið fram á skýringar frá bandarískum stjórnvöldum.

Erlent
Fréttamynd

Lögreglusveitir lokuðu kjörstöðum

Til óeirða kom á nokkrum kjörstöðum í Egyptalandi eftir að lögregla ákvað að loka þeim. Á þessum stöðum var búist við að stjórnarandstæðingum mundi vegna vel. Lokaumferð egypsku þingkosninganna fór fram í gær og er óhætt að segja að víða hafi verið heitt í kolunum. Lögregla lét loka nokkrum kjörstöðum þar sem félagar í Bræðralagi múslima höfðu verið aðsópsmiklir.

Erlent
Fréttamynd

Ramadi hertekin í morgun

Yfir fjögur hundruð uppreisnarmenn hertóku miðborg Ramadi í Írak í morgun. Ekki hafa fengist upplýsingar um mannfall en á veggspjöldum sem hafa verið hengd upp um alla borg segir að al-Qaida hafi náð völdum í borginni.

Innlent
Fréttamynd

Fara í fyrsta lagi í febrúar á næsta ári

Fjölmennt herlið á vegum Atlantshafsbandalagsins í Pakistan getur í fyrsta lagi farið þaðan í lok febrúar á næsta ári. NATO sendi um eitt þúsund hjúkrunarliða, verkfræðinga og þyrluflugmenn til hamfarasvæðanna í Pakistan, eftir að jarðskjálft reið þar yfir hinn áttunda október.

Erlent
Fréttamynd

Skilaboð Sameinuðu á alþjóðlega alnæmisdeginum

Þjóðir heims mega ekki sofa á verðinum í baráttunni við alnæmi, þó að fjölmiðlar hafi fjallað meira um aðra sjúkdóma undanfarin misseri. Þetta eru skilaboð Sameinuðu þjóðanna á alþjóðlega alnæmisdeginum sem er í dag.

Erlent
Fréttamynd

Þriðji hver starfsmaður myndi þiggja mútur

Einn af hverjum þremur opinberum starfsmönnum í Víetnam myndi þiggja mútur ef honum byðist það. Þetta kemur fram í nýlegri könnun sem gerð var þar í landi. Spilltustu starfsmennirnir samkvæmt könnuninni eru þeir sem sjá um úthlutanir á landssvæðum og húsnæði en fast á hæla þeirra koma lögreglumenn, tollverðir og starfsmenn skattsins.

Erlent
Fréttamynd

78 meintir meðlimir eiturlyfjahrings handteknir

Sjötíu og átta manns, sem grunaðir eru um aðild að kólumbískum eiturlyfjahring, voru handteknir í Kólumbíu og Bandaríkjunum í gær. Hópurinn er grunaður um að hafa staðið að smygli á eiturlyfjum til Bandaríkjanna, meðal annars með því að fela efnin inni í húsgögnum og málverkum.

Erlent
Fréttamynd

Meirihluti Bandaríkjamanna efast um sigur í Írak

Meirihluti Bandaríkjamanna efast um að George Bush Bandaríkjaforseti búi yfir áætlun sem muni leiða til "sigurs Bandaríkjamanna", eins og það er orðað, í Íraksstríðinu. Þetta kemur fram í niðurstöðum könnunar sem Gallup gerði fyrir CNN sjónvarpsstöðina og dagblaðið USA Today en könnunin var birt í gærkvöldi.

Erlent
Fréttamynd

Árið 2005 eitt mesta hamfaraár sögunnar

Það sem af er ári hafa Sameinuðu þjóðirnar tíu sinnum kallað eftir neyðar­aðstoð en svo oft hafa samtökin aldrei áður þurft að bregðast við. Í gær var farið fram á 265 milljarða króna í aðstoð til bágstaddra um allan heim.

Erlent
Fréttamynd

Mæðgur myrtar í Noregi

Kona á sextugsaldri og dóttir hennar á þrítugsaldri voru myrtar á heimili sínu í Borge í nágrenni Fredriksstad í Noregi í fyrrinótt. Sá sem myrti þær hringdi sjálfur til lögreglu og tilkynnti um morðið en hann er fyrrverandi kærasti móðurinnar.

Erlent
Fréttamynd

Ríkisstjóri náðar Lovitt

Innan við sólarhring áður en til stóð að Robin Lovitt yrði þúsundasti fanginn sem tekinn yrði af lífi í Bandaríkjunum frá því að dauðarefsingar voru teknar þar upp á ný fyrir 28 árum, ákvað ríkisstjóri Virginíu að þyrma lífi hans í gær. Refsingu Lovitts var breytt í ævilangt fangelsi án möguleika á náðun fyrir að stinga mann til bana með skærum í leikjasalarráni árið 1998.

Erlent
Fréttamynd

Leynifangelsi verða könnuð

Þótt Bandaríkjastjórn hafi ekki enn viðurkennt að hún starfræki leynileg fangelsi erlendis þar sem grunaðir hryðjuverkamenn eru geymdir segist hún hafa meðtekið þau hörðu viðbrögð sem málið hefur vakið.

Erlent
Fréttamynd

Peres til liðs við Sharon

Shimon Peres, eitt elsta brýnið í ísraelskum stjórnmálum, sagði í gær skilið við Verkamannaflokkinn sem var hans póli­tíska heimili í nærri sex áratugi. Hann hyggst leggja Ariel Sharon, núverandi forsætisráðherra sem stofnað hefur eigin flokk, lið í kosningabaráttunni fyrir næstu þingkosningar.

Erlent